Eitt af því skelfilegasta við fyrri heimsstyrjöldina, sem stóð sem hæst fyrir 100 árum, var notkun á eiturgasi. Allar stórþjóðirnar sem tóku þátt í stríðinu notuðu eiturgas í einhverjum mæli en Þjóðverjar voru reyndar stórtækastir.
Í breska blaðinu Observer frá 1918 rakst ég á frásögn og teikningu sem sem sýnir hve eiturgasið var talið eðlilegur hluti af stríðsrekstrinum.
Bandaríkjamenn hófu þátttöku í stríðinu árið 1917 en það tók þá tímann sinn að þjálfa upp hersveitir og koma þeim til Evrópu. Til að byrja með breytti koma Bandaríkjamanna litlu. Bandarískar hersveitir komu sér einfaldlega fyrir í skotgröfunum á vesturvígstöðvunum og hófu þátttöku í þeim hjaðningavígum sem þar höfðu staðið árum saman.
Meðal annars með notkun á eiturgasi.
Nema hvað bandarísku hersveitirnar áttu engar birgðir af fallbyssukúlum með eiturgasi.
Í júlí 1918 birti Observer sem sé þessa teikningu Alban B. Butlers höfuðsmanns í fyrstu hersveit Bandaríkjanna á vesturvígstöðvunum. Hún sýnir kæti hermannanna í hersveitinni þegar þeir fengu þann „heiður“ að skjóta fyrstu eiturgaskúlum Bandaríkjamanna í stríðinu.
Ekki er þó allt sem sýnist.
Í nokkra mánuði hafði fyrsta hersveitin kúrt í skotgröfum sínum og mátt sætta sig við eiturgasárásir Þjóðverja án þess að geta svarað í sömu mynt. Bandaríkjamennirnir vissu að nágrannar þeirra í skotgröfunum, Frakkar, áttu tiltekið magn af eiturgaskúlum, en Frakkar tímdu ekki að nota þær.
Þeir óttuðust stórsókn Þjóðverja og vildu eiga eiturgasið upp í erminni.
Bandaríkjamenn urðu súrir í bragði yfir því að fá ekki að prófa kúlurnar, sem voru fullar af sinnepsgasi. Þá teiknaði Butler þessa mynd og henni var síðan komið í umferð meðal franskra herforingja.
Þegar Frakkar sáu myndina hrifust þeir af hinni einlægu þrá Bandaríkjamanna eftir eiturgasi.
Þeir létu sig því hafa það að afhenda fyrstu bandarísku hersveitinni 6.000 kúlur með sinnepsgasi.
Og Bandaríkjamenn urðu svo himinglaðir að þeir byrjuðu eiturgashríð gegn Þjóðverjum á sjálfan þjóðhátíðardag sinn, 4. júlí 1918.
Því nú þóttust þeir menn með mönnum að geta farið að spúa eiturgasi yfir óvini sína.
Athugasemdir