Eftir að enska úrvalsdeildin var stofnuð fyrir rúmum tveim áratugum hefur þróunin verið sú að örfá stórlið hafa einokað þar efstu sætin. Fyrst voru það Manchester United, Arsenal, Liverpool og Chelsea - en þegar Liverpool tók að hraka fyrir hálfum áratug kom Manchester City í staðinn.
Tuttugu ár eru síðan eitthvert annað lið en þessi vann enska meistaratitilinn, en það var Blackburn Rovers leiktíðina 1994-1995. Og eftir því sem stórliðin sópuðu til sín meiri peningum virtist æ ólíklegra að eitthvert annað lið gæti ógnað stöðu þeirra í alvöru.
Þeim mun skemmtilegra er að algjört smálið er nú þessi jólin í efsta sætinu í ensku úrvalsdeildinni og hefur í bili skotið stórliðunum með allra sína milljarða ref fyrir rass.
Þetta er Leicester City, lið frá borg sem telur næstum nákvæmlega jafn marga íbúa og Ísland eða um 330.000.
Leicester er fremur róleg borg nánast í miðju Englandi. Tæpra þriggja tíma ferðalag er með bíl til London í suðri, en Birmingham er í klukkutíma fjarlægð í vesturátt. Rétt rúmlega tveggja tíma ferðalag er til Liverpool og Manchester í norðri eða norðvestri.
Fyrst spurðist til Leicester þegar Rómverjar settu þar upp virkisborg um miðjan fyrstu öld eftir Krist, en líklega hefur áður verið þar byggð keltneskra frumbyggja. Eftir að Rómverjar hurfu á braut í blábyrjun fimmtu aldar lagðist byggð í Leicester að mestu af í nokkrar aldir.
Margvísleg ummerki eru þó enn á svæðinu um rómverska byggð og til dæmis munu enn vera í miðborg Leicester hlaðnar gangstéttar frá tímum Rómverja.
Laust fyrir árið 1000 var þar aftur komin svo mikil byggð að þar var reist kirkja og biskupsstóll var settur þar upp um skeið.
Árið 1485 var háð í næsta nágrenni borgarinnar fræg orrusta sem var hluti af borgarastríðum Rósastríðanna. Þar beið Ríkarður III lægri hlut fyrir Hinriki VII og fékk Ríkarður bana. Hann var svo grafinn í Leicester og fannst gröf hans þar undir bílastæði fyrir fáeinum misserum.
Byggðin í Leicester óx mjög hægt og rólega og það var ekki fyrr en um það sem iðnbylting var að hefjast undir lokin á 18. öld og í upphafi 19. aldar sem smábærinn Leicester tók að breytast í borg. Fjölmargar verksmiðjur voru settar upp. Leicester fór fremur vel út úr heimskreppunni miklu á fjórða áratug 20. aldar og árið 1936 var upplýst í skýrslu Þjóðabandalagsins að Leicester væri næst ríkasta borg í Evrópu, miðað við höfðatölu.
Borgin slapp við loftárásir í seinni heimsstyrjöld, enda var þar lítill sem enginn þungaiðnaður. Margir innflytjendur settust þar að, fyrst Pólverjar á flótta undan kommúnistastjórninni sem Sovétmenn tróðu upp á land þeirra eftir styrjöldina en síðan fólk frá öðrum þjóðum, ekki síst Indlandi og Pakistan. Eftir að Idi Amin einræðisherra Uganda ákvað að reka alla íbúa af asískum uppruna frá landi sínu í upphafi áttunda áratugarins, þá steig borgarstjórn Leicester það óvenjulega og umdeilda skref að auglýsa í blöðum í Uganda að Leicester væri ekki heppilegur áfangastaður fyrir þá brottreknu.
Borgarstjórnin hélt því fram að auglýsingarnar stöfuðu einungis af áhyggjum hennar af því að borgarkerfið réði ekki við þúsundir nýrra íbúa á einu bretti, en margir fullyrtu að ósköp gamalkunnur rasismi hefði legið að baki.
Altént skiluðu auglýsingarnar ekki öðrum árangri en þeim að fjöldi Asíubúa í Uganda frétti nú í fyrsta sinn af tilveru Leicester og þangað flykktust því þeir sem Idi Amin rak á brott.
Nú eru um 40 prósent íbúa í Leicester af erlendu bergi brotin. Sambúð fólk hefur gengið vel og sjaldan komið til stórvægilegra vandræða.
Nokkuð af frægu fólk er frá Leicester eða hefur búið þar um lengri eða skemmri tíma. Þar má nefna David Attenborough sjónvarpsmann og Richard leikara bróður hans, og samsæriskenningasmiðinn David Icke. Sá litríki, óþekki leikritahöfundur Joe Orton var frá Leicester. Sue Townsend höfundur vinsælla dagbóka sem Adrian Mole á að hafa skrifað, hún er og frá Leicester og þar gerast bækur hennar.
Fótboltaliðið sem nú gerir garðinn svo frægan, Leicester City, var stofnað 1888. Það hefur yfirleitt rokkað milli efstu og næstefstu deildar á Englandi og oft náð prýðilegum árangri. Einu sinni náði liðið öðru sæti í efstu deild, en það er vissulega langt síðan, þetta var 1928-1929. Liðið hefur hins vegar unnið næstefstu deildina sjö sinnum, og á met á því sviði ásamt Manchester City. Þá hefur Leicester City unnið deildabikarinn þrisvar, síðast árið 2000, og fjórum sinnum komist í úrslitaleik enska bikarsins, síðast 1969.
Ekkert lið hefur spilað jafn oft til úrslita um bikarinn án þess að vinna.
Frægustu fótboltakarlarnir sem leikið hafa með Leicester eru vitaskuld Gordon Banks markvörður sem varð heimsmeistari árið 1966 meðan hann lék með Leicester, Peter Shilton markvörður sem hóf feril sinn með Leicester City 1966 og hefur leikið landsleiki fyrir England en nokkur annar, og svo markamaskínan Gary Lineker sem spilaði fyrir Leicester 1977-1985.
Athugasemdir