Sexmenningarnir í gæsluvarðhaldi til 20. febrúar

Þeir aðilar sem hand­teknir voru í síðustu viku í tengslum við spillingu og mútur varðandi úthlutun afla­heim­ilda í Namib­­íu hafa dregið beiðni sína um lausn gegn tryggingu til baka.

Sexmenningarnir leiddir fyrir rétt fyrir helgi.
Sex­menn­ing­arnir leiddir fyrir rétt fyrir helgi. Mynd: Skjáskot

Sexmenningarnir Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­mála­ráð­herra Namibíu, Bern­­ard Esau, fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra landsins, James Hatuikulipi, Ricardo Gusta­vo, Tam­­son Hatuikulipi og Pius Mwatul­elo hafa dregið til baka beiðni sína um lausn gegn tryggingu. Þetta kemur fram hjá frétta­miðlinum, The Namibian, í dag.

Samkvæmt miðlinum verða þeir því áfram í gæslu­varðhaldi til 20. febrúar næst­komandi.

Afgreiðslu málsins var tvívegis frestað fyrir helgi en sex­menn­ing­arnir átt­u að koma fyrir dóm­ara síð­asta fimmtu­dag en mál­inu var þá frestað til föstu­dags til að þeir fengju ráð­rúm til þess að ráð­færa sig við lög­menn sína. Á föstu­dag­inn greind­i frétta­mið­il­inn The Namibi­an síðan frá því að að þeir kæmu ekki fyrir dóm­ara þann dag­inn þar sem lög­menn þeirra, þeir Mike Hellens og Dawie Jou­bert frá Suð­ur­-Afr­íku, væru ekki með atvinnu­leyfi í Namibíu og gætu því ekki tekið málið að sér.

Eins og fram hefur komið í fréttum þá voru sex­­menn­ing­­arnir hand­­teknir í síðustu viku í tengslum við rann­­­sókn á Sam­herj­­­a­skjöl­unum og spill­ingu er teng­ist úthlutun afla­heim­ilda í Namib­­­íu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár