Ómíkron „breiðist út á ljóshraða“

Neyðar­ástandi hefur verið lýst yfir í London vegna ómíkron, nýjasta afbrigðis kórunu­veirunnar. Tvö ár eru um þessar mundir frá því að kórónu­veiran fór að láta á sér kræla en veiran er í hröðum vexti bæði í Evrópu og Banda­ríkjunum.

Hertari sóttvarnaaðgerðum vegna ómíkron-afbrigðisins var mótmælt í London í dag.
Hertari sótt­varna­að­gerðum vegna ómíkron-afbrigð­is­ins var mót­mælt í London í dag. Mynd: EPA

Neyðar­ástandi hefur verið lýst yfir í London vegna ómíkron-afbrigðisins sem hefur náð mikilli útbreiðslu þar í landi. Tíu þúsund ný ómíkron-tilfelli greindust í borginni í dag, til viðbótar við þau 15 þúsund tilfelli sem greindust í gær. Dagleg smit eru um 90 þúsund í Bretlandi þessa dagana og er met í fjölda daglegra smita slegið á hverjum degi.

Sadiq Khan, borgar­stjóri London, segist vera gríðar­lega áhyggju­fullur vegna stöðunnar og hafi neyðar­ástandi verið lýst yfir til að undir­strika alvarleika faraldursins á þessum tíma­punkti. 1.534 liggja inni á spítölum í London vegna veirunnar og eru það 28,6 prósent fleiri en fyrir viku. Hópur fólks kom saman í Westminster í dag til að mótmæla frekari takmörkunum og slösuðust nokkrir lögreglu­menn minni háttar í mótmælunum.

Jean Castex, forsætis­ráðherra Frakk­lands, tilkynnti um hertar sóttvarna­reglur í Frakk­landi í gærkvöldi og sagði hann ómíkron-afbrigðið „breiðast út á ljóshraða“ og varaði við því að veiran verði líklega orðin ráðandi í Frakk­landi í byrjun í upphafi næsta árs. Fleiri eru þeirrar skoðunar, meðal annars Kári Stef­ánsson, forstjóri íslenskrar erfða­greiningar, sem sagði í samtali við RÚV í dag að gera megi ráð fyrir ómíkron-bylgju hér á landi í janúar. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnuninni hefur ómíkron-afbrigðið greinst í að minnsta kosti 89 löndum.

Yfirvöld víða í Evrópu hafa gripið til aukinna takmarkana í þeim tilgangi að hemja útbreiðslu veirunnar. Auknar takmarkanir hafa til dæmis tekið gildi í Þýska­landi, Hollandi og á Írlandi. Yfirvöld í Frakk­landi lokuðu landa­mærum sínum að Bretlandi í gærkvöldi fyrir ferða­mönnum og þeim sem ferðast vegna vinnu. Langar raðir mynduðust við Dover-höfnina og við lestar­stöðvar í gærkvöldi vegna þessa. Castex tilkynnti jafnframt um átak í bólu­setningum sem mun hefjast á nýju ári. Nokkrar milljónir Frakka eru óbólusettir og segir Castex það óásættanlegt þar sem það stofni lífi heillar þjóðar í hættu.

Í Hollandi hefur það komið til tals að setja á strangt útgöngu­bann. Mark Rutte, forsætis­ráðherra Hollands, tekur í sama streng og Castex þar sem hann telur að ómíkron-afbrigðið gæti orðið ráðandi í janúar. Barir, veitinga­staðir og flestar verslanir hafa þurft að loka klukkan 17 en stefnt var að því að rýmka afgreiðslu­tíma fyrir jól. Nú hefur verið horfið frá því og munu gildandi takmarkanir verða að minnsta kosti til 14. janúar.

Ómíkron eykur vanda sýnatöku í Bandaríkjunum

Ómíkron-afbrigðið hefur einnig sett svip sinn á þróun faraldursins í Banda­ríkjunum, einna helst með auknu álagi í sýnatökum. Eitt af kosninga­loforðum Joes Biden Bandaríkja­forseta var að gera sýnatökur ódýrar og aðgengilegar öllum. Sýna­tökustaðir ná hins vegar ekki að sinna eftir­spurn í aðdrag­anda jóla, þegar margir fara í hraðpróf í kj og nýs afbrigðis.

Sýnataka hefur gengið brösug­lega frá upphafi faraldursins í Banda­ríkjunum og hefur ríkis­stjórn Biden ekki tekist sem skyldi að mæta eftir­spurn. Á sama tíma hefur tilfellum fjölgað með tilkomu ómíkron-afbrigðisins en dagleg smit hafa verið á bilinu 140-170 þúsund síðustu daga.

Bandaríkja­menn geta valið milli þess að fara í sýnatöku á viðurkenndum stöðum eða með því að kaupa hraðpróf sem einstaklingar geta framkvæmt sjálfir, en á annan tug tegunda eru til í þeim flokki. Mun fleiri tegundir af slíkum prófum eru aðgengileg í Evrópu, eða nærri 50. Hrað­prófin eru sömuleiðis mun ódýrari í Evrópu þar sem þau kosta um einn til tvo dollara, eða um 130-160 krónur, en í Banda­ríkjunum kostar prófið um 12 dollara, eða um 1.500 krónur.

Munurinn á stöðunni í Evrópu og Banda­ríkjunum liggur fyrst og fremst í muninum á rekstri heilbrigðis­kerfanna en má einnig rekja til umdeildrar ákvörðunar sem bandarísk yfirvöld tóku fyrir nokkrum mánuðum þegar ákveðið var að niður­greiða ekki sýnatöku, til að mynda hraðpróf, líkt og bólu­setningu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár