Skipstjóri Samherja: Kemur á óvart að vera sakaður um brot

Arngrímur Brynjólfsson var hand­tekinn í Namibíu. Hann segist ekki vita til þess að skipið sem hann stýrir hafi veitt ólöglega.

Arngrímur Brynjólfsson, skip­stjóri Samherja á skipinu Heinaste, segir í yfir­lýsingu að það hafi komið á óvart að vera sakaður um að hafa siglt skipi inn á bannsvæði úti fyrir ströndum Namibíu.

Þetta kemur fram í yfir­lýsingu sem birt er á vef RÚV, en eins og greint var frá á vef Kjarnans í morgun var Arngrímur hand­tekinn og færður fyrir dóma, en hann var sakaður um að hafa stýrt skipinu inn á hrygningar­svæði þar sem bannað var að sigla.

Í yfir­lýsingunni segist Arngrímur hafa verið sjómaður í 49 ár og þar af 34 ár sem skip­stjóri, og hann hafi aldrei verið sakaður um neitt misjafnt á öllum sínum ferli. Því hafi þetta komið á óvart. Auk þess var þetta síðasta ferð hans sem skip­stjóri, og því vonbrigði að málin hafi farið á þennan veg.

„Skipið Heinaste kláraði löndun í fyrradag. Eftir að skipið hafði klárað löndun var ég boðaður til fundar við Fiskistofu Namibíu sem stýrir veiðum í landinu. Þar komu fram ásakanir þess efnis að skipið hefði farið inná á lokað svæði til veiða.

Ég vill taka fram að á mínum 49 ára ferli til sjós, þar af yfir 34 ár sem skip­stjóri, hef ég aldrei verið sakaður um hafa brotið af mér í starfi á neinn hátt. Þessi veiðiferð átti að vera sú síðasta á ferlinum og eru það mér mikil vonbrigði að verða fyrir þessum ásökunum nú.

Mér vitandi hefur skipið ekki verið sakað um brot af þessu tagi áður og kemur ásökunin sjálfum mér á óvart enda er þess gætt af kostgæfni að veiða aldrei á þeim svæðum sem eru lokuð hverju sinni.

Allajafna þegar skip er sakað um að hafa veitt innan lokaðs svæðis í lögsögu Namibíu er skip­stjóri leiddur fyrir dómara og sleppt samdægurs. Vonast ég til að það taki ekki langan tíma að leiða málið til lykta og eftir því sem ég kemst næst hefur öllum málum af þessu tagi lokið með sektar­greiðslu teljist það sannað að skip hafi í raun stundað veiðar innan lokaðs svæðis.

Langt var liðið á daginn þegar samtalið við Fiskistofu fór fram. Það tókst því ekki að koma málinu fyrir dómara samdægurs og þurfti ég því að gista fanga­geymslur eina nótt. Í gærmorgun fór málið svo fyrir dómara, mér var sleppt og vonast ég til þess að málið leysist endanlega innan skamms,“ segir Arngrímur í yfir­lýsingunni, sem birt er í heild á vef RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár