Mynd: EPA

Fallinn risi mætir örlögum sínum

„Verst geymda leynd­ar­mál Hollywood“ var afhjúpað haustið 2017 og hrinti af bylt­ingu kenndri við metoo. Reynsla yfir hund­rað kvenna er sú sama: Harvey Weinstein nýtti sér yfir­burða­stöðu sína til að áreita þær og beita ofbeldi. Rétt­ar­höldin eru nú hafin.

Svartur bíll með skyggðum rúðum rennir upp að dóms­húsi á Man­hattan í New York-borg. Hópur sterk­legra karla hóp­ast að og áhyggju­svipur fær­ist yfir and­lit þeirra er far­þeg­inn í aft­ur­sæt­inu stígur út með erf­ið­is­munum. Þetta virð­ist gam­all maður, þunn­hærður og tek­inn í and­liti. Hann styður sig við göngu­grind, lítur allt að því ringlaður í kringum sig á mann­fjöld­ann sem raðar sér beggja vegna við hann. Menn­irnir sterk­legu grípa undir hand­leggi hans og aðstoða hann við næstu skref.

Næstu skref eru inn í dóms­sal þar sem mað­ur­inn í fylgd verj­enda sinna mætir sak­sókn­ara og teymi hans, dóm­ara og tólf kvið­dóm­urum. Ákæran er lesin upp. Hún er í fimm liðum. Hann er sak­aður um að hafa brotið gegn tveimur konum, ákærður fyrir tvær nauðg­anir og önnur kyn­ferð­is­brot sem og kyn­ferð­is­lega mis­neyt­ingu, þ.e. að hafa nýtt sér yfir­burða­stöðu sína til að koma fram vilja sínum.

Rétt­ar­höldin yfir kvik­mynda­fram­leið­and­anum valda­mikla, Harvey Weinstein, eru hafin.

Harvey Weinstein er 67 ára. Hann stofn­aði kvik­mynda­fyr­ir­tækið Miramax ásamt bróður sínum og fram­leiddi fjölda sjón­varps­þátta og stór­myndir á borð við Pulp Fiction og Shakespe­are in Love. Starf hans fólst ekki aðeins í að velja réttu hand­ritin og réttu leik­stjór­ana heldur einnig réttu leik­ar­ana. Völd hans í Hollywood voru gríð­ar­leg, nán­ast ævin­týra­leg. Hann þótti hafa sér­stakt auga fyrir hæfi­leikum og vegna þess­arar áhrifa­miklu stöðu sinnar gat hann gert óþekkt fólk að stór­stjörnum á einni nóttu.

Og það gerði hann. Ungar fyr­ir­sætur fengu hlut­verk í sjón­varps­þáttum, aðrar konur fengu vinnu á bak við tjöldin hjá Miramax. Enn aðrar fengu svo stóra tæki­færið í kvik­myndum einmitt vegna hans. Kóngsins í Hollywood.

Líkt og kóngum sæmir hafði hann hirð í kringum sig. Hirð lög­fræð­inga, aðstoð­ar­manna og ann­arra sem hlýddu hans fyr­ir­mælum í hví­vetna. Þetta fólk létti honum lífið, hljóp þegar því var sagt að hlaupa. Stökk þegar því var sagt að stökkva.

Enda tókst Weinstein þrátt fyrir mikið ann­ríki, eig­in­konu og börn, að taka fullan þátt í skemmt­ana­lífi ríka og fræga fólks­ins. Hann mætti kampa­kátur og bros­andi á kvik­mynda­há­tíðir og aðra við­burði um allan heim. Bjó á lúx­us­hót­elum og flaug reglu­lega yfir Atl­ants­hafið til form­legra og óform­legra funda.

Hann flaug hátt. Skýjum ofar. En brot­lendi svo harka­lega.

Harvey Weinstein framleiddi kvikmyndina Shakespeare in Love sem Gwyneth Paltrow fékk Óskarsverðlaun fyrir.
Harvey Weinstein fram­leiddi kvik­mynd­ina Shakespe­are in Love sem Gwyneth Paltrow fékk Ósk­arsverð­laun fyrir.

„Sönn­un­ar­gögnin munu varpa skýru ljósi á að mað­ur­inn sem situr þarna var ekki aðeins ris­inn í Hollywood heldur nauð­gari,“ sagði Meghan Hast, einn sak­sókn­ar­inn í mál­inu gegn honum, í opn­un­ar­ræðu sinni í dóms­hús­inu á Man­hattan í síð­ustu viku.

Weinstein hafði nefni­lega ekki aðeins notað völd sín til að láta drauma ungra kvenna ræt­ast. Hann hafði að sögn sak­sókn­ar­ans notað þau til að níð­ast á þeim. Og ofbeldið var kerf­is­bundið og við­gekkst árum og ára­tugum saman. Til að koma sínu fram við fórn­ar­lömb sín naut hann aðstoðar hirðar sinnar; aðstoð­ar­manna og lög­fræð­inga. Þetta fólk ýmist þagði yfir því sem það vissi um hegðun hans eða hjálp­aði honum bein­línis.

Án þeirra hefði honum ekki tek­ist svo lengi sem raun ber vitni að koma í veg fyrir að flett yrði opin­ber­lega ofan af „verst geymda leynd­ar­máli Hollywood“.

Margar konur, meðal annars þær sem sakað hafa Weinstein um ofbeldi, mættu fyrir utan dómshúsið á Manhattan við upphaf réttarhaldanna.
Margar konur, meðal ann­ars þær sem sakað hafa Weinstein um ofbeldi, mættu fyrir utan dóms­húsið á Man­hattan við upp­haf rétt­ar­hald­anna.

Afhjúp­unin hófst með birt­ingu greina í New York Times og New Yorker haustið 2017. Fram stigu konur, þekktar leikkonur meðal ann­ars, sem greindu frá ósæmi­legri hegðun hans og meintum ofbeld­is­brotum.

Hver frá­sögnin á fætur annarri rataði í fjöl­miðla. Þær voru flestar á sama veg: Weinstein var vin­gjarn­legur, ráða­góður og lof­aði að hjálpa þeim á frama­braut­inni. En sú hjálp var ekki ókeypis, beint eða óbeint gaf hann það í skyn að kyn­ferð­is­legir greiðar væru það gjald sem yrði að greiða. „Þú ert svo æðis­leg, ég réð bara ekki við mig,“ á hann að hafa sagt við eina kon­una sem varð fyrir barð­inu á honum.

Hann gekk mis­langt gagn­vart þeim. Sumar þeirra saka hann um nauðgun og önnur kyn­ferð­is­brot. Aðrar um kyn­ferð­is­lega áreitni af ýmsu tagi.

Frétt­irnar mörk­uðu stór­kost­leg tíma­mót; upp­haf „metoo“-bylt­ing­ar­innar. Upphafið er rakið til leikkon­unnar Alyssu Milano sem kvatti konur sem orðið hefðu fyrir áreitni og ofbeldi að skrifa „me too“ á sam­fé­lags­miðla.

Að minnsta kosti 105 konur hafa síðan þá stigið fram og sagt frá hegðun kvik­mynda­fram­leið­and­ans í sinn garð. Brot gegn aðeins tveimur þeirra eru hins vegar hluti af ákæru sak­sókn­ara New York-borgar. Margar þeirra fóru í einka­mál gegn honum, kröfð­ust skaða­bóta.

En hvernig gerð­ist það eig­in­lega, eftir allt sem á undan var gengið? Voru þær þá allan tím­ann á eftir pen­ingum og athygli, líkt og verj­endur Weinsteins og hans stuðn­ings­menn höfðu haldið fram?

Aldeilis ekki.

Nokkrir þættir skýra þessa nið­ur­stöðu. Í fyrsta lagi eru mörg hinna meintu brota fyrnd sam­kvæmt banda­rískum lögum, áttu sér stað allt frá átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Í öðru lagi voru þau framin í öðrum ríkjum Banda­ríkj­anna en New York og öðrum löndum sem flækir sak­sókn­ina. Í þriðja lagi fólust þau fjöl­mörg í marg­vís­legri kyn­ferð­is­legri áreitni sem refsi­lög­gjöfin tekur ekki almennt á.

Þær konur sem þá eftir standa hafa svo ekki allar viljað ákæra. Á því eru aftur ýmsar skýr­ingar, meðal ann­ars þær að alveg frá upp­hafi var ljóst að þær sem gengju svo langt myndu ekki eiga sjö dag­ana sæla. Hrein martröð myndi taka við. Allt líf þeirra yrði afhjúpað, skrum­skælt. Allt sem þær hefðu sagt og gert, allt sem þær hefðu ekki sagt og gert, yrði notað gegn þeim af verj­endum Weinsteins. Höfðu þær átt í „vin­gjarn­legum“ sam­skiptum við hann eftir meint brot? Höfðu þær „grætt“ á sam­skiptum sínum við hann, fengið frama og ýmis fríð­indi? Hafði þeim raun­veru­lega liðið illa, átt erfitt upp­dráttar eða kannski hlegið, brosað, notið lífs­ins?

Að lenda í þeirri hakka­vél sem konur er kæra kyn­ferð­is­brot þurfa oft að ganga í gegnum í fjöl­miðlum, á sam­fé­lags­miðlum, í skýrslu­tökum hjá lög­reglu og í dóms­sal, er ekki aðlað­andi á nokkurn hátt. Við því voru kon­urnar var­aðar af lög­mönnum sínum og sak­sóknurum. Margar treystu sér ekki til að ganga í gegnum þann vít­iseld.

En ein­hverjar urðu að taka af skarið. Og sak­sókn­ar­arnir urðu að velja þær vel. Þeir vildu ekki að verj­endur Weinsteins gætu grafið eitt­hvað upp sem myndi spilla öllu mál­inu. Til dæmis ekki vin­konu sem myndi segja að kyn­ferð­is­leg sam­skipti hans og kon­unnar hefðu verið með sam­þykki beggja. Eins og gerð­ist í til­felli einnar kon­unnar sem upp­haf­lega ákærði Weinstein. Þó að hún hafi stað­fast­lega sagt vin­kon­una ljúga dugði það ekki til. Áhættan var of mikil.

Að lokum var Weinstein ákærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tveimur konum: Miriam Haleyi og Jessica Mann.

Nei, nei, nei

Haleyi var aðstoð­ar­maður við fram­leiðslu Miramax á sjón­varps­þátt­unum Project Runway. Weinstein er sak­aður um að hafa neytt hana til munn­maka í íbúð sinni á Man­hattan árið 2006.

Haleyi var kynnt fyrir Weinstein í fyrsta sinn við frum­sýn­ingu kvik­mynd­ar­innar The Aviator árið 2004. Í kjöl­farið fékk hún vinnu við fram­leiðslu sjón­varps­þátta úr smiðju Miramax. Er Haleyi greindi fyrst opin­ber­lega frá ofbeld­inu árið 2017 sagði hún aðdrag­and­ann þann að Weinstein hefði ákaft vilja hitta hana en hún lengi neitað. Hún hafi að lokum sam­þykkt að koma til fundar í íbúð hans í Soho-hverf­inu í New York. „Það leið ekki á löngu þar til hann var far­inn að sýna kyn­ferð­is­lega til­burði. Ég sagði „nei, nei, nei“ en hann gafst ekki upp,“ sagði Haleyi. „Hann var mjög ákveð­inn og beitti lík­am­legum yfir­burðum.“ Hann hafi svo neytt hana til munn­maka.

Tveir liðir ákærunnar á hendur Weinstein snúa að þessu. Hann er ákærður fyrir kyn­ferð­is­lega mis­neyt­ingu og alvar­legt kyn­ferð­is­brot.

Miram Haleyi, Mimi eins og hún er alltaf kölluð, greindi frá reynslu sinni opinberlega. Hún er önnur þeirra kvenna sem Weinstein er ákærður fyrir að hafa brotið gegn.
Miram Haleyi, Mimi eins og hún er alltaf kölluð, greindi frá reynslu sinni opin­ber­lega. Hún er önnur þeirra kvenna sem Weinstein er ákærður fyrir að hafa brotið gegn.

Verj­endur Weinsteins hafa reynt að sýna fram á að kyn­ferð­is­leg sam­skipti þeirra hafi verið með vilja beggja. Þeir hafa til dæmis sagt að í kjöl­far fundar þeirra hafi Haleyi sent aðstoð­ar­manni hans skila­boð sem „sýni aug­ljós­lega“ að hún vildi halda áfram að hitta hann.

„Hæ! Var bara að velta fyrir mér hvort það væri komið í ljós hvort að Harvey hefði tíma til að hitta mig áður en hann fer? X Miriam.“

X-ið segja verj­end­urnir tákna koss.

Lög­fræð­ingar Haleyi segja hins vegar að verj­endur Weinsteins dragi allt of miklar álykt­anir út frá þessum stuttu skila­boðum.

Úr smábæ til Los Angeles

Hin konan var nafn­greint í fyrsta sinn í síð­ustu viku. Hún heitir Jessica Mann og starfar sem hár­greiðslu­meist­ari. Sak­sókn­ar­inn Meghan Hast sagði í opn­un­ar­ræðu sinni að Weinstein hefði nauðgað Mann á hót­el­her­bergi í New York árið 2013. Þá var hún ung og dreymdi um að verða leik­kona.

Mann ólst upp í smábæ í Washington-ríki. Hún hitti Weinstein í fyrsta sinn í veislu í Los Angeles er hún var 25 ára. Þangað hafði hún flutt til að freista gæf­unnar. Hann sagði hana eiga fram­tíð­ina fyrir sér í leik­list­inni og að hann gæti gefið henni stórt hlut­verk í kvik­mynd. Það var lygi, að sögn sak­sókn­ar­ans.

Mann segir að Weinstein hafi beitt sig kyn­ferð­is­of­beldi, meðal ann­ars nauðga henni, í þrí­gang á næstu árum.

Verj­endur Weinsteins hafa lýst sam­bandi þeirra sem „ást­ríku“ og hafa birt skila­boð frá Mann máli sínu til stuðn­ings: „Ég elska þig, ég mun alltaf gera það,“ skrif­aði hún til Weinsteins í febr­úar árið 2017. Þá sagð­ist henni mis­líka að vera ekk­ert annað en hjá­svæfa (e. booty call) og lét broskall fylgja þeirri setn­ingu.

Verj­end­urnir gera mikið úr því að kon­urnar tvær, sem og aðrar sem lýst hafa kynnum sínum af Weinstein, hafi ekki sagt frá ofbeld­inu strax. Þær hafi jafn­vel ekki gert það fyrr en mörgum árum síðar. Þetta sanni að sam­skiptin hafi verið með vilja beggja.

Að mati sak­sóknar­anna er þetta einmitt alrangt. Eitt af því sem þeir ætla að sanna er að vegna valds síns í kvik­mynda­heim­inum og víðar í sam­fé­lag­inu hafi Weinstein beint og óbeint haft í hót­unum við kon­urnar, haft starfs­frama þeirra í höndum sér. Því sé ekki að undra að þær hafi veigrað sér við að segja frá. Þeir ætla að sanna slíka mis­neyt­ingu og hvernig hann hafi komið vilja sínum fram við tugi kvenna með kerf­is­bundnum hætti á að minnsta kosti þriggja ára­tuga tíma­bili.

Til þess að gera það þurftu þeir að fá leyfi dóm­ar­ans fyrir því að aðrar konur sem sakað hafa Weinstein um ofbeldi og áreitni mættu koma fyrir dóm­inn sem vitni. Leyfið fékkst, þrátt fyrir miklar mót­bárur verj­enda­teym­is­ins.

Mann og Haleyi verða því ekki þær einu sem munu tjá sig um gjörðir hans.

Leikkonan Annabella Sciorra mætir til að vera vitni gegn Harvey Weinstein. Hún segir hann hafa nauðgað sér á tíunda áratug síðustu aldar.
Leik­konan Anna­bella Sciorra mætir til að vera vitni gegn Harvey Weinstein. Hún segir hann hafa nauðgað sér á tíunda ára­tug síð­ustu aldar.

Ein þess­ara kvenna er Sopranos-leik­konan Anna­bella Sciorra. Hún segir að Weinstein hafi nauðgað sér árið 1993. Saga hennar var sú sem hleypti umræð­unni allri af stað er hún birt­ist í New Yorker í októ­ber árið 2017. Sciorra kærði Weinstein ekki og segir hann hafa haldið áfram að áreita sig í mörg ár.

Þessi meintu brot hans gegn henni eru fyrnd en sak­sókn­ar­arnir telja að vitn­is­burður hennar muni sýna brota­mynstrið sem hann stund­aði í ára­tugi. Einn verj­enda Weinsteins sagði hins vegar í opn­un­ar­ræðu sinni í síð­ustu viku að vin­kona leikkon­unnar, sem einnig verður kölluð fyrir dóm­inn sem vitni, muni segja frá því að Sciorra hafi á sínum tíma sagst hafa sam­þykkt kyn­mökin.

Fórnarlambið er Weinstein

„Herra Weinstein er hvorki nauð­gari né sér­fræð­ingur í blekk­ingum,“ sagði einn verj­enda hans, Damon Cheronis, við upp­haf rétt­ar­hald­anna. Konurnar allar hafi átt í sam­böndum við hann með ýmsum hætti til að ná frama. Öll hafi þessi sam­skipti verið með sam­þykki þeirra. Því til sönn­unar verði lagðir fram tugir tölvu­pósta frá kon­unum sem sýni meðal ann­ars að sam­skipti þeirra hafi verið „vin­gjarn­leg“.

Með öðrum orðum: Weinstein hafi verið fórn­ar­lambið, ekki þær.

Margar kvenn­anna hafa lýst því að þær hafi ekk­ert aðhafst, ekki kært eða sagt frá, þar sem þær ótt­uð­ust afleið­ing­arnar. Óttuðust að verða útskúf­aðar, úthróp­aðar, að þær myndu splundra fjöl­skyldum sínum, missa vini sína og vinn­una.

Leikkonan þekkta Ashley Judd hefur sakað Weinstein um ofbeldi. Hann birti í kjölfarið þessa mynd til að sýna hversu vinsamleg samskipti þeirra hefðu verið.
Leik­konan þekkta Ashley Judd hefur sakað Weinstein um ofbeldi. Hann birti í kjöl­farið þessa mynd til að sýna hversu vin­sam­leg sam­skipti þeirra hefðu verið.

Harvey Weinstein mun ekki eiga sjö dag­ana sæla í bráð. Er rétt­ar­höld­unum í New York lýkur mun hann þurfa að mæta í annan dóms­sal. Daginn sem rétt­ar­höldin hófust á Man­hattan til­kynntu sak­sókn­arar í Los Angeles að hann væri ákærður fyrir að nauðga einni konu og brjóta kyn­ferð­is­lega með öðrum hætti gegn annarri á tveggja daga tíma­bili í borg­inni árið 2013.

„Við teljum að sönn­un­ar­gögn muni sýna að sak­born­ing­ur­inn not­aði völd sín og áhrif til að ná til fórn­ar­lamba sinna og beita þau svo ofbeldi,“ sagði sak­sókn­ar­inn Jackie Lacey er hún til­kynnti um ákvörð­un­ina aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að fyrsta degir rétt­ar­hald­anna í New York-borg lauk.

Skoða fleiri mál valdamikilla manna

Lacey setti á fót aðgerða­hóp árið 2017 sem hafði það hlut­verk að fara ofan í saumana á meintum kyn­ferð­is­brotum þekktra og valda­mik­illa manna í Los Angeles, mekka kvik­mynda­iðn­að­ar­ins í Banda­ríkj­unum. Aðgerð­ar­hóp­ur­inn hefur skoðað fjöru­tíu slík mál en aðeins eitt þeirra hefur enn sem komið er leitt til ákæru. Mál Harvey Weinstein.

Ekki er búist við því að kvik­mynda­fram­leið­and­inn setj­ist sjálfur í vitna­stúk­una í rétt­ar­höld­unum í New York. Þau munu að öllum lík­indum standa yfir í tvo mán­uði.

Verði hann sak­felldur gæti hann átt lífs­tíð­ar­fang­els­is­dóm yfir höfði sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár