Vara við sprengihættu hjá tíu brugghúsum

Vinnu­eft­ir­litið hefur bannað brugg­húsum um land allt að nota kín­versk brugg­tæki á háum þrýst­ingi vegna hættu gagn­vart starfs­mönnum og gestum. Sjö af tíu fyr­ir­tækjum hafa kært ákvörð­un­ina til ráðu­neytis.

Vara við sprengihættu hjá tíu brugghúsum
Brugghús Fyr­ir­tækin sem nota kín­versku tækin eru stað­sett víða um land.

Sprengi­hætta getur verið af kín­verskum brugg­tækjum sem hafa verið í notkun hjá tíu brugg­húsum víðs vegar um landið. Vinnu­eft­ir­litið hefur bannað notkun bún­að­ar­ins yfir ákveðnum þrýst­ingi en sjö af fyr­ir­tækj­unum hafa kært ákvörð­un­ina til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

„Vinnu­eft­ir­litið lítur það alvar­legum augum þegar slíkur þrýsti­bún­aður er í notkun þegar ekki liggur fyrir með við­un­andi hætti að bún­að­ur­inn upp­fylli þær örygg­is­kröfur sem gerðar eru til þeirra lögum sam­kvæmt,“ segir í til­kynn­ingu frá Vinnu­eft­ir­lit­inu frá því í sumar. „Ef slíkur bún­aður upp­fyllir ekki þær örygg­is­kröfur sem gerðar eru til hans þá er sprengi­hætta af honum.“

Fram­leið­end­urnir sem um ræðir eru RVK Brewing Company, JG Bjór og Bastard Brew & Food í Reykja­vík, Ölverk í Hvera­gerði, Jón Ríki á Höfn, Smiðjan Brugghús í Vík, Brugg­húsið Draugr í Hval­firði, Dokkan brugg­hús á Ísafirði, The Brothers Brewery í Vest­manna­eyjum og Austra Brugghús á Egils­stöðum.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Vinnu­eft­ir­lit­inu er ekki vitað hvort brugg­tækin eru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár