Hingað til hafa margir talið ófrávíkjanlegt skilyrði þess að verða forseti Bandaríkjanna að hafa verið fæddur á bandarískri grund. Donald Trump og fleiri héldu til dæmis lengi uppi miklum árásum á Barack Obama sem gengu út á að kjör hans í Hvíta húsið væri lögleysa því hann væri fæddur í Kenía. Það var að vísu rangt, Obama fæddist á Hawaii, en það hve lengi Trump gat haldið uppi þessum málflutningi gaf til kynna að margir virtust telja að ef fullyrðingarnar um fæðingu Obama utan Bandaríkjanna væru rétt, þá væri kjör Obama vissulega ólöglegt.
En nú er Ted Cruz kominn töluvert áleiðis að Hvíta húsinu þótt hann sé fæddur í Kanada. Hvernig má það vera?
Rafael Cruz heitir maður. Hann fæddist árið 1939 á Kúbu. Faðir hans hafði flust til Kúbu frá Kanaríeyjum og þar kvæntist hann innfæddri stúlku og Rafael varð til. Á uppvaxtarárum Rafaels var hægrisinnuð einræðisstjórn Batista herforingja við völd á Kúbu. Hún kúgaði andstæðinga sína grimmilega og margir risu upp til baráttu gegn henni, þar á meðal kommúnistinn Fidel Castro.
Rafael Cruz studdi uppreisnarher Castros á táningsaldri en nokkuð óljóst er hve virkur hann var. Að lokum slapp hann frá Kúbu árið 1957 eftir að embættismanni Batista hafði verið mútað. Hann fór til náms í Texas. Þegar Castro náði völdum á Kúbu 1959 var Rafael orðinn honum afhuga. Landvistarleyfi Rafaels sem námsmanns rann út 1961 en þá fékk hann pólitískt hæli í Bandaríkjunum - eins og allir Kúbumenn fengu sem ekki vildu sætta sig við yfirráð kommúnista á eyju sinni.
Rafael Cruz var góður námsmaður, hann lagði stund á stærðfræði og hafði heilmikinn áhuga á tölvutækni sem þá var aðeins að byrja að ryðja sér til rúms. Hann kvæntist og eignaðist tvær dætur en skildi svo eftir nokkur ár.
Rafael bjó næstu árin í Bandaríkjunum en virðist aldrei hafa gert gangskör að því að verða bandarískur ríkisborgari.
Árið 1967 var Rafael við störf hjá olíufyrirtæki í New Orelans. Þá kynntist hann konu að nafni Eleanor Wilson frá Delaware sem var einnig í tölvubransanum. Þau felldu hugi saman og fluttu til Kanada þar sem þau stofnuðu fyrirtæki sem aðstoðaði við olíuborun og -leit. Þau bjuggu í Calgary og Rafael Cruz dreif í að verða sér úti um kanadískan ríkisborgararétt.
Og þann 22. desember 1970 fæddist þeim Rafael og Eleanor sonurinn Rafael Edward Cruz, sem strax frá byrjun var kallaður Ted. Hann var skráður með tvöfalt ríkisfang, kanadískt og bandarískt.
Um 1975 flutti fjölskyldan til Bandaríkjanna. Rafael hafði þá orðið fyrir trúarlegri upplifun, gekk úr kaþólsku kirkjunni og gerðist prédikari á ameríska vísu. Hann hefur ævinlega talað fyrir því að stjórnskipan Bandaríkjanna taki mið af fororðningum Biblíunnar og í því andrúmslofti er Ted Cruz alinn upp.
Ted lærði lögfræði og var frábær námsmaður enda útskrifaðist hann bæði frá Princeton og Harvard, ef mér skjöplast ekki. Hann þótti svo sérlega efnilegur lögfræðingur og skaraði fram úr í mælsku- og rökræðukeppnum. Innan við þrítugt var hann kominn til starfa í herbúðum forsetaframbjóðandans George W. Bush og átti þátt í að undirbúa þann málarekstur sem réði því að Bush náði að „stela“ forsetaembættinu af Al Gore 1999.
Hann flutti svo til Texas og starfaði þar fyrir hið opinbera til 2008 þegar hann gekk til liðs við lögfræðistofu eina í Houston. Hann þótti ævinlega framúrskarandi flinkur málafylgjumaður. Árið 2013 var hann kjörinn í öldungadeild Bandaríkjaþings.
Það sama ár benti blað í Dallas á að Cruz hefði tvöfalt ríkisfang. Hann sagðist þá ekki hafa vitað af því. Við fæðingu hans í Kanada hefði móðir hans talið að sækja þyrfti sérstaklega um kanadískan ríkisborgararétt fyrir soninn, en raunin hefði verið sú að þann borgararétt hefði hann öðlast sjálfkrafa. Auðvitað er með ólíkindum að slíkur lagahaukur sem Cruz hafi ekki vitað af því að hann væri kanadískur ríkisborgari, en engin leið er að afsanna þessi orð hans.
Og Ted Cruz afsalaði sér nú sínum kanadíska ríkisborgararétti og er kominn í forsetaframboð.
Í stjórnarskrá Bandaríkjanna stendur að aðeins „natural born Citizen“ geti orðið forseti. Það hefur oftast verið túlkað svo að þetta þýði að forseti verði að vera fæddur í Bandaríkjunum. Þegar andstæðingar Cruz bentu á þetta svaraði hann á móti að orðalagið þýddi aðeins að forseti þyrfti að vera fæddur bandarískur ríkisborgari - en hvergi væri kveðið á um hvar hann þyrfti að vera fæddur.
Og hann hefði vissulega orðið bandarískur ríkisborgari strax við fæðingu, þar sem móðir hans hafi alla tíð verið ríkisborgari Bandaríkjanna þótt búsett í Kanada væri. Á þessar röksemdir virðast menn ætla að fallast, meira að segja Donald Trump sem eyddi ótrúlegri orku í að reyna að sanna að kjör Barack Obama væri ólöglegt, þar eð hann hefði fæðst í Kenía. (Sem hann gerði reyndar ekki.)
Mál af þessu tagi hafa reyndar komið til umræðu áður - og svo merkilegt sem það er, þá var andstæðingur Obama í forsetakjörinu 2008 reyndar fæddur utan Bandaríkjanna. John McCain öldungadeildarþingmaður fæddist í Panama þar sem faðir hans var dáti í amerískri herstöð. Ekki amaðist Trump þó við McCain.
Hér má svo sjá hugmyndir Ted Cruz um hvað er skemmtilegt í lífinu:
Athugasemdir