Á myndinni hér að ofan má sjá Shirley Temple, barnastjörnuna alkunnu sem lést fyrir tveimur árum. Hún fæddist árið 1928 og byrjaði að koma fram í kvikmyndum þegar hún var aðeins þriggja ára. Áður en hún náði táningsaldri hafði hún leikið í fjölda mjög vinsælla mynda og með sína frægu slöngulokka varð hún ímynd hins saklausa og fagra stúlkubarns.
Það merkilega var hins vegar að þessi „erki-stúlka“ hét í rauninni strákanafni.
Shirley var nefnilega karlmannsnafn á Bretlandi allt þar til um miðja 19. öld en þá skipti nafnið í einni svipan um kyn - ef svo má segja.
Og hægt er að rekja nákvæmlega hvernig það gerðist.
Charlotte hét ein hinna frægu Brontë-systra sem gerðu garðinn frægan í enskum bókmenntum á 19. öld. Þær voru þrjár og nú á dögum er Anne minnst þekkt, en Emily Brontë er fræg fyrir bókina Wuthering Heights eða Fýkur yfir hæðir - og kunnasta bók Charlotte er Jane Eyre sem kom út 1847.
Tveim árum eftir að Charlotte sendi frá sér Jane Eyre gaf hún út skáldsöguna Shirley.
Þar segir frá konu að nafni Shirley, hún hefur erft heilmikil auðæfi og lætur vel að reka bissniss, en er um leið lífleg og góðfús og sífellt á höttunum eftir leiðum til að hjálpa öðru fólki.
En hún ber karlmannsnafnið Shirley vegna þess að faðir hennar hafði þráð að eignast son sem skyldi taka við auðæfum hans. En þegar það gekk ekki en hann eignaðist loksins dóttur, þá skírði hann bara dótturina því fremur sjaldgæfa nafni sem hann hafði ætlað syni sínum.
Sem sé Shirley.
Þótt skáldsagan Shirley sé ekki víðlesin nútildags, þá varð hún vinsæl á sínum tíma. Og Shirley þótti svo skemmtileg persóna að brátt voru allir búnir að gleyma því að nafnið hennar var karlmannsnafn.
Og síðan hefur Shirley eingöngu verið notað sem kvenmannsnafn í enskumælandi löndum - eins og vita góða konur allt frá Shirley Maclaine til Shirley Williams og Shirley Bassey.
Að ekki sé minnst á Shirley Temple.
Athugasemdir