HR mátti takmarka tjáningarfrelsi Kristins til að verja rétt fólks til að „upplifa“ jafnréttisgildi

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur telur að „tak­mörkun á tján­ing­ar­frelsi“ Kristins Sig­ur­jóns­sonar hafi stefnt að lögmætu mark­miði, meðal ann­ars verndun á rétt­indum nem­enda og starfs­manna háskólans „til að upp­lifa að háskólinn starf­aði í reynd eftir gildum jafnréttis“.

HR mátti takmarka tjáningarfrelsi Kristins til að verja rétt fólks til að „upplifa“ jafnréttisgildi

Háskól­inn í Reykja­vík sýndi fram á með full­nægj­andi hætti að upp­sögn Kristins Sig­ur­jóns­sonar hefði verið nauð­syn­leg „til að vernda rétt­indi eða hags­muni ann­arra, jafnt stefnda og hlut­hafa hans sem starfs­fólks háskól­ans og nem­enda“.

Þetta er nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli Kristins gegn HR. 

Kristinn starf­aði um ára­bil sem lektor við tækni- og verk­fræði­deild skól­ans en var sagt upp eftir að DV greindi frá ummælum sem hann hafði látið falla um konur á lok­uðum en fjöl­mennum umræðu­hópi á Facebook.

Orðrétt skrif­aði Kristinn: Það á að aðgreina vinnu­staði karla og kvenna. Vandinn er bara að konur reyna alltaf að troða sér þar sem karl­menn vinna, og um leið og þær eru komnar inn, þá byrja þær að eyði­leggja hann, því allir kal­menn­irnir eiga þá að fara að tala, hugsa og hegða sér eins og kerl­ingar, allt annað er áreiti og ef sagður en neð­an­belt­is­brand­ari, svo ég nefni ekki klám­brand­ari, þá er það kyn­ferð­is­of­beldi.

Kristinn höfð­aði mál gegn HR og krafð­ist skaða- og miska­bóta, en nú hefur skól­inn verið sýkn­aður af öllum dóm­kröfum.

Að mati Hér­aðs­dóms Reykja­víkur birti Kristinn ummæli sín „á opin­berum vett­vangi“ og mátti þannig vænta þess að ummælin hlytu víð­tæk­ari dreif­ingu, t.d. fyrir til­stilli fjöl­miðla. Dómurinn telur að stefn­andi hefði átt að „vanda það sér­stak­lega hvernig hann nýtti tján­ing­ar­frelsi sitt“ og að honum hafi mátt vera full­ljóst að ummælin stöng­uð­ust á við jafn­rétt­is­gildi HR. 

Hér­aðs­dómur fellst á að upp­sögnin hafi falið í sér tak­mörkun á tján­ing­ar­frelsi Kristins. Sú tak­mörkun hafi þó stefnt „að lög­mætu mark­miði, þ.e. að verndun rétt­inda ann­arra, þar á meðal sam­starfs­fólks stefn­anda og nem­enda háskól­ans, til að upp­lifa að háskól­inn starf­aði í reynd eftir gildum jafn­réttis“. 

Haft er eftir Jóni Steinari Gunn­laugs­syni, lög­manni Kristins, í Frétta­blað­inu í dag að dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur verði áfrýjað til Lands­réttar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár