Fullt af litlu fólki og alls konar skemmtilegt

Stund­ar­skrá dag­ana 20. sept­em­ber til 4. októ­ber.

Fullt af litlu fólki og alls konar skemmtilegt

Fullt af litlu fólki 

Hvar? Gerð­ar­safn

Hvenær? 19.09–05.01 

Aðgangs­eyrir? 1000 krónur en afsláttur fyrir aldr­aða og öryrkja. 

Sýn­ing­ar­verk­efnið „Fullt af litlu fólki“ skoðar hið and­lega í listum. Þar gefur að líta verk eftir mik­il­væga alþjóð­lega lista­menn eins og til dæmis Joseph Beuys og Hilmu af Klint ásamt íslenskum mynd­list­ar­mönnum en þar má nefna Palla Banine, Jón B.K Ransu og Guðrúnu Veru Hjart­ar­dóttur. Tit­ill­inn er sóttur í skýr­ing­ar­mynd sem aust­ur­ríski mann­spek­ing­ur­inn Rudolf Steiner teikn­aði á fyr­ir­lestri sem hann hélt árið 1922, en hann vandi sig á að teikna myndir til stuðn­ings við hið tal­aða orð þegar hann hélt fyr­ir­lestra. Þess má geta að verk eftir Steiner eru á sýn­ing­unni. 

Frum­kvæði að sýn­ing­unni eiga þær Guðrún Vera Hjart­ar­dóttir og Sigrún Halldóra Gunn­ars­dóttir (ÚaVon) sem hafa lengi velt fyrir sér hvernig and­leg iðkun þeirra og áhugi á mann­speki geti sam­ræmst list­sköpun þeirra. Þátt­tak­endur sýn­ing­ar­innar eiga það sam­eig­in­legt að rann­saka ríki hins óþekkta og sækja inn­blástur í and­leg, spír­i­tísk, esóter­ísk og/eða mann­speki­leg gildi og birta þau í mynd­list, graf­ískri hönnun, dansi, tón­list og jafn­vel fræðum. En auk lista­verka á sýn­ing­unni er boðið upp á fyr­ir­lestra, nám­skeið og sam­ræður þar sem leit­ast er eftir að dýpka tengsl og skiln­ing á sam­bandi milli hins and­lega og efn­is­lega. 

Klikkuð menning

Hvar? Á ýmsum stöðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, meðal ann­ars Bíó Paradís, Háskóli Íslands og Gallerí núllið, sjá nánar á klikkud.is

Hvenær? 19.09–22.09

Aðgangs­eyrir? Enginn

Gleði­há­tíð  í til­efni 40 ára afmælis Geð­hjálpar sem sýnir fjöl­breyti­leik­ann í geð­rænum kvillum og geggj­aðri menn­ingu; bæði sem upp­lifun og upp­spretta hæfi­leika. Hátíð þar sem reynt verður að auka sýni­leika og normalísera fjöl­breyti­leik­ann í geð­heilsu lands­manna. Stað­setn­ing verður á Hverf­is­götu og í nágrenni; frá Kex Hostel og sem leið liggur alla leið niður að Borg­ar­bóka­safn­inu í Grófinni. Aðrir staðir eru Bíó Paradís, Þjóð­leik­hús­kjall­ar­inn, Núllið gall­erí, Hafn­ar­húsið, Vitatorg , Vin – athvarf, Harpa og Kjar­vals­staðir. Einnig verða nota­legir tón­leikar og ýmis til­boð á börum og kaffi­húsum við Hverf­is­götu. Svo verður haldin opin vinnu­stofa í hús­næði Geð­hjálpar Borg­ar­túni, með Mary O’Hagan. Hápunktur hátíð­ar­innar verður á laug­ar­deg­inum 21. sept­em­ber í Hafn­ar­hús­inu. Þar verður mál­þing þar sem Arnhild Lauveng frá Noregi og Mary O’Hagan frá Nýja-Sjálandi, gestir hátíð­ar­innar, halda erindi auk Kára Stef­áns­sonar. Lista­fólkið sem kemur fram er vel­viljað mál­efn­inu eða hefur sjálft reynslu af geð­sjúk­dómum. 

Núvitundarpartí

Hvenær? 20.09

Hvar? Harpa

Aðgangs­eyrir? Enginn

Kraftur ásamt Yoga Shala og Yoga Moves verður með ein­stakan núvit­und­ar­við­burð í Hörpu. Komum saman og fáum geggj­aða útrás í dansi, jóga, hug­leiðslu og tón­heilun. Saman eflum við lífs­kraft­inn og njótum þess að vera í núinu. Fram koma DJ Margeir, DJ YAMAHO, Tómas Oddur jóga­kenn­ari, Ingi­björg Stefáns jóga­kenn­ari og fleiri góðir gestir. Lífið er núna eru ein­kenn­is­orð Krafts og minnir okkur á að gleðj­ast yfir þeim sigri að fá að lifa í and­ar­tak­inu „núna“. Er lífið ekki þess virði að við gefum okkur tíma og rými til að fagna því sér­stak­lega, eitt and­ar­tak?!

Núvit­und­arpar­tíið er haldið í til­efni af 20 ára afmæli Krafts og rennur allur ágóði af því í starf Krafts í þágu ungs fólks sem greinst hefur með krabba­mein og aðstand­endur. Þú þarft bara að mæta í þægi­legum fötum og með jóga­dýnu með þér og ert leiddur inn í núið og vellíðan. Allir sem fram koma að við­burð­inum gefa vinnu sína.


Skapaðu litrík rými fyrir krakka!

Hvenær? 26.09 kl. 15

Hvar? Katta­kaffi­húsið, Berg­staða­stræti 10a 

Aðgangs­eyrir? Enginn

Fimmtu­dag­inn 26. sept­em­ber verður Caroline Chéron, eig­andi Bonjour! Studio á Óðins­götu, með vinnu­stofu fyrir for­eldra á Katta­kaffi­hús­inu á milli klukkan 15–17. Aðgangur að vinnu­stof­unni er ókeypis en þar mun Caroline kenna áhuga­sömum mæðrum og feðrum að skapa fal­leg her­bergi og rými fyrir börn og hversu mik­il­væg áhrif litir hafa á börn. Caroline sýnir gestum hvernig er hægt að nota vegg­fóður og máln­ingu til að umbreyta her­bergi barns­ins þíns í sann­kall­aðan ævin­týra­heim og forð­ast þann svart­hvíta heim sem hefur verið ríkj­andi í inn­an­húss­stíl fyrir börn und­an­farin ár. Caroline Chéron féll fyrir Íslandi þegar hún var á ferða­lagi um landið með fjöl­skyldu sinni. Fyrir ári síðan varð draumur þeirra að veru­leika og þau fluttu til lands­ins og opn­uðu versl­un­ina og inn­an­húss­ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Bonjour! stað­sett á Óðins­götu. Caroline, sem er frönsk að upp­runa, býður Íslend­ingum upp á nýjar hug­myndir og frönsk áhrif í inn­an­húss­stíl.

Belle de Jour á Svörtum sunnudögum

Hvenær? 22.09 kl. 20

Hvar? Bíó Paradís

Aðgangs­eyrir? 1.800

Kvik­mynda­kvölda­ser­ían Svartir sunnu­dagar er hafin á ný í Bíó Paradís  og í vetur geta bíó­unn­endur gætt sér á gull­molum kvik­mynda­sög­unnar á sunnu­dags­kvöldum. Nú á sunnu­dag­inn verður eró­tískt meist­ara­verk spænska leik­stjór­ans Luis Bunuel, Belle de Jour, sýnd. Hin unga og fal­lega hús­móðir Séverine Serizy (Catherine Deneuve) á erfitt með að sætta sig við að geta ekki upp­lifað masókisma-kynóra sína sam­hliða hvers­dags­legu lífi hennar með hinum dug­mikla eig­in­manni Pierre (Jean Sorel). Einn dag, þegar vinur hennar Henri (Michel Piccoli), sem einnig er ást­fang­inn af Séverine, segir henni frá leyni­legu háklassa hóru­húsi, sem er rekið af Madame Anais (Geneviève Page), byrjar Séverine að vinna þar á dag­inn undir nafn­inu Belle de Jour. En þegar einn af skjól­stæð­ingum hennar fer að verða meira og meira yfir­ráða­samur verður hún að reyna að snúa aftur við blað­inu yfir í sitt venju­lega líf.


Vísur og skvísur

Hvenær? 22.09

Hvar? Hann­es­ar­holt 

Aðgangs­eyrir? Enginn

Hann­es­ar­holt hlúir að innsta kjarna íslenskrar menn­ingar, söng­hefð­inni, og býður upp á sam­söng fyrir alla, unga sem aldna, Íslend­inga sem aðflutta, undir stjórn kunn­áttu­fólks. Tvíeykið Vísur&skvísur leiðir sam­söng­inn sunnu­dag­inn 22. sept­em­ber kl. 14. Vísur&skvísur sam­anstendur af þeim Vigdísi Haf­liða­dóttur og Þorgerði Ásu Aðal­steins­dóttur, en þær hafa báðar stundað nám við Norræna Vísna­söng­skól­ann í Kungälv í Svíþjóð. Á heima­slóðum vilja þær nú færa löndum sínum fagn­að­ar­er­indið: Vísna­söng, þar sem í sam­tali við áhorf­endur eru flutt lög úr ýmsum (oft­ast nor­rænum) áttum sem spanna breidd til­finn­inga þar sem text­inn hefur ekki síðra vægi en lag­línan.


RIFF

Hvenær? 26.09–06.10

Hvar? Háskóla­bíó, Bíó Paradís og víðs vegar um Reykja­vík

Aðgangs­eyrir? Hátíð­ar­passi á 9.900 krónur dag­miðar á 1.300–1.600 krónur

RIFF,  Alþjóð­leg kvik­mynda­há­tíð í Reykja­vík , er einn stærsti og fjöl­breytt­asti menn­ing­ar­við­burð­ur­inn á Íslandi. RIFF er sjálf­stæð og óháð kvik­mynda­há­tíð sem rekin er án hagn­aðar. Í ell­efu daga á hverju hausti flykkj­ast Íslend­ingar í bíó til að sjá það besta og fers­kasta í alþjóð­legri kvik­mynda­gerð. Enn fremur býðst gestum að spjalla við leik­stjóra um verk sín, sækja mál­þing og fyr­ir­lestra, tón­leika og lista­sýn­ingar. Áhersla í ár er á aust­ur­ríska kvik­mynda­gerð. 

Árni Vil – útgáfutónleikar

Hvenær? 28.09

Hvar? Hann­es­ar­holt

Aðgangs­eyrir? Enginn

Árni Vil, sem er þekktur sem einn þriggja með­lima FM Belfast, gaf út sína fyrstu sóló­plötu á dög­unum og heldur upp á það með útgáfu­tón­leikum í Hann­es­ar­holti laug­ar­dag­inn 28. sept­em­ber. Með honum verður ein­vala­lið hljóð­færa­leik­ara og verður platan flutt í heild sinni ásamt nokkrum nýjum lögum.

Veit­inga­stof­urnar fram­reiða kvöld­verð fyrir þá sem vilja á undan tón­leik­unum. Borða­pant­anir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is

Tarotlestur og stjörnuspeki

Hvenær? 26.09 kl. 10.30–11.30

Hvar? Systra­sam­fé­lag­inu, Óðins­götu

Aðgangs­eyrir? Enginn

Jara Karls­dóttir (Gian Tara) stjörnu­spek­ingur, jóga­kenn­ari og tón­list­ar­maður mun lesa úr stjörnu­kortum á Systra­sam­lag­inu Óðins­götu á milli 10.30 og 11.30 á fimmtu­dag­inn. Hún býr til stjörnu­kort fyrir fólk og les úr þeim og hjálpar fólki að sjá styrk­leika sína og leið til að vinna með þá. Það er hægt að panta tíma í gegnum Facebook-síðu Systra­sam­lags­ins, með því að senda póst á giantara@giantara.com eða bara mæta á stað­inn.

Brúðkaup Figaros

Hvenær? 20.09, 21.09 og 28.09 

Hvar? Þjóð­leik­húsið

Aðgangs­eyrir? 6.000–15.000

Íslenska óperan hefur sett upp hina frægu óperu Mozarts,  Brúðkaup Fígarós, í sam­starfi við Þjóð­leik­húsið á Stóra svið­inu. Óperan er byggð á gam­an­leik­riti Beaumarchais og er full af fyndnum upp­á­komum, mis­skiln­ingi og óvæntum upp­ljóstr­unum. Verkið hefur engu að síður alvar­legan und­ir­tón og felur í sér leiftr­andi ádeilu á sam­skipti yfir­stéttar og alþýðu. Sagan ger­ist í kast­ala Almaviva greifa, í nágrenni Sevilla. Hinn kven­sami greifi rennir hýru auga til Súsönnu, sem er þjón­ustu­stúlka eig­in­konu hans. Daginn sem Súsanna á að gift­ast Fígaró hyggst greif­inn nýta sér aldagamlan herra­rétt til að sænga hjá henni. Greifa­frúin og Súsanna taka höndum saman um að leika á greifann og klækja­brögð þeirra hafa ýmsar kostu­legar afleið­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár