Risatogarinn Heineste kyrrsettur

Yfirvöld í Namibíu hafa ákveðið að kyrrsetja risa­togarann Heineste sem er í eigu félags í Namibíu sem Samherji á hlut í, samkvæmt RÚV.

Yfirvöld í Namibíu hafa ákveðið að kyrrsetja risa­togarann Heineste sem er í eigu félags í Namibíu sem Samherji á hlut í, samkvæmt úrskurði dómara í dag.

Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag.

Arngrímur Brynjólfsson, skip­stjóri Heineste, var hand­tekinn og leiddur fyrir dómara í gær. Kyrr­setningin virðist gerð til að hægt sé að leita í skipinu, samkvæmt RÚV.

Arngrímur sendi fjöl­miðlum yfir­lýsingu í gær þar sem hann hafnaði því að hafa gerst sekur um brot. Hann sagði það hafa komið sé á óvart að vera sakaður um að hafa siglt skipi inn á lokað svæði. Hann þurfti að gista fanga­geymslur eina nótt. Arngrímur var sakaður um að hafa verið við veiðar á hrygningar­svæði undan ströndum Namibíu. Honum var gert að leggja inn vega­bréfið sitt og var máli hans frestað fram í lok janúar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár