Sigur fyrir „ófullkomin fórnarlömb“ kynferðisofbeldis

Konurnar sem Harvey Weinstein var sak­felldur fyrir að brjóta gegn kyn­ferð­is­lega áttu í sam­skiptum við hann eftir að ofbeldið átti sér stað. Það er dæmi­gerð hegðun fórn­ar­lamba en ekki und­an­tekn­ing. „Full­komið for­dæm­is­mál“ segir laga­pró­fessor.

Harvey Weinstein er 67 ára. Hann á 5-29 ára fangelsisdóm yfir höfði sér.
Harvey Weinstein er 67 ára. Hann á 5-29 ára fang­els­is­dóm yfir höfði sér. Mynd: EPA

Konurnar tvær sem Harvey Weinstein hefur verið sak­felldur fyrir að nauðga og brjóta gegn með öðrum kyn­ferð­is­legum hætti voru ekki „full­komin fórn­ar­lömb“. Þær áttu báðar í sam­skiptum við hann eftir að ofbeldið átti sér stað, jafn­vel kyn­ferð­is­legum. Verj­endur kvik­mynda­fram­leið­and­ans töldu það sýna sak­leysi hans en sak­sókn­ar­inn sagði það einmitt til marks um hið gagn­stæða: Að valda­ó­jafn­vægi hafi gert það að verkum að kon­urnar töldu það sér fyrir bestu að halda áfram vina­legum sam­skiptum enda hafi hann hótað þeim með ýmsum hætti fengi hann ekki sínu fram­gengt.

Sér­fræð­ingur í kyn­ferð­is­brota­málum sagði í vitn­is­burði sínum við rétt­ar­höldin yfir Weinstein í New York að það væri mýta að konur slitu öllum sam­skiptum sínum í kjöl­far ofbeldis. Flest kyn­ferð­is­brot ættu sér stað milli fólks sem þekkt­ist og að það væri algeng­ara en hitt að sam­skipti af ein­hverjum toga héldu áfram.

Ofbeld­is­full hegðun Harvey Weinstein, eins valda­mesta manns Hollywood síð­ustu ára­tugi, hefur verið kölluð „verst geymda leynd­ar­mál“ banda­rísku kvik­mynda­borg­ar­innar. Árið 2017 hófu konur að stíga fram og segja frá sam­skiptum sínum við hann og mark­aði það upp­haf metoo-bylt­ing­ar­innar.

Yfir hund­rað konur hafa síðan þá ásakað hann um ósæmi­lega hegðun í gegnum árin og ára­tug­ina. Mörg mál­anna voru hins vegar fyrnd. Sumar kvenn­anna treystu sér ekki til að kæra hann og svo fór að sak­sókn­ari New York-borgar ákærði hann fyrir brot gegn tveimur konum. Ákæran var í nokkrum liðum. Hann var ákærður fyrir nauðgun og önnur alvar­leg kyn­ferð­is­brot gegn þeim og að auki fyrir kyn­ferð­is­lega og kerf­is­bundna mis­neyt­ingu gegn fleiri en tveimur konum.

[links]Rétt­ar­höldin hófust 22. jan­úar í dóms­húsi á Man­hattan. Þeim lauk nú í vik­unni með því að Weinstein var fund­inn sekur um að hafa brotið gegn kon­unum tveimur en sýkn­aður af alvar­leg­asta ákæru­liðnum um kerf­is­bundið ofbeldi gegn fleiri konum.

Sex meint fórn­ar­lömb báru vitni við rétt­ar­höldin, m.a. konur sem áttu með fram­burði sínum að styðja þá full­yrð­ingu sak­sókn­ar­ans að Weinstein hefði oft og ítrekað nýtt völd sín, áhrif og yfir­burði til að ná til kvenna og beita þær svo ofbeldi, eins og Jackie Lacey sak­sókn­ari orð­aði það í opn­un­ar­ræðu sinni.

Allar kon­urnar sem báru vitni sögðu sömu sögu: Þær hefðu kynnst Weinstein og treyst honum þar til hegðun hans hafi breyst og orðið kyn­ferð­is­leg. Þær sögðu hann hafa haft fram­tíð þeirra í höndum sér, að hann hefði getað rústað starfs­ferli þeirra og fjöl­skyldu ef þær færu ekki að óskum hans. Ein konan greindi frá því að Weinstein hefði á fundi þeirra veifað skjölum sem hann sagði samn­inga um aðkomu hennar að næstu þremur kvik­myndum hans. Ef að hún stund­aði hóp­kyn­líf með honum myndi hann skrifa undir þá.

Þetta var tekið sem dæmi um hvernig hann beitti völdum sínum gagn­vart kon­unum.

Aðal­verj­andi Weinsteins, Donna Rotunno, er þekkt fyrir að verja karl­menn sem sak­aðir eru um kyn­ferð­is­brot. Hún hefur lýst því yfir að hún telji metoo-bylt­ing­una hafa gengið of langt. Í við­tali áður en rétt­ar­höldin hófust sagð­ist hún aldrei hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af því að hún hefði „aldrei komið sér í“ þær aðstæður.

Rotunno sótti hart að kon­unum tveimur og lagði fram tölvu­pósta og texta­skila­boð sem fóru milli þeirra og Weinstein sem hún sagði sanna að kyn­ferð­is­mökin hefðu verið með sam­þykki beggja. Áhersla var einnig lögð á það að þær hefðu af fúsum vilja verið einar með honum.

Weinstein nauðg­aði annarri kon­unni á hót­el­her­bergi í New York. Verj­end­urnir spurðu hana spjör­unum úr í þrjá daga. Einn dag­inn brotn­aði hún algjör­lega niður og dóm­ar­inn varð að fresta rétt­ar­höld­unum til næsta dags. Rotunno hafði meðal ann­ars spurt út í tölvu­póst sem hún sendi Weinstein þar sem hún sagð­ist ánægð með að hafa kynnst honum.

Sagði Weinstein fórnarlambið

Konan sagð­ist hafa haldið sam­band­inu áfram í gegnum tölvu­póst því það hefði hún talið örugga leið. Hún átti mikið undir því að halda honum góðum. Við rétt­ar­höldin sagði hún að Weinstein ætti sér góðar hliðar. Hann gæti byggt upp sjálfs­traust fólks en svo mulið það niður ef það þókn­að­ist honum ekki. Per­sónu­leik­inn væri í anda Dr. Jekill og Mr. Hyde.

Verj­end­urnir héldu því fram í gegnum öll rétt­ar­höldin að Weintein væri fórn­ar­lambið, kon­urnar hefðu verið í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við hann þrátt fyrir að þær hefðu ekki lað­ast að eða hrif­ist af honum. Þær hefðu notað hann til að ná frama. „Þú mis­not­aðir Harvey Weinstein í hvert skipti sem þú hélst áfram að hitta hann,“ sagði Rotunno við aðra kon­una.

Sak­sókn­arar leiddu Barböru Ziv, geð­lækni og sér­fræð­ing í afleið­ingum kyn­ferð­is­of­beldis, fyrir dóm­inn til að ræða rang­hug­myndir um fórn­ar­lömb. Hún sagði mýt­una þá að fórn­ar­lömb hefðu ekki sam­band við ger­endur eftir að brot eru framin. Það væri rangt, almennt gerðu þau einmitt það vegna þess að flest kyn­ferð­is­brot eru framin af þeim sem fórn­ar­lömbin þekkja.

Þetta er sögð ein ástæðan fyrir því að margar konur sem upp­lifðu ofbeldi af hendi Weinsteins þögðu þunnu hljóði í fjölda ára.

Fullkomið fordæmismál

Kvið­dóm­ur­inn, sem skip­aður var sjö körlum og fimm konum, tók sér nokkra daga til að kom­ast að nið­ur­stöðu. Á mánu­dags­morgun lá ákvörð­unin fyrir. Weinstein var sak­felldur fyrir að brjóta gegn kon­unum tveimur.

Vissu­lega eru þetta tíð­indi fyrir alla sem komu að mál­inu með einum eða öðrum hætti en nið­ur­staðan markar að margra mati stór­merki­leg tíma­mót í með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála fyrir dóm­stólum.

Konur sem höfðu átt í flóknu sam­bandi við ger­anda sinn eftir að hann braut á þeim voru teknar trú­an­legar. Þó að hluti sam­skipt­anna hafi verið með þeirra vilja breytti það ekki því að hann braut á þeim. „Að því leyti snér­ust þessi rétt­ar­höld um einn helsta boð­skap metoo-bylt­ing­ar­innar; um hver hefur valdið og hversu algengt það er að valdi sé mis­beitt með kyn­ferð­is­of­beldi,“ segir Lauren Aratani, blaða­maður Guardian, sem fylgst hefur náið með rétt­ar­höld­unum í Banda­ríkj­unum. Kvið­dóm­ur­inn hafi trúað kon­unum og það segi mikið um hversu langt metoo-hreyf­ingin hefur náð.

„Þetta er full­komið for­dæm­is­mál um hvað ger­ist þegar við­tekin við­horf taka að breyt­ast,“ segir Deborah Tuerk­heimer, laga­pró­fessor við Northwestern-háskóla við New York Times. Hingað til hafi það sjaldan gerst að sak­sókn­arar leggi í að sækja mál þegar fórn­ar­lömbin eru ekki „full­komin“, þ.e. ef þau hafa átt í frekara sam­bandi við mein­tan ger­anda.

„Þessar konur trúðu því mjög lengi að hann væri ósnert­an­legur og að það væri ekki hægt að draga hann til ábyrgðar en nú hefur hann verið sak­felldur,“ segir Tarana Burke, einn af stofn­endum metoo-hreyf­ing­ar­innar. „Það sendir gríð­ar­lega sterk skila­boð.“

Harvey Weinstein gæti átt 5-29 ára fang­els­is­dóm yfir höfði sér. Refsing yfir honum verður ákveðin 11. Mars. Þangað til þarf hann að dúsa í varð­haldi sem verj­endur hans hafa mót­mælt. Eftir upp­kvaðn­ingu refs­ingar er mál Weinsteins ekki frá. Sak­sókn­ari í Los Angeles hefur einnig ákært hann fyrir brot gegn tveimur konum og gera má ráð fyrir því að þau rétt­ar­höld hefj­ist áður en langt um líður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár