Harvey Weinstein dæmdur í 23 ára fangelsi

Kvikmynda­fram­leiðandinn var í dag dæmdur í 23 ára fangelsi fyrir kyn­ferð­is­brot og nauðgun.

Harvey Weinstein
Harvey Weinstein Mynd: EPA

Kvik­mynda­fram­leið­and­inn Har­vey Wein­stein hefur verið dæmdur í 23 ára fangelsi en hann var fundinn sekur þann 24. febrúar síðastliðinn fyrir kyn­ferð­is­brot og nauðgun. The New York Times greinir frá í dag.

Í frétt RÚV um málið kemur fram að verjendur Weinsteins hafi farið fram á að hann yrði einungis dæmdur til lágmarks­refsingar, fimm ára fangelsis. Hafi þeir sagt að skjólstæðingur þeirra væri orðinn 67 ára og heilsu­veill. Þar af leiðandi yrði lengri fangelsis­vist honum að aldurtila.

Ákæran var í fimm lið­um. Hann var sak­aður um að hafa brotið gegn tveimur kon­um, ákærður fyrir tvær nauðg­anir og önnur kyn­ferð­is­brot sem og kyn­ferð­is­lega mis­neyt­ingu, þ.e. að hafa nýtt sér yfir­burða­stöðu sína til að koma fram vilja sín­um. Hann var sýkn­aður af alvar­leg­ustu brot­un­um.

Afhjúpunin hófst haustið 2017 – Metoo springur út í kjölfarið

Wein­stein stofn­aði kvik­mynda­fyr­ir­tækið Miramax ásamt bróður sínum og fram­leiddi fjölda sjón­varps­þátta og stór­myndir á borð við Pulp Fict­ion og Shakespe­are in Love.

Af­hjúp­unin hófst með birt­ingu greina í New York Times og New Yor­ker haustið 2017. Fram stigu kon­ur, þekktar leikkonur meðal ann­ars, sem greindu frá ósæmi­legri hegðun hans og meintum ofbeld­is­brot­um.

Hver frá­sögnin á fætur annarri rataði í fjöl­miðla. Þær voru flestar á sama veg: Wein­stein var vin­gjarn­leg­ur, ráða­góður og lof­aði að hjálpa þeim á frama­braut­inni. En sú hjálp var ekki ókeypis, beint eða óbeint gaf hann það í skyn að kyn­ferð­is­legir greiðar væru það gjald sem yrði að greiða. „Þú ert svo æðis­leg, ég réð bara ekki við mig,“ á hann að hafa sagt við eina kon­una sem varð fyrir barð­inu á hon­um.

Hann gekk mis­langt gagn­vart þeim. Sumar þeirra saka hann um nauðgun og önnur kyn­ferð­is­brot. Aðrar um kyn­ferð­is­lega áreitni af ýmsu tagi.

Markaði tímamót

Frétt­irnar mörk­uðu stór­kost­leg tíma­mót; upp­haf metoo-­bylt­ing­ar­inn­ar. Upp­hafið er rakið til leikkon­unnar Alyssu Milano sem kvatti konur sem orðið hefðu fyrir áreitni og ofbeldi að skrifa „me too“ á sam­fé­lags­miðla.

Myllu­merkið #metoo á þó uppruna sinn í grasrótar­samtökum árið 2006 þegar aðgerða­sinninn Tarana Burke bjó það til á samfélags­miðlinum MySpace. Hugmyndin var sú að tengja saman svartar konur sem orðið höfðu fyrir kynferðis­ofbeldi og að nota samkennd til að styrkja konur og efla þær. 

Sigur fyrir „ófullkomin fórnarlömb“ kynferðisofbeldis

Kon­urnar tvær sem Har­vey Wein­stein var sak­felld­ur fyrir að nauðga og brjóta gegn með öðrum kyn­ferð­is­legum hætti voru ekki „full­komin fórn­ar­lömb“ samkvæmt skilgreiningum. Þær áttu báðar í sam­skiptum við hann eftir að ofbeldið átti sér­ ­stað, jafn­vel kyn­ferð­is­leg­um. Verj­endur kvik­mynda­fram­leið­and­ans töldu það sýna sak­leysi hans en sak­sókn­ar­inn sagði það einmitt til marks um hið gagn­stæða: Að ­valda­ó­jafn­vægi hefði gert það að verkum að kon­urnar teldu það sér fyrir bestu að halda áfram vina­legum sam­skiptum enda hefði hann hótað þeim með ýmsum hætt­i ­fengi hann ekki sínu fram­gengt.

Sér­fræð­ingur í kyn­ferð­is­brota­málum sagði í vitn­is­burði sínum við rétt­ar­höldin yfir Wein­stein í New York að það væri mýta að konur slitu öllum sam­skiptum sínum í kjöl­far of­beld­is. Flest kyn­ferð­is­brot ættu sér stað milli fólks sem þekkt­ist og að það væri algeng­ara en hitt að sam­skipti af ein­hverjum toga héldu áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár