Áðan var athygli mín vakin á því að á Facebook-síðu sem helguð er ljósmyndum úr síðari heimsstyrjöldinni hefðu nýlega birst tugir ljósmynda frá bandaríska hernum á Íslandi.
Einna skemmtilegust fannst mér sú mynd sem birtist hér að ofan.
Ég fæ ekki betur séð en þarna sé Sveinn Björnsson forseti að skoða loftvarnarbyssu ásamt bandarískum herforingja.
Gaman væri að heyra frá sérfræðingum í stríðsárunum. Er þetta ekki örugglega Sveinn? Og hver skyldi Bandaríkjamaðurinn vera?
Athugasemdir