Mynd: EPA

Jólagjöfin í ár byrjar á Ó

Nýtt afbrigði. Mögulega meira smit­andi. Mögulega hættu­legra. Orð á borð við „kannski“, „lík­lega“ og „senni­lega“ umlykja afbrigðið Ómíkron sem hefur fleiri stökk­breyt­ingar en Delta. En það sem ein­kennir það þó fyrst og fremst er óvissa.

Það er rík ástæða fyrir því að hið nýja kór­ónu­veiru­af­brigði Ómíkron veldur mörgum vís­inda­mönnum áhyggjum. Og það er líka rík ástæða fyrir því að það veldur heila­brotum. Því þótt í gena­mengi þess megi finna um fimm­tíu stökk­breyt­ingar, þar af í það minnsta 26 sem ekki hafa sést í öðrum afbrigðum, þýðir það ekki endi­lega að Ómíkron sé verra en þau afbrigði sem hingað til hafa greinst í far­aldr­inum.

Stundum vinna stökk­breyt­ingar saman, ef þannig má að orði kom­ast, og gera veirur skað­legri. En þær geta líka jafnað hverja aðra út – unnið gegn hverri annarri. Veiru­fræðin eru flókin, m.a. af þessum sökum, og því eru vís­inda­menn margir hverjir hik­andi við að slá því föstu að Ómíkron, sem fyrst var rað­greint í Suður-Afríku í síð­ustu viku, eigi eftir að ná yfir­hönd­inni, taka við af hinu alræmda Delta sem síð­ustu mán­uði hefur drottnað yfir öðrum afbrigðum kór­ónu­veirunnar í heim­inum.

Sumar stökk­breyt­ing­arnar sem Ómíkron hefur eru þess eðlis að þær hafa allt það til að bera til að auka smit­hæfni veirunnar og mögu­leika hennar á að kom­ast fram­hjá ónæm­is­vörnum lík­am­ans. En til að kom­ast að hinu sanna þarf að skoða aðrar stökk­breyt­ingar þess ítar­lega og svo sam­spilið þeirra á milli. Að því verk­efni vinna nú vís­inda­menn um heim allan. Talað hefur verið um að það muni taka 2-3 vikur þar til myndin verður orðin skýr. Á meðan mun kór­ónu­veiran halda áfram að breið­ast út eins og hún hefur gert í að verða tvö ár. Halda áfram að stökkva fim­lega úr einum lík­ama yfir í annan, sumum bólu­settum en öðrum ekki, og breyt­ast í hvert skipti. Þannig hefur gengið nokkuð rösk­lega á gríska staf­rófið frá upp­hafi far­ald­urs­ins: Alfa, Beta, Gamma, Delta, Mu, Lambda. Og Ómíkron. Slík nöfn gefur Alþjóða heil­brigð­is­stofn­unin aðeins afbrigðum sem hafa margar stökk­breyt­ingar og eru þar með orðin tölu­vert ólík þeim sem á undan komu.

Ein af stóru spurn­ing­unum sem vís­inda­menn eru að reyna að fá svör við er hversu vel bólu­efnin sem þegar hafa verið þróuð og fram­leidd munu gagn­ast gegn Ómíkron. Til að svara spurn­ing­unni eru vís­inda­menn, m.a. við Smit­sjúk­dóma­stofnun Suður-Afríku, að búa til gervi­veiru sem inni­heldur allar þær stökk­breyt­ingar sem ein­kenna afbrigðið og skoða sam­spil þeirra. Þeir hafa gert þetta áður og not­uðu sömu aðferð er Beta-afbrigðið skaut upp koll­inum í Suður-Afríku í fyrra. Þá komust þeir einmitt að því að það að skoða aðeins eina ein­angr­aða stökk­breyt­ingu var ekki nóg til að kom­ast að hinu sanna.

Ein stökk­breyt­ingin sem Ómíkron hefur er sú hin sama og Alfa-afbrigðið, sem fyrst upp­götv­að­ist í Bret­landi, hafði. Þessi stökk­breyt­ing er talin gera það að verkum að veiran á auð­veld­ara með að kom­ast inn í frumur lík­am­ans. En hana er hins vegar ekki að finna í Delta sem reynd­ist svo verða það afbrigði sem skæð­ast hefur verið hingað til. Delta hefur nefni­lega stökk­breyt­ingar sem valda enn meiri sýk­ing­ar­hæfni en Alfa hafði.

Þegar Delta kom fram á sjón­ar­sviðið og fór að breið­ast út um allan heim voru sömu spurn­ingar uppi og nú. Hvernig munu bólu­efnin gagn­ast? Mun það valda alvar­legri veik­indum? Mun það leggj­ast verr á ákveðna ald­urs­hópa en við höfum áður séð?

Bólu­efnin gagn­ast gegn Delta. Virknin er þó ekki jafn­mikil og gegn fyrstu afbrigðum veirunnar sem þau voru þróuð út frá. Fleiri börn hafa sýkst af Delta en afbrigð­unum sem komu á undan þótt alvar­leg veik­indi í þeim ald­urs­hópi séu mjög fátíð.

Vís­bend­ingar eru svo um að mótefna­svar lík­am­ans eftir bólu­setn­ingu dvíni með tím­anum. Jafnvel á nokkrum mán­uðum. Og því eru örv­un­ar­bólu­setn­ingar hafnar, fyrst og fremst á Vest­ur­löndum þar sem bólu­setn­ing­ar­hlut­fall var þegar hæst.

Líkt og Delta varð Ómíkron lík­leg­ast til í sam­fé­lagi þar sem fáir eru bólu­settir. Margfalt meiri líkur eru á að smit­ast af kór­ónu­veirunni ef fólk er óbólu­sett og sömu­leiðis eru mun meiri líkur á því að veikj­ast alvar­lega. Þetta er kjör­lendi veirunnar – nóg af óvörðum lík­ömum til að sýkja og stökk­breyt­ast í. Fjölga sér út í hið óend­an­lega.

En hvað vitum við í raun og veru um Ómíkron og mögu­legar afleið­ingar þess? Að svo stöddu er það fátt þótt afbrigðið sé vissu­lega ekki óskrifað blað.

Ættum við að fara á taugum vegna fram­komu þess? Nei, segja okkar fremstu vís­inda­menn en á sama tíma er ljóst að því þarf að gefa góðan gaum. Vona það besta en búa sig undir það versta.

Vís­inda­menn þekkja gena­mengi afbrigð­is­ins. Vita hvar stökk­breyt­ing­arnar á brodd­prótein­inu eru að finna. En þeir vita ekki enn hvaða þýð­ingu þessar breyt­ingar munu í raun hafa á smit­hæfni og veik­indi sem veiran veldur. Ákveðnar kenn­ingar hafa verið settar fram, byggðar á fyrri reynslu líkt og að framan er rakið. Þær duga þó ekki til að slá neinu föstu um hvernig Ómíkron mun haga sér í sam­fé­lagi manna.

Læknar í Suður-Afríku hafa bent á að þeir sem smit­ast hafa af Ómíkron í land­inu svo vitað sé hafi enn sem komið er ekki veikst alvar­lega. En svo margt er enn á huldu varð­andi bylgj­una sem nú er að rísa í land­inu að slíka full­yrð­ingu er ekki hægt að setja fram án marg­vís­legra fyr­ir­vara. Í fyrsta lagi er aðeins um 0,8 pró­sent allra jákvæðra sýna rað­greind. Það er því langt í frá vitað hversu útbreitt veiru­af­brigðið í raun er. Af 61 far­þega úr einni og sömu flug­vél­inni sem lenti í Amster­dam á sunnu­dag greindust fjórtán sýktir af afbrigð­inu. Útilokað þykir að þeir hafi smitað hvern annan. Svo ólíkt er „ætt­ar­tré“ hverrar veiru fyrir sig.

Í annan stað þá er ungt fólk að sýkj­ast í meira mæli í Suður-Afríku um þessar mundir en þeir sem eldri eru. Það aftur kann fyrst og fremst að skýr­ast af ólíkri hegðun þess­ara ald­urs­hópa en við vitum að kór­ónu­veiran leggst verr á eldra fólk. Aðeins um fjórð­ungur Suður-Afr­íku­búa eru bólu­settir.

Að sama skapi er ekki vitað hvort og þá hversu mikil vörn bólu­efn­anna sem notuð eru í heim­inum í dag er gagn­vart afbrigð­inu. Afskap­lega ólík­legt verður þó að telj­ast að það kom­ist alfarið inn fyrir varnir lík­am­ans sem fást með bólu­setn­ingu. Við erum ekki á byrj­un­ar­reit hvað nýjan far­aldur varðar í þeim efnum.

Þegar Delta fór að breið­ast út um heim­inn var reynt að spýta í lóf­ana í bólu­setn­ingum. Reyna að fækka lík­ömum sem veiran getur búið þægi­lega um sig í. Það hefur skipt lyk­il­máli í bar­átt­unni. Smit­tölur m.a. á Íslandi eru í hæstu hæðum en alvar­leg veik­indi ekki nálægt því jafn algeng og við sáum í fyrstu bylgj­unum. Það sama hefur átt sér stað víða.

Far­ald­ur­inn er á fleygi­ferð í Evrópu þessar vik­urnar. Dagleg smit hafa aldrei verið fleiri og mörg ríki hafa þurft að grípa til hertra aðgerða til að reyna að hægja á útbreiðsl­unni. Tempra hana eins og stundum er sagt. Það hefur ekk­ert með Ómíkron að gera. Bylgjan hófst áður en það kom til sög­unnar. Tak­mark­anir á hegðun fólks höfðu víð­ast verið afnumdar að mestu. Veturinn kall­aði á meiri sam­veru inn­an­dyra. Þetta tvennt, nánd og inni­vera, eru eft­ir­lætis aðstæður veirunnar.

Mörg lönd hafa í örvænt­ingu gripið til þess að loka landa­mærum sínum fyrir komu fólks frá sunn­an­veðri Afríku. Slíkt mun hafa slæmar afleið­ingar fyrir efna­hag þess­ara þegar fátæku ríkja og hefur Alþjóða heil­brigð­is­mál­stofn­unin, Sam­ein­uðu þjóð­irnar og fleiri hvatt til hóf­stillt­ari við­bragða.

Ferða­bönn hafa hingað til gagn­ast lítið ein og sér. Það er gamla tuggan; skimun, rakn­ing og ein­angrun sem hefur reynst áhrifa­rík­ust. Rað­grein­ingar eru nauð­syn­legar og það hefur nú enn og aftur sýnt sig. Í dag varð ljóst að Ómíkron kom ekki í fyrsta skipti með flugi frá Suður-Afríku á sunnu­dag. Þegar farið var að rýna í nið­ur­stöður sýna upp­götv­að­ist að afbrigðið hafði fund­ist í tveimur öðrum ein­stak­lingum nokkrum dögum fyrr – nokkrum dögum áður en suð­ur­a­frísk yfir­völd til­kynntu WHO um upp­götvun sína. Enn er á huldu hvort að þessir sjúk­lingar höfðu tengsl við sunn­an­verða Afríku.

Ómíkron hefur nú verið greint í að minnsta kosti nítján löndum. Til­fellin eru flest í Suður-Afríku en þó aðeins 77. Óhætt er að full­yrða að það eigi eftir að grein­ast í fleiri löndum á næstu dögum og vikum.

Ef upp­götvun Ómíkron er að senda jarð­ar­búum ein­hver skila­boð þá eru það þau að dreifa bólu­efnum jafnt um heim­inn. Mis­skipt­ingin er gríð­ar­leg. Þau ríki sem hafa efni á því að kaupa for­gang að bólu­efnum hjá fram­leið­endum hafa gert það og hafa mörg hver að sama skapi ekki staðið við skuld­bind­ingar sínar um að gefa skammta sem þau hafa tryggt sér. „Umfram­skammtar“ var hug­tak sem breytt­ist nokkuð þegar „örv­un­ar­skammtar“ urðu að veru­leika.

Bólu­efna­skortur er enn stærsta hindr­unin sem stendur í vegi fyrir því að bólu­setja fleiri í efna­minni ríkjum. Skortur á heil­brigð­is­starfs­fólki er önnur hindrun en lægri og hik við að láta bólu­setja sig er ekki talið stór­kost­leg breyta auk þess sem vinna má á slíku með fræðslu og upp­lýs­inga­gjöf.

Ómíkron er ekki jóla­gjöfin sem við vildum fá í fangið. Óvissa um áhrif þess ekki heldur. En á meðan skipt­ing dropanna dýr­mætu verður jafn gríð­ar­lega ójöfn og raun ber vitni verður hætta á nýjum og jafn­vel skað­legri afbrigðum kór­ónu­veirunnar SARS-CoV-2, hvort sem þau heita Ómíkron eða eitt­hvað allt annað, áfram við­var­andi. Gríska staf­rófið mun mögu­lega ekki duga til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár