Bandaríski leikarinn Leonardo DiCaprio hefur lengi verið á höttunum eftir Óskarsverðlaunum og hreppti þau loks í ár fyrir leik sinn í mynd Alejandro Inarritu, The Revenant eða Hinn afturgengni.
Eins og flestum mun vera kunnugt er sú mynd byggð á sönnum atburðum en þar segir frá Hugh nokkrum Glass sem lenti í miklum mannraunum árið 1823.
Glass fæddist um það bil árið 1783 í Pennsylvaníu. Foreldarar hans voru Írar sem höfðu tekið sér far yfir Atlantshafið og sest að í nýja heiminum. Fátt er vitað um ævi Glass framan af, nema hvað sögur herma að hann verið í áhöfn skips sem tekið var af sjóræningjum í Mexíkóflóa þegar hann var um þrítugt. Hann hafi svo neyðst til að ganga í lið með sjóræningjum og stundað sjórán í nokkur ár.
Þegar Glass var laus úr þeirri prísund fór að flakka um skógana þar sem nú eru ríkin Missouri, Minnesota og Dakota. Hann mun hafa gengið að eiga konu af kyni innfæddra. Ekki er mikið vitað um það hjónaband, né hvað um konuna varð. Sú forsaga sem mun vera búin til kringum hjónabandið í bíómyndinni The Revenant mun hins vegar vera algjör tilbúningur.
Árið 1823 tók Glass svo þátt í leiðangri til að kanna slóðir upp með Missouri-ánni. Sérstaklega var ætlunin að kanna grundvöll loðdýraveiða á svæðinu.
Ýmsar hættur steðjuðu að í ferðinni, til dæmis urðu leiðangursmenn fyrir árásum stríðsmanna af ætt Arikara, sem vildu ekki sjá ásókn hvíta mannsins inn á lendur þeirra.
Glass varð síðan fyrir árásar birnu sem hann gekk fram á þar sem hún var að sinna húnum sínum tveim. Birnan var hin grimmasta og beit og klóraði Glass. Hann kallaði á hjálp og tveir samferðamanna hans komu þjótandi og í sameiningu tókst þeim að drepa birnuna. Þá hafði Glass hins vegar misst meðvitund, enda mjög illa særður.
Leiðangursmenn töldu einsýnt að Glass myndi deyja af sárum sínum. Stjórnandinn bað um tvo sjálfboðaliða til að sitja yfir honum þar til hann andaðist og grafa hann þá. Menn að nafni Fitzgerald og Bridger gáfu sig fram. Þeir fóru svo að grafa gröf fyrir hið væntanlega lík en aðrir leiðangursmenn héldu áfram ferð sinni.
Fljótlega yfirgáfu Fitzgerald og Bridger þó hinn helsærða Glass. Ekki hvarflaði annað að þeim en hann væri dauðvona svo kannski fannst þeim ekki skipta máli hvort þeir sætu yfir honum eða ekki. Sjálfir sögðu þeir seinna að hópur Arikara-manna hefði ráðist að þeim og þeir þá lagt á flótta. Það gæti vel verið satt. Með sér á flóttanum tóku þeir riffil Glass - sem mun hafa verið mikil gersemi - og allar vistir. Þeir eltu svo uppi hina leiðangursmennina og sögðu þeim að Glass væri dáinn.
En Glass dó ekki. Þótt helsærður væri rankaði hann að lokum við sér og tók að skríða til byggða. Það tók hann sex vikur enda um óbyggðir að fara og hann var mjög illa leikinn. Hann skreið mörg hundruð kílómetra og miklar sögur sköpuðust um afrek hans og ótrúlegt þótti að hann hafi lifað þetta af. Sagt er að hann hafi látið maðka í sárum sínum óáreitta svo þeir hreinsuðu holdið. Aðrar sögur herma að björn hafi sleikt sár hans og hreinsað þau.
Einnig gengu sögur um að Glass hefði orðið fyrir árás úlfa, frumbyggjar hefðu saumað saman skinn og lagt á bak hans til að hlífa sárum hans, og svo framvegis. Erfitt mun vera að greina á milli þeirra sagna af þessu ferðalagi sem byggðar eru á raunveruleikanum og annarra sem urðu til þegar sagan var endurtekin sínkt og heilagt við ótal varðelda, bæði af Glass og síðan öðrum.
Að lokum náði Glass til byggða. Ótrúlegt nokk náði hann sér að fullu. Hann elti uppi þá Bridger og Fitzgerald og virðist hafa ætlað að drepa þá til að hefna þess að hann væri skilinn eftir, en ekki varð af því. Bridger fyrirgaf hann af því hann var svo ungur, en Fitzgerald var kominn í herinn þegar Glass náði að elta hann uppi, og svo ströng refsing hefði legið við því að drepa hermann að Glass hætti við.
En kannski langaði hann bara ekkert að drepa menn. Þá voru liðnir níu mánuðir frá því hann komst til byggða og kannski var hefndarþorstinn einfaldlega þorrinn.
Og svo telja sumir að það hafi í rauninni ekki verið hefnd sem rak hinn upprisna áfram þegar hann leitaði uppi Brigder og Fitzgerald. Heldur hafi hann verið að leita að rifflinum sínum, sem honum fannst vera hluti af sjálfum sér.
Og riffilinn fékk hann hjá Fitzgerald.
Eftir þessar raunir bjó Glass áfram á svæðinu og stundaði veiðar. Tíu árum seinna féll hann í árás Arikara-manna á hóp veiðimanna.
Enn kom riffillinn við sögu. Nokkru eftir að Glass og félagar voru drepnir komu Arikara-mennirnir að leita sér vista í virki einu, og þóttust vera af öðrum kynþætti sem var vinveittur hvítu mönnunum. Nema hvað í virkinu bar maður nokkur kennsl á riffil Glass sem einn Arikara-manna bar með sér. Þá komst allt upp og Arikara-mennirnir voru drepnir.
Mjög margir hafa hrifist af sögu Glass og notað í bækur og önnur verk, nú síðast kvikmyndina The Revenant.
Merkilegast fyrir okkur Íslendinga er að hljómsveitin Of Monsters and Men notaði söguna í lagið Six Weeks af plötunni My Head is an Animals frá árinu 2011. Hér má sjá það lag:
Athugasemdir