Metoo-konur senda yfirlýsingu: Þolendur beri ekki ábyrgð á mannorði gerenda

„Fátt myndi ávinn­ast ef sak­fell­ing­ar­dómur væri eina for­senda þess að segja upp starfs­manni sem brýtur gegn sam­starfs­fólki sínu,“ segir í yfir­lýs­ingu 30 metoo-kvenna vegna umræðu um dóms­mál leik­ara gegn Borg­ar­leik­hús­inu vegna upp­sagnar í kjöl­far ásak­ana.

Metoo-konur senda yfirlýsingu: Þolendur beri ekki ábyrgð á mannorði gerenda
Mótmæli vegna afdrifa nauðg­un­ar­mála Hópur ungra kvenna mót­mælti því fyrr í mán­uð­inum að tvö af hverjum þremur nauðg­un­ar­málum fari aldrei fyrir dóm. Í dag sendir hópur metoo-kvenna yfir­lýs­ingu vegna umræðu um ábyrgð þeirra sem kvarta undan kyn­ferð­is­legri áreitni. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Með þátt­töku sinni í #metoo geng­ust þolendur ekki í ábyrgð fyrir mann­orð ger­enda sinna,“ segir í yfir­lýs­ingu hóps kvenna sem kennir sig við metoo-bylt­ing­una, í and­svari við umræðu um ábyrgð þolenda sem farið hefur fram und­an­farna daga. 

Mál leik­ara gegn Borg­ar­leik­hús­inu og leik­hús­stýru þess var rekið fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í síð­ustu viku. Í tengslum við málið sagði þekktur leik­stjóri að ung leik­kona, sem kvart­aði undan leik­ar­anum og aðstæðum á töku­stað, hefði dreift lyga­sögu og ætti að „skamm­ast sín“.

Ástæða dóms­máls­ins er að leik­ar­anum, Atla Rafni Sig­urð­ar­syni, var sagt upp störfum vegna sex kvart­ana kvenna um kyn­ferð­is­lega áreitni. Hann seg­ist í kjöl­farið hafa orðið fyrir tekju­missi og smánun. Atli Rafn kveðst ekki hafa fengið upp­lýs­ingar um hvaða ásak­anir hefðu verið færðar á hann, þegar hann var leystur undan árs láns­samn­ingi hjá Borg­ar­leik­hús­inu vegna kvart­an­anna. 

Hópur metoo-kvenna lýsir yfir stuðn­ingi við brota­þola í yfir­lýs­ingu sinni í dag: „Við lýsum yfir stuðn­ingi við þá hug­rökku brota­þola sem rofið hafa þögn­ina og þá atvinnu­rek­endur sem standa við bakið á þeim.“

Þá segja metoo-konur í yfir­lýs­ing­unni að hvorki skömmin né skyldan liggi hjá þeim sem telja á sér brotið. „Þær bera ekki ábyrgð á ákvörð­unum þeirra sem kusu að áreita þær eða beita þær ofbeldi, né til­finn­ingum þeirra eða starfs­frama. Brota­þolum ber engin skylda til að fara fyrir fjöl­miðla eða dóm­stóla, kjósi þeir fremur að leita eins­lega til trún­að­ar­manns eða yfir­manns, séu þær áreittar af sam­starfs­manni. Þær eiga rétt á öruggu starfs­um­hverfi, þar sem mann­rétt­indi þeirra eru virt og þær metnar að verð­leikum. Að sama skapi þurfa atvinnu­rek­endur að hafa svig­rúm til að bregð­ast við ásök­unum um ofbeldi eða áreitni án þess að fyrir liggi dómur. Fátt myndi ávinn­ast ef sak­fell­ing­ar­dómur væri eina for­senda þess að segja upp starfs­manni sem brýtur gegn sam­starfs­fólki sínu, enda er rétt­ar­kerfið önnur brota­löm þegar ofbeldi gegn konum er ann­ars vegar. Auk þess gefur auga leið að sak­fell­ing getur ein­ungis átt sér stað í kjöl­far brots og gagn­ast því ekk­ert við að fyr­ir­byggja ofbeldi.“

Í umfjöllun um málið var faðir eins þolend­anna nafn­greindur og segja metoo-konur að fjöl­miðlar ættu ekki að birta fréttir „sem gera aðför að ein­stökum þolendum, þar sem þeir eru vændir um lygar“.

„Brota­þolar sem stigið hafa fram og sagt frá hafa í mörgum til­vikum þurft að gjalda fyrir það dýru verði,“ minnir hóp­ur­inn á.

Yfirlýsing metoo-kvenna

„Að gefnu til­efni viljum við minna á hver til­gangur #metoo-bylt­ing­ar­innar er. Til­gang­ur­inn er að konur finni kraft­inn í fjöld­anum og geti sam­ein­ast um að afhjúpa alda­gam­alt mis­rétti sem blasir alltof víða við, mis­rétti sem er við­haldið með úreltum við­horfum, með­virkni með þeim sem mis­nota vald sitt, þolenda­smánun og þöggun. Öldum saman hafa konur þurft að bera harm sinn í hljóði ef þeim er mis­munað, þær beittar ofbeldi eða áreittar á vinnu­stað, almanna­færi eða jafn­vel á heim­ili sínu. Þær hafa verið látnar axla ábyrgð­ina og bera skömm­ina, með þeim skila­boðum að hefðu þær nú bara hegðað sér öðru­vísi/klætt sig á annan hátt/dregið skýr­ari mörk/gætt sín betur, þá hefðu þær afstýrt gjörðum ger­and­ans. Þessi hugs­un­ar­háttur leysir ger­endur undan ábyrgð og þaggar niður í þolendum, en hvort tveggja auð­veldar ofbeld­is­mönnum að kom­ast óáreittir upp með iðju sína.

Þeir brota­þolar sem stigið hafa fram og sagt frá hafa í mörgum til­vikum þurft að gjalda fyrir það dýru verði, með atvinnu­missi, æru­missi og hafa jafn­vel hrak­ist úr heima­byggð sinni. Með til­komu #metoo bylt­ing­ar­innar gátu konur myndað breið­fylk­ingu og vakið athygli á þessu óásætt­an­lega ástandi í krafti fjöld­ans. Þær þurftu ekki lengur að standa einar og ber­skjald­aðar með frá­sagnir sínar og mæta for­dæm­ingu og skömm, heldur gátu þær valið um að segja frá reynslu sinni nafn­laust eða láta nægja að nota fimm stafa myllu­merki, sem sagði allt sem segja þurfti.

Með þátt­töku sinni í #metoo geng­ust þolendur ekki í ábyrgð fyrir mann­orð ger­enda sinna. Þær bera ekki ábyrgð á ákvörð­unum þeirra sem kusu að áreita þær eða beita þær ofbeldi, né til­finn­ingum þeirra eða starfs­frama. Brota­þolum ber engin skylda til að fara fyrir fjöl­miðla eða dóm­stóla, kjósi þeir fremur að leita eins­lega til trún­að­ar­manns eða yfir­manns, séu þær áreittar af sam­starfs­manni. Þær eiga rétt á öruggu starfs­um­hverfi, þar sem mann­rétt­indi þeirra eru virt og þær metnar að verð­leikum. Að sama skapi þurfa atvinnu­rek­endur að hafa svig­rúm til að bregð­ast við ásök­unum um ofbeldi eða áreitni án þess að fyrir liggi dómur. Fátt myndi ávinn­ast ef sak­fell­ing­ar­dómur væri eina for­senda þess að segja upp starfs­manni sem brýtur gegn sam­starfs­fólki sínu, enda er rétt­ar­kerfið önnur brota­löm þegar ofbeldi gegn konum er ann­ars vegar. Auk þess gefur auga leið að sak­fell­ing getur ein­ungis átt sér stað í kjöl­far brots og gagn­ast því ekk­ert við að fyr­ir­byggja ofbeldi.

Þá skorum við á fjöl­miðla­fólk að vanda umfjöllun um þessi mál og birta ekki fréttir sem gera aðför að ein­stökum þolendum, þar sem þeir eru vændir um lygar. Fjöl­miðlar eiga ekki að vera gjall­ar­horn fyrir þá sem hafa beina hags­muni af því að rýra trú­verð­ug­leika þolenda. Við lýsum yfir stuðn­ingi við þá hug­rökku brota­þola sem rofið hafa þögn­ina og þá atvinnu­rek­endur sem standa við bakið á þeim. Líf, geð­heilsa og starfs­frami kvenna er ekki lengur ásætt­an­legur fórn­ar­kostn­aður á atvinnu­mark­aði sem hefur hylmt yfir með ger­endum frá örófi alda. Þeirri skömm var skilað í #metoo bylt­ing­unni.

Virð­ing­ar­fyllst,

Anna Lind Vign­is­dóttir

Bryn­hildur Heiðar- og Ómars­dóttir

Drífa Snædal

Edda Ýr Garð­ars­dóttir

Elísabet Ýr Atla­dóttir

Elva Hrönn Hjart­ar­dóttir

Erla Hlyns­dóttir

Fríða Rós Valdi­mars­dóttir

Guðrún Helga Sig­urð­ar­dóttir

Guðrún Línberg Guð­jóns­dóttir

Hafdís Inga Helgu­dóttir Hin­riks­dóttir

Halldóra Jón­as­dóttir

Halla B. Þor­kels­son

Heiða Björg Hilm­is­dóttir

Hlíf Steins­dóttir

Kolbrún Dögg Arn­ar­dóttir

Kolbrún Garð­ars­dóttir

Kristín I. Páls­dóttir

Marta Jóns­dóttir

Myrra Leifs­dottir

Nichole Leigh Mosty

Ólöf Dóra Bartels Jóns­dóttir

Ósk Gunn­laugs­dóttir

Sigrún Jóns­dóttir

Silja Bára Ómars­dóttir

Stefanía Svav­ars­dóttir

Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir

Þórlaug Ágústs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár