Það væri að bera í bakkafullan lækinn að minnast David Bowie eitthvað að ráði á þessum vettvangi, en hjá því verður þó ekki alveg komist.
Á netinu er að finna brot úr breskum skemmtiþætti frá árinu 1964 en þá var Davy Jones, eins og hann kallaðist ennþá, sautján ára gamall. Og hann kom þarna fram sem talsmaður félags sem kallað er "Society for the Prevention of Cruelty to Long-haired Men" sem þýðir orðrétt Félag til að koma í veg fyrir grimmd í garð síðhærðra karlmanna.
Ekki er ljóst hvort þetta félag hafði verið stofnað í raun og veru, eða hvort þetta var allt saman tómt grín, en viðtal sjónvarpsmannsins við hinn unga Davy Jones er altént á léttu nótunum.
Sjónvarpsmaðurinn spyr: „Hverjir eru það nákvæmlega sem sýna ykkur grimmd?“
Þá svarar hinn ungi og síðhærði Jones, grafalvarlegur í bragði:
„Ja, við erum allir frekar umburðarlyndir en síðustu árin höfum við þurft að þola sneiðar eins og „elskan“ og „á ég að halda á veskinu þínu?“ sem slett er framan í okkur. Og þessu verður bara að ljúka.“
Þá spyr sjónvarpsmaðurinn og vísar bæði til Davy Jones og félaga hans tveggja sem sitja við hlið hans:
„Kemur það ykkur á óvart að fá svona sneiðar, ég meina þið eruð nú ansi síðhærðir, er það ekki?“
Ungi maðurinn svarar:
„Jú, rétt er það, við erum með ansi sítt hár, og ég kann vel við það, og við sjáum ekki af hverju annað fólk ætti að ofsækja okkur vegna þess.“
Félagi Jones er svo spurður hvernig félagið ætli að haga baráttu sinni og sá boðar kröfugöngur til stuðnings síðu hári, en Jones við hlið skýtur einhverju inn í sem Bowie-sérfræðingar verða eflaust ekki í vandræðum með að skilja.
Hérna má sjá þetta stutta myndbrot úr skemmtiþættinum:
Athugasemdir