Al Jazeera birtir umfjöllun um Samherjamálið

Í umfjöllun Al Jazeera rekur fjöl­miðillinn atburða­rásina í kringum Samherja­skjölin og talar meðal annars við Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrara og fyrr­verandi framkvæmda­stjóra Samherja í Namibíu.

Úr umfjöllun Al Jazeera
Úr umfjöllun Al Jazeera Mynd: Skjáskot/Al Jazeera

Al Jazeera hefur nú birt umfjöllun sína um Samherja­málið og meinta mútuþegn og spillingu í Namibíu. Í henni rekur fjöl­miðillinn atburða­rásina og talar meðal annars við Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrara og fyrr­verandi framkvæmda­stjóra Samherja í Namibíu.

Í umfjölluninni má sjá rannsóknar­blaðamann fara á fund hátt­settra namibíska embættis­manna til þess að kaupa fisk­veiðikvóta í Namibíu en það átti að gerast í samstarfi við namibísku útgerðina Omualu. Blaða­maðurinn þóttist vera kínverskur fjár­festir en Bernhard Esau, fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra, krafðist 200 þúsund dala framlags frá honum handa SWAPO-flokknum vegna viðskiptanna. Esau þáði jafnframt iPhone snjall­síma frá blaða­manni Al Jazeera.

Forstjóri Omualu, Sacky Kadhila, átti að leiðbeina fjár­festinum til þess að koma peningunum hreinum til SWAPO-flokksins undir því yfirskini að um erlenda fjár­festingu í fasteignum væri að ræða.

Fjár­framlögin áttu jafnframt að fara í gegnum banka­reikning Sisa Namandje, sem er hátt­settur í SWAPO-flokknum, en hann hefur verið lögmaður allra namibískra forseta frá því að Namibía varð sjálfstætt ríki árið 1990.

Hægt er að sjá umfjöllun Al Jazeera hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár