Mál sexmenninganna tekið fyrir í dag

Sexmenn­ing­arnir sem grunaðir eru um spillingu, fjársvik og peninga­þvætti í tengslum við Samherja­málið í Namibíu koma fyrir dómara í dag. Þar verður tekin fyrir beiðni þeirra um lausn gegn tryggingu en tvívegis hefur þurft að fresta afgreiðslu málsins.

Beiðni um lausn úr varðhaldi gegn tryggingu sex­menn­ing­anna Sacky Shang­hala, Bern­ard Esau, James Hatuikulipi, Ricardo Gusta­vo, Tam­son Hatuikulipi og Pius Mwatul­elo verður tekin fyrir í dag. Afgreiðslu málsins hefur tvívegis verið frestað.

Sexmenningarnir áttu að koma fyrir dómara síðasta fimmtudag en málinu var þá frestað til föstudags til að mennirnir fengju ráðrúm til þess að ráðfæra sig við lögmenn sína. Á föstu­daginn greindi frétta­miðilinn The Namibi­an síðan frá því að að þeir kæmu ekki fyrir dómara þann daginn þar sem lögmenn þeirra, þeir Mike Hellens og Dawie Joubert frá Suður-Afríku, væru ekki með atvinnu­leyfi í Namibíu og gætu því ekki tekið málið að sér.

Eins og fram hefur komið í fréttum þá voru sex­menn­ing­arnir hand­teknir í vikunni í tengslum við rann­­sókn á Sam­herj­­a­skjöl­unum og spill­ingu er teng­ist úthlutun afla­heim­ilda í Namib­­íu. Þeir eiga yfir höfði sér ákæru fyrir skipu­lagða glæp­a­starf­semi.

Að­il­arnir sem um ræðir eru Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­mála­ráð­herra, James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­ar­­for­­maður namibísku rík­­is­út­­­gerð­­ar­innar Fis­hcor í síð­­­ustu viku, Bern­hardt Esau, sem sagði af sér sem sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ráð­herra, Tam­­son 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­sonur Esau sem jafn­­framt er frændi James Hatuikulipi, Ricardo Gusta­vo, sam­­starfs­­maður hans og Pius 'Taxa' Mwa­telu­lo, sem einnig teng­ist James Hatuikulipi fjöl­­skyld­u­­bönd­­um.

Yfir­­völd í Namib­­íu, Íslandi og Nor­egi rann­saka nú ýmsa þætti sem tengj­­ast starf­­semi Sam­herja í Namib­­íu, og eru þar á meðal upp­­lýs­ingar um mút­u­greiðsl­­ur, skattaund­an­­skot og pen­inga­þvætt­i.

Eng­inn hefur enn fengið stöðu grun­aðs manns á Íslandi vegna þessa, og hafa ekki farið fram neinar for­m­­legar yfir­­heyrslur vegna rann­­sóknar mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár