Af hverju sleppti WHO tveimur stöfum gríska stafrófsins?

Á eftir Mý kemur Ný og þá Xí. En eftir að Mý-afbrigði kórónu­veirunnar fékk nafn sitt var það næsta sem uppgötvaðist nefnt Ómíkron. Hvað varð um Ný og Xí?

Þeir eru takmörkuð auðlind, stafirnir í gríska stafrófinu.
Þeir eru tak­mörkuð auð­lind, stafirnir í gríska staf­róf­inu.

Kína­veiran. Breska afbrigðið og það suður­afríska. Svo hið brasilíska. Jafnvel það franska. Þegar ný afbrigði SARS-CoV-2 kórónu­veirunnar fóru að dúkka upp er líða tók á faraldur COVID-19, oft mögulega talin skæðari en þau sem á undan komu, voru þau bæði í fréttum og af tals­mönnum yfirvalda kennd við þau lönd sem þau fyrst uppgötvuðust í. Það var vissulega þjálla að tala um breska afbrigðið en B.1.1.7, það suður­afríska í stað B.1.351 og hið indverska en ekki B.1.617.2. Hin vísinda­legu heiti sem vísa til uppruna og eigin­leika með tölum og bókstöfum eru óskiljanleg í eyrum venjulegs fólks.

En að kenna veiru­afbrigði við lönd var ávísun á rugling og jafnvel reiði. Hvað ef annað afbrigði myndi uppgötvast á Bretlandi? Við hvað ætti að kenna það? Og hvað geta Indverjar gert að því að nýtt afbrigði fannst fyrst þar?

Til að bregðast við þessu ákvað Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunin, WHO, að nefna afbrigði nýju kórónu­veirunnar eftir stöfum úr gríska staf­rófinu. Þetta tilkynnti stofnunin í lok maí á þessu ári. Þannig varð breska afbrigðið að Alfa, það suður­afríska að Beta og það brasilíska að Gamma. Þetta var gert um það leyti sem ljóst var að „indverska afbrigðið“ – B.1.617.2, yrði ráðandi. Meira smitandi en önnur. Hættulegra. Það fékk líkt og hvert mannsbarn veit nafnið Delta.

WHO valdi gríska stafrófið því það er þekkt fyrirbæri víðast í heiminum og kerfið því nokkuð einfalt. Á eftir Alfa kemur Beta og svo Gamma. Niður­staðan var fengin eftir samráð við fólk og stofnanir frá mörgum löndum.

Kórónu­veiran er í stöðugri þróun. Hún er stans­laust að breytast. En það er þó ekki fyrr en stökk­breytingar sem henni fylgja verða miklar og varhuga­verðar að WHO setur ný afbrigði undir sérstaka smásjá og gefur þeim nafn. Þau eru svo þegar við þykir eiga sett á tvo lista: Athyglis­verð afbrigði (variants of interest) eða afbrigði sem valda áhyggjum (variants of concern).

Í augna­blikinu eru tvö afbrigði, Mý og Lambda, talin athyglis­verð og fimm til viðbótar á lista yfir þau sem valda sérstökum áhyggjum: Alfa, Beta, Gamma, Delta og nú nýverið Ómíkron.

Nokkur önnur afbrigði hafa fengið nöfn (Epsílon, Eta og fleiri) en er þó ekki að finna á listunum tveimur. Þau einfald­lega eiga ekki heima þar, þrátt fyrir að hafa verið talin varhuga­verð í fyrstu.

Pí og Hró eru næstir í röðinni

Meiri athygli hefur þó vakið að WHO ákvað að stökkva beint úr Mý og yfir í Ómíkron og sleppa tveimur bókstöfum. Engin afbrigði hafa fengið nöfnin Ný og Xí. Talsmaður WHO svaraði því til spurður út í þetta að Ný hefði verið ruglingslegt. Ný-afbrigðið. Nýja afbrigðið (Nu, skrifað á ensku, líkist „new“ í framburði). Það var því fljót­afgreitt að sleppa því. Xí (stundum skrifað Ksí á íslensku) hefur valdið meiri heila­brotum og kenningar verið settar fram um að það hafi verið gert til að hlífa forseta Kína, Xi Jinping. Nóg var talað um „Kína­veiruna“ í upphafi þótt ekki væri svo farið að blanda nafni forsetans í afbrigði hennar. Talsmaður WHO segir hins vegar að Xí sé algengt eftirnafn í Kína og því hafi verið tekin ákvörðun um að sleppa því. Hann bætti svo við að WHO legði sig fram við að reyna að komast hjá því að móðga nokkurn mann eða hóp með nafn­giftum sínum.

Sagan segir okkur að nafn­giftir geti verið villandi. Sjúk­dómurinn ebóla er t.d. kenndur við á sem rennur langt frá þeim stað þar sem veiran sem sjúk­dómnum veldur á upptök sín. Spænska veikin er annað dæmi. Sá skæði faraldur átti ekki upptök á Spáni heldur líklega í Banda­ríkjunum.

En hvað mun næsta afbrigði kórónu­veirunnar heita?

Næsti stafur í gríska staf­rófinu á eftir Ómíkron er Pí. Miðað við þróun faraldursins hingað til og þeirrar stað­reyndar að enn er stór hluti heims­byggðarinnar óbólusettur sem aftur er kjörlendi fyrir kórónu­veiruna að fjölga sér og stökk­breytast, mun ekki líða á löngu þar til Pí-afbrigðið skýtur upp kollinum. Ef WHO leggur ekki blessun sína yfir Pí mun næsta afbrigðið heita Hró.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár