Slæm tíðindi af Stefáni Karli

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir lýsir stöðunni hjá Stefáni Karli Stef­ánssyni að hans beiðni.

Steinunn Ólína og Stefán Karl
Steinunn Ólína og Stefán Karl Hafa einseitt sér að nota vel þann dýr­mæta tíma sem þau hafa. Mynd: Kristinn Magnússon

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir, eiginkona Stefáns Karls Stef­ánssonar, hefur að beiðni Stefáns Karls greint frá stöðunni á Facebook-síðu hennar. Stefán Karl stendur frammi fyrir verra útliti en áður í veikindunum.

„Sjúk­dómurinn er nú langt genginn, á 4. stigi og því eru lífslíkur hans því miður verulega skertar,“ skrifar Steinunn Ólína. „Lækning er ekki í sjónmáli þegar sjúk­dómurinn er svo langt genginn, tilraunir eru gerðar með lyf og lífs­lengjandi hefð­bundnar og óhefðbundnar meðferðir víða um heim en svörin eru ekki að berast sem skyldi enn sem komið er. Hefð­bundnar krabbameins­lyfja­meðferðir skila heldur ekki árangri sem heitið getur þegar hér er komið sögu.“

Stefán Karl greindist með gall­gangna­krabbamein í september síðastliðnum. Eftir aðgerð í febrúar virtist sem útlitið væri gott. En í vor þurfti hann að undir­gangast frekari aðgerðir á Land­spítalanum. Hann og Steinunn Ólína eru afar þakklát starfs­fólki Land­spítalans fyrir það sem gert hefur verið þar, sem og hafa þau þakkað fyrir þann stuðning sem þau hafa fundið hjá almenningi.

„Ég vil þakka læknum Stefáns, hjúkrunar­fræðingum og öllu starfs­fólki 13-G fyrir alúðina á undan­förnum dögum. Afburða­fólk allt saman. Ég vil líka þakka óvænta vininum sem ég eignaðist á bekk fyrir utan spítalann fyrir trúnaðar­samtalið, gaurnum á bónbílnum sem fór í rallý með Júliu og Steina á göngum Land­spítalans og nætur­verðinum sem brosti til mín þegar ég fór heim á næturnar.

„Við vitum að tíminn er dýrmætur“

Þrátt fyrir að líkurnar og tölfræðin séu okkur ekki í hag og kerti Stefáns brenni hratt þá ætlum við ekki að dvelja við það og verða örkumla af hræðslu. Við vitum að tíminn er dýrmætur sem aldrei fyrr og höfum einsett okkur að njóta hans eins vel og okkur gefst kostur á. Dauðinn er nauða­ómerkilegur – lífið er hinsvegar ekkert minna en stórkostlegt!

Ég vil þakka allar hlýjar kveðjur til okkar – þær eru okkur ómetanlegar.“

Frásögn Steinunnar Ólínu 

Margir spyrja okkur frétta af heilsu Stefáns og því bað hann mig að segja frá stöðu mála án þess að draga nokkuð undan.

Nú er 14 daga spítala­vist Stefáns lokið. Þann 7. júní voru fjarlægð þrjú meinvörp úr lifur og í kjölfarið fékk hann sýkingu sem lengdi spítala­vistina um viku. Stefán er með gallganga­krabbamein (Cholangiocarcinoma), sjaldgæfan og lítt rann­sakaðan sjúkdóm. Það var harma­fregn að í Stefáni skyldu finnast meinvörp svo fljótt en hann fór í viðamikla aðgerð (Whipple) í byrjun október 2016 þar sem frumæxlið sem óx úr gallgangi yfir í brisið var fjarlægt.

Sjúk­dómurinn er nú langt genginn, á 4. stigi og því eru lífslíkur hans því miður verulega skertar.

Lækning er ekki í sjónmáli þegar sjúk­dómurinn er svo langt genginn, tilraunir eru gerðar með lyf og lífs­lengjandi hefð­bundnar og óhefðbundnar meðferðir víða um heim en svörin eru ekki að berast sem skyldi enn sem komið er. Hefð­bundnar krabbameins­lyfja­meðferðir skila heldur ekki árangri sem heitið getur þegar hér er komið sögu.

Meinvörp þessa sjúkdóms er stundum hægt að fjarlægja með skurð­aðgerðum eins og í aðgerðinni sem Stefán fór í gegnum fyrir hálfum mánuði en óvíst er að hann þyldi fleiri slíkar þegar sjúk­dómurinn lætur aftur á sér kræla eða að það verði hreinlega gerlegt vegna stað­setningar meinvarpa. Um þetta er lítið hægt að spá á þessari stundu. Við vonum það besta.

Það var óbærilegt að segja börnunum okkar frá því að pabbi þeirra yrði ekki gamall maður og að tíminn sem við ættum saman væri af skornum skammti. Að taka þá von frá þeim að pabba muni nokkurn tíma batna. Traust barna sinna eignast maður ekki nema að maður segi þeim satt, líka þegar það virðist ógerlegt. Það hefur verið þeim léttir að vita að ekki er verið að leyna þau neinu. Ef einhver heldur að börn séu ekki þess megnug að eiga innihalds­ríkar samræður um dauðann, lífið og tilveruna þá fer sá hinn sami á mis við margt.

Vigfús prestur á Barna­spítalanum leiddi þennan erfiða fund með mér og börnunum fjórum og gerði það fallega og af gríðarlegri fagmennsku. Ég hefði ekki getað það án hans.

Fjöl­skylda og vinir okkar eru allir slegnir yfir stöðu mála og hver og einn tekur á sinn hátt þessum þungbæru stað­reyndum sem blasa við okkur. Það er furðulegt að þótt maður sé fastur í senu í miðri stórslysa­mynd – þá glennir sólin sig núna bara eins og ekkert hafi í skorist – hvernig má það vera? Lífið er makalaust.

Ég vil þakka læknum Stefáns, hjúkrunar­fræðingum og öllu starfs­fólki 13-G fyrir alúðina á undan­förnum dögum. Afburða­fólk allt saman. Ég vil líka þakka óvænta vininum sem ég eignaðist á bekk fyrir utan spítalann fyrir trúnaðar­samtalið, gaurnum á bónbílnum sem fór í rallý með Júliu og Steina á göngum Land­spítalans og nætur­verðinum sem brosti til mín þegar ég fór heim á næturnar.

Þrátt fyrir að líkurnar og tölfræðin séu okkur ekki í hag og kerti Stefáns brenni hratt þá ætlum við ekki að dvelja við það og verða örkumla af hræðslu. Við vitum að tíminn er dýrmætur sem aldrei fyrr og höfum einsett okkur að njóta hans eins vel og okkur gefst kostur á. Dauðinn er nauða­ómerkilegur – lífið er hinsvegar ekkert minna en stórkostlegt!

Ég vil þakka allar hlýjar kveðjur til okkar – þær eru okkur ómetanlegar.

Ef fjöl­miðlar gera sér mat úr þessum skrifum þá bið ég vinsamlegast um að fyrir­sagnir verði stílaðar æsingalaust og af nærgætni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár