Ómíkron gæti kaffært heilbrigðiskerfið

Þrátt fyrir að einkenni af völdum sýkingar af ómíkron-afbrigði kórónu­veirunnar virðist vægari en af delta gæti hröð útbreiðsla þess sligað heilbrigðis­kerfi.

Enn er margt á huldu um þær afleiðingar sem ómíkron-afbrigðið gæti haft. En það þarf ekki marga alvarlega veika sjúklinga til að margfalda álag á sjúkrahús.
Enn er margt á huldu um þær afleið­ingar sem ómíkron-afbrigðið gæti haft. En það þarf ekki marga alvar­lega veika sjúk­linga til að marg­falda álag á sjúkra­hús. Mynd: EPA

Álag á sjúkra­húsum í Bretlandi er mjög mikið um þessar mundir og nýting þjónustunnar sem hægt er að veita um 95 prósent. Það má því ekki mikið út af bregða þar í landi líkt og víða annars staðar í heiminum. Heilbrigðis­ráðherra landsins, Sajid Javid, segir að enginn sjúklingur smitaður af ómíkrón-afbrigði kórónu­veirunnar hafi látist svo vitað sé en innan við mánuður er síðan afbrigðið greindist og því enn mikil óvissa um áhrif þess á fólk.

Að minnsta kosti tíu sjúklingar sem greinst hafa með ómíkrón liggja inni á sjúkra­húsum á Englandi. Javid leggur áherslu á að þótt í ljós komi að afbrigðið valdi mildari einkennum en delta-afbrigðið gæti fjöldi tilfella engu að síður sligað heilbrigðis­kerfið.

Forstjóri NHS, ríkis­sjúkrahúsa Bretlands, segir að vegna faraldurs COVID-19 hafi þurft að fækka rúmum á spítölum um 30 prósent til að draga úr sýkingar­hættu. Hann vakti ennfremur athygli á því í viðtali við Sky-frétta­stofuna að sá árstími sem nú fari í hönd, mestu vetrar­mánuðirnir, sé alltaf álagstími vegna marg­víslegra þátta á borð við slys og alls lags veikindi. Þetta sé að gerast á sama tíma og ómíkron sé að dreifa sér um landið og þeirri óvissu sem því fylgir.

Heilbrigðis­ráðherrann segir að ómíkron sé að dreifa sér á „gífur­legum hraða“. Útbreiðslan sé „fordæma­laus“. Javid segir að margir haldi því fram að ómíkron valdi vægari einkennum en það eigi einfald­lega eftir að koma í ljós. „Og jafnvel þótt að þau séu vægari þá þarf aðeins lítið hlutfall sjúklinga að fá alvarleg einkenni svo að fjöldi þeirra verði mikill.“ Hann minnti einnig á að ef álagið á sjúkra­húsin aukist enn frekar verði að grípa til aðgerða, m.a. að fresta skurð­aðgerðum og rann­sóknum.

Rann­sóknir þykja benda til að þríbólusetning, þ.e. þrír skammtar af bóluefnum sem þegar eru á markaði, veiti umtals­vert betri vörn en tvíbólusetning. Þá benda rann­sóknir einnig til að þríbólusetning verji fólk mun betur gegn ómíkrón.

Örvunar­herferðir eru hafnar víða á Vestur­löndum. Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, hvatti landa sína til að þiggja slíka bólu­setningu í ávarpi sem hann flutti í gærkvöldi.

Tæplega 136 þúsund manns hafa þegið örvunar­bólu­setningu á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár