Kvenkyns nemendur geti notað ásakanir um áreitni sem vopn

Kristinn Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi lektor við Háskól­ann í Reykja­vík, seg­ist aldrei vilja vera einn í her­bergi með sam­starfs­konu sem gæti sakað hann um áreitni. Að sama skapi geti kven­kyns nem­endur notað ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni sem vopn til að hækka ein­kunnir sínar.

Kvenkyns nemendur geti notað ásakanir um áreitni sem vopn
Hefur hurð­ina opna Kristinn sem var rek­inn sem lektor í HR vegna ummæla sinna um konur vill ekki deila með þeim skrif­stofu vegna hræðslu við að vera ásak­aður um kyn­ferð­is­lega áreitni Mynd: Hörður Sveinsson

Kristinn Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi lektor við tækni- og verk­fræði­deild Háskól­ans í Reykja­vík, segir nem­endur geta sakað karl­kyns­kenn­ara um kyn­ferð­is­lega áreitni til að breyta ein­kunnum sem þær eru óánægðar með.

Kristinn stendur nú í mála­ferlum við Háskól­ann í Reykja­vík, þar sem hann krefur skól­ann um 57 millj­ónir vegna ólög­mætrar upp­sagnar og 5 millj­ónir í miska­bætur. Hann var rek­inn þaðan í októ­ber síð­ast­liðnum, eftir að DV birti ummæli hans í lok­uðum hópi á Facebook, Karl­mennsku­spjall­inu, þar sem hann sagði konur troða sér inn á vinnu­staði karla og eyði­leggja þá. Svipuð ummæli hefur hann haft eftir í kommenta­kerfi frétta­miðla. Þá sagði hann einnig að karl­menn eigi að „tala, hugsa og hegða sér eins og kerl­ingar, allt annað er áreiti og ef sagður er neð­an­belt­is­brand­ari, svo ég nefni ekki klám­brand­ari, þá er það kyn­ferð­is­of­beldi“. 

Nýlega hófu vinir og frændur Kristins fjár­söfnun vegna mála­ferl­anna á þeim for­sendum að þar væri atvinnu­laus ein­stak­lingur að berj­ast …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár