Fara fram á að tölvupóstum frá Íslandi og vitnisburði Jóhannesar verði vísað frá

Lögmaður á vegum Samherja­félaga í Namibíu hefur sett fram kröfu um að nýjum sönnunar­gögnum sem sett voru fram í sumar og vitnis­burði uppljóstr­arans Jóhannessar Stef­ánssonar verði ekki meðal sönnunar­gagna í málinu sem þar er rekið.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja sést hér með nokkrum samstarfsaðilum í útgerð fyrirtækisins í Namibíu.
Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja sést hér með nokkrum sam­starfs­að­ilum í útgerð fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu. Mynd: Wikileaks

Lögmaður á vegum félaga Samherja í dóms­málinu sem rekið er í Namibíu um þessar mundir hefur farið fram á það að tölvu­póstar, sem embætti héraðs­saksóknara á Íslandi sendi namibískum rann­sakendum, verði ekki á meðal sönnunar­gagna í málinu og ekki heldur vitnis­burður Jóhannesar Stef­ánssonar uppljóstrara.

Þetta kemur fram í dómskjali sem birtist í vefgátt namibískra dómstóla undir lok ágúst­mánaðar. Þar segir lögmaður sex namibískra félaga sem voru í að minnsta kosti hlutaeigu Samherja; Esja Holding, Mermaria Seafood, Saga Seafood, Heinaste Investment, Saga Investment og Esja Investment, að tölvu­póstar, sem sóttir voru á vefþjóna Samherja af hálfu embættis héraðs­saksóknara hér á landi og síðan sendir til namibískra rann­sakenda fyrr á þessu ári, eigi ekki að teljast tæk sönnunar­gögn í málinu.

Nýju sönnunargögnin hafi komið of seint fram

Lögmaðurinn fullyrðir, fyrir hönd skjólstæðinga sinna, að saksókn­arinn hafi ekki heimild til þess að reiða sig á þessi gögn, sem fyrst voru sett fram inn í dómsmálið í Namibíu undir lok júlí­mánaðar og fylgdu með eiðsvarinni yfir­lýsingu rann­sakanda hjá namibísku spillingar­lögreglunni.

Hann segir meðal annars að gögnin hefðu þurft að koma fyrr fram til þess að geta talist gild sönnunar­gögn í málinu og sakar ríkis­saksóknara Namibíu um að hafa vísvitandi setið á þeim.

Erfitt er að sjá hvernig það fær staðist, því samkvæmt undir­skrift löggilds skjala­þýðanda í Reykjavík voru gögnin einungis þýdd af íslensku yfir á ensku í upphafi sumars áður en þau voru svo send til Namibíu á dulkóðuðu USB-drifi. Það er löngu eftir að ríkis­saksókn­arinn lagði fram greinar­gerð sína í málinu, þar sem farið var yfir það hvernig málið blasti við ákæru­valdinu. Það gerði saksókn­arinn, Martha Imalwa, undir lok síðasta árs.

Í þessum gögnum sem send voru frá Íslandi má meðal annars finna, eins og Kjarninn sagði frá í upphafi ágúst­mánaðar, tölvupóst frá 2011 þar sem Aðalsteinn Helgason, lykil­maður í innreið Samherja í namibískan sjávar­útveg, viðraði það við Jóhannes Stef­ánsson og Ingvar Júlíusson að á einhverjum tíma­punkti gæti það farið að skipta máli „að múta einum af leiðtogum þessara manna“. Aðalsteinn átti við þá namibísku áhrifa­menn sem meintar mútu­greiðslur runnu síðan til af reikningum félaga í Samherja­samstæðunni.

Tíma­setningin á fram­lagningu þessara gagna er ekki það eina sem athuga­semdir eru gerðar við af hálfu lögmannsins, heldur hnýtir hann einnig í forms­atriði, sem sögð eru í ósamræmi við namibískar réttar­reglur. Þannig segir lögmaðurinn til dæmis að með gögnunum sem tekin voru saman á Íslandi vanti vottorð frá þar til bæru stjórn­valdi hérlendis um að gögnin skuli viðurkennd fyrir dómi í Namibíu.

Sömuleiðis gerir lögmaðurinn athuga­semdir við þýðinguna á gögnunum, en löggilti skjala­þýðandinn hér á Íslandi lét þess getið að hluti tölvu­póstanna hefði verið á ensku og hann hefði því ekki þýtt hvert einasta orð. Gerðar eru athuga­semdir við að þess sé ekki getið hvað var uppruna­lega á ensku og hvað ekki.

Þá gerir lögmaðurinn líka athuga­semdir við það sem ekki hefur verið lagt fram í málinu. Hann segir saksóknara hafa handvalið tölvu­pósta til þess að leggja fram sem sönnunar­gögn.

Vitnisburður Jóhannesar skuli strikaður út

Í kröfu lögmannsins er einnig óskað eftir því að vitnis­burður Jóhannesar Stef­ánssonar, sem mikið af mála­tilbúnaði ákæru­valdsins í Namibíu styðst við, verði með öllu strikaður út sem sönnunar­gögn í málinu.

Krafan byggir á því, samkvæmt því sem fram kemur í dómskjalinu, að Jóhannes muni ekki koma til Namibíu til þess að bera vitni, eða að líkurnar á því séu svo litlar, að það myndi brjóta gegn réttindum Samherja­félaganna ef saksóknara yrði heimilt að styðjast við vitnis­burðinn við úrlausn málsins.

Einnig segir lögmaðurinn að í framburði Jóhannesar séu órökstuddar sögu­sagnir, sem lögmaðurinn segir „hneykslanlegar“ og muni svipta skjólstæðinga hans réttinum til þess að fá sann­gjarna meðferð fyrir dómi.

Í viðtali við Stundina, sem birtist í dag, segir Jóhannes að hann muni ekki láta neitt stöðva sig í að fara til Namibíu til þess að bera vitni, en það hefur hann áður sagt.

„Það er 100 prósent að ég fer til Namibíu og það hefur alltaf verið klárt af minni hálfu. Ég fór í þetta til að klára þetta og ég mun vitna í öllum málunum. Það er ekkert sem að stoppar mig," segir Jóhannes meðal annars við Stundina.

Yfirheyrslur hér á landi í sumar

Eins og Kjarninn sagði frá þann 20. ágúst hafa yfirheyrslur staðið yfir hjá embætti héraðs­saksóknara vegna Samherja­málsins undan­farnar vikur.

Frá byrjun júlí hefur hluti þeirra sem hafa stöðu sakbornings við rannsókn málsins og einhver vitni verið kölluð til yfirheyrslu þar sem ýmis gögn málsins voru meðal annars lögð fyrir þá.

Samkvæmt heimildum Kjarnans var ekki útilokað að fleiri myndu bætast við í þeim hópi sem hafa réttar­stöðu sakbornings í rann­sóknum hérlendra yfirvalda, en sex hafa verið með slíka stöðu frá því að fyrstu yfirheyrslur fóru fram í málinu síðasta sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár