Harvey Weinstein fundinn sekur

Kviðdómur í New York hefur sakfellt Harvey Weinstein fyrir kynferðis­brot.

Harvey Weinstein
Harvey Weinstein Mynd: EPA

Kvikmynda­fram­leiðandinn Harvey Weinstein hefur verið fundinn sekur um kynferðis­brot í tveimur liðum en kviðdómur við dómstól í New York í Banda­ríkjunum komst að þessari niður­stöðu í dag. Það tók kviðdóm fimm daga að komast að niður­stöðu.

Ákæran var í fimm liðum. Hann var sakaður um að hafa brotið gegn tveimur konum, ákærður fyrir tvær nauðganir og önnur kynferðis­brot sem og kynferðis­lega misneytingu, þ.e. að hafa nýtt sér yfirburða­stöðu sína til að koma fram vilja sínum. Hann var sýknaður af alvarlegustu brotunum.

Harvey Weinstein er 67 ára. Hann stofnaði kvikmynda­fyrirtækið Miramax ásamt bróður sínum og fram­leiddi fjölda sjónvarps­þátta og stór­myndir á borð við Pulp Fiction og Shakespeare in Love.

Afhjúpunin hófst með birtingu greina í New York Times og New Yorker haustið 2017. Fram stigu konur, þekktar leikkonur meðal annars, sem greindu frá ósæmilegri hegðun hans og meintum ofbeldis­brotum.

Hver frásögnin á fætur annarri rataði í fjölmiðla. Þær voru flestar á sama veg: Weinstein var vingjarnlegur, ráðagóður og lofaði að hjálpa þeim á frama­brautinni. En sú hjálp var ekki ókeypis, beint eða óbeint gaf hann það í skyn að kynferðis­legir greiðar væru það gjald sem yrði að greiða. „Þú ert svo æðisleg, ég réð bara ekki við mig,“ á hann að hafa sagt við eina konuna sem varð fyrir barðinu á honum.

Hann gekk mislangt gagnvart þeim. Sumar þeirra saka hann um nauðgun og önnur kynferðis­brot. Aðrar um kynferðis­lega áreitni af ýmsu tagi.

Fréttirnar mörkuðu stórkostleg tímamót; upphaf metoo-byltingarinnar. Upphafið er rakið til leik­konunnar Alyssu Milano sem kvatti konur sem orðið hefðu fyrir áreitni og ofbeldi að skrifa „me too“ á samfélags­miðla.

Hægt að lesa ítarlega umfjöllun Kjarnans um málið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár