Yfirgnæfandi stuðningur við nafnabreytingu Akureyrar

Bæj­ar­stjórn Akur­eyr­ar­kaup­staðar hefur sam­þykkt að breyta nafni sveit­ar­fé­lags­ins í Akur­eyr­ar­bær. Beðið er umsagnar örnafna­nefndar og stað­fest­ingar ráðu­neytis.

Yfirgnæfandi stuðningur við nafnabreytingu Akureyrar
Akur­eyr­ar­kirkja Flestir aðspurðra vildu breyta nafni bæj­ar­ins. Mynd: Shutterstock

Bæj­ar­stjórn Akur­eyr­ar­kaup­staðar sam­þykkti á fundi sínum á þriðju­dag að breyta nafni sveit­ar­fé­lags­ins í Akur­eyr­ar­bær. Beðið er jákvæðrar umsagnar örnafna­nefndar og stað­fest­ingar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytis.

Málið var á dag­skrá bæj­ar­stjórnar í febr­úar, en þá var sam­þykkt að fresta mál­inu og gera skoð­ana­könnun á vett­vangi íbúa­gáttar á vef bæj­ar­ins. Ákveðið var að ef afdrátt­ar­laus vilji meiri­hluta íbúa kæmi fram yrði tekið mið af honum.

Rann­sókna­mið­stöð Háskól­ans á Akureyri (RHA) gerði könnun í mars þar sem var meðal ann­ars spurt: „Núver­andi nafn sveit­ar­fé­lags­ins er Akur­eyr­ar­kaup­staður, hvort vilt þú halda því nafni eða breyta því í Akur­eyr­ar­bær?“ Nið­ur­stöð­urnar voru þær að 77% vildu breyta nafn­inu í Akur­eyr­ar­bær, en 23% vildu halda nafn­inu Akur­eyr­ar­kaup­staður. 

Nokkur umræða spratt upp um nöfn sveit­ar­fé­laga í mars 2018 eftir fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, á Alþingi. Spurði hann meðal ann­ars um nafn sam­ein­aðs sveit­ar­fé­lags Gríms­eyjar, Hrís­eyjar og Akur­eyrar og fékk það svar að það héti Akur­eyr­ar­kaup­staður. Í svari sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra kom einnig fram að höf­uð­borg Íslands heiti form­lega Reykja­vík­ur­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár