Ríkissaksóknari Namibíu segir Samherjamenn vera í „veiðitúr“

Saksóknari í Samherja­málinu í Namibíu hafnar því alfarið að Jóhannes Stef­ánsson uppljóstrari muni ekki koma til landsins og bera vitni í málinu sem þar er rekið.

Jóhannes Stefánsson uppljóstrari hefur margsagt að hann muni fara til Namibíu og bera vitni.
Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ari hefur marg­sagt að hann muni fara til Namibíu og bera vitni. Mynd: Skjáskot/RÚV

Martha Imalwa ríkis­saksóknari Namibíu telur að íslenskir sakborningar í Samherja­málinu í Namibíu séu, með full­yrðingum sínum um að Jóhannes Stef­ánsson uppljóstrari muni ekki koma til landsins að bera vitni, að reyna að veiða fram upplýsingar um það hvað gerist er Jóhannes kemur til landsins.

„Þetta virðist vera veiðitúr til þess að komast að því hvaða skilyrði eða lagalega fyrir­komulag verðir viðhaft varðandi Hr. Stef­ánsson er hann kemur til Namibíu og ber vitni,“ segir saksókn­arinn meðal annars í viðbrögðum sínum við eiðsvarinni yfir­lýsingu frá Ingvari Júlíussyni, fjármála­stjóra hjá Samherja­samstæðunni, fyrir namibískum dómstólum. Þar er nú tekist á um kyrr­setningar­kröfu sem ákæru­valdið hefur lagt fram á hendur sakborningum í málinu.

Imalwa segir að málflutningur Samherja­manna um að Jóhannes komi ekki byggi á órökstuddum full­yrðingum og getgátum, en Jóhannes sjálfur hefur ítrekað sagt að hann ætli sér að koma til landsins og bera vitni.

„Ég fór í þetta til að klára þetta og ég mun vitna í öllum málunum. Það er ekkert sem að stoppar mig. Rann­sakendur í Namibíu eru ekki í nokkrum vafa um að ég muni koma," sagði Jóhannes við Stundina í upphafi mánaðar.

Efstur á vitnalista ákæruvaldsins

Í nýrri greinar­gerð ríkis­saksókn­arans sem birt var á vef namibískra dómstóla í vikunni má einmitt sjá vitna­lista ákæru­valdsins í málinu.

Þar er nafn Jóhannesar efst á blaði, en ljóst er að mála­tilbúnaður yfirvalda í Namibíu í málinu gegn þarlendum áhrifa­mönnum hvílir að miklu leyti á vitnis­burði Jóhannesar, auk þeirra gagna sem hann lét yfir­völdum þar í landi og hér á landi í té um meintar mútu­greiðslur.

Segir Ísland ekki geta hafnað framsali manna sem eru ekki á Íslandi

Í málsvörn Samherja­manna hefur verið byggt á því að sökum þess að armur laganna í Namibíu hafi ekki haft hendur í hári Íslendinganna þriggja sé ekki hægt að ganga lengra með málið gegn þeim, þar sem ekki sé hægt að sækja þá til saka í Namibíu nema til þeirra náist.

Ríkis­saksókn­arinn hafnar því að búið sé að tæma allar leiðir sem namibísk yfirvöld hafa til þess að reyna að nálgast Íslendingana þrjá og segir jafnframt ekkert koma í veg fyrir að þeir verði síðar dregnir fyrir dóm, þó það yrði í öðru réttar­haldi en því sem nú er í undir­búningi.

Hún segir ennfremur að ekki sé hægt að túlka bréf sem fékkst frá embætti ríkis­saksóknara á Íslandi, um að Íslendingar yrðu ekki fram­seldir héðan til Namibíu, sem formlega höfnun um framsal mannanna þriggja, enda geti Íslendingar ekki hafnað framsali manna sem ekki séu staddir á Íslandi.

Ákæru­valdið í Namibíu hefur áður lýst því að það hafi reynst erfitt að hafa upp á stað­setningu mannanna þriggja, sem eru fyrr­verandi stjórn­endur félaga á vegum Samherja í Namibíu. Auk áður­nefnds Ingvars eru þeir Egill Helgi Árnason og Aðalsteinn Helgason sakborningar í málinu ytra.

Dómsmálaráðuneyti sagt draga lappirnar

Í frétt á vef blaðsins Namibian í dag segir reyndar frá því að rann­sakendur hjá ACC, namibísku spillingar­lögreglunni, séu orðnir langeygir eftir því að dómsmála­ráðuneyti landsins sendi formlega beiðni um framsal mannanna til Íslands.

Erna van der Merwe, næstæðsti yfirmaður spillingar­lögreglunnar segir að stað­festing hafi þegar fengist á því frá héraðs­saksóknara á Íslandi að tveir af þremur mannanna dvelji hér á landi og að dómsmála­ráðuneytið, sem hafi formlegar beiðnir til annarra landa á sinni könnu, eigi að hætta að spá í því hvar mennirnir séu og einfald­lega koma framsals­beiðninni til Íslands. Í frétt blaðsins kemur fram að dómsmála­ráðuneytið líti svo á að framsals­beiðnin sé einungis forms­atriði, sem svar þurfi að fást við, þrátt fyrir að það blasi við að það verði neikvætt.

Dómsmála­ráðuneytið kýs þó, samkvæmt frétt blaðsins sem vitnar til bréfa­skrifta á milli ráðuneytis og spillingar­lögreglunnar, fremur að fara þá leið að gefa út alþjóð­lega handtöku­skipun vegna Íslendinganna þriggja. Í frétt Namibian kemur ennfremur fram að ráðherra alþjóða­samskipta í ríkis­stjórn landsins hafi átt fund með íslenskum sendi­herra þar sem skýr svör hafi fengist um að íslenskir ríkis­borgarar verði ekki fram­seldir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár