Akureyri heiti bær en ekki kaupstaður

Tillaga liggur fyrir hjá bæj­ar­stjórn Akur­eyrar að nafni sveit­ar­fé­lags­ins verði breytt úr Akur­eyr­ar­kaup­staður í Akur­eyr­ar­bær.

Akureyri heiti bær en ekki kaupstaður

Bæjarráð Akur­eyrar lagði á fundi sínum í gær til að heiti sveit­ar­fé­lags­ins verði breytt úr Akur­eyr­ar­kaup­staður í Akur­eyr­ar­bær.

Tillagan var lögð fram af sviðs­stjóra stjórn­sýslu­sviðs, en málið var áður á dag­skrá bæj­ar­ráðs 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Eftir umræðu á þeim fundi sagði Halla Margrét Tryggva­dóttir, sviðs­stjóri stórn­sýslu­sviðs, í sam­tali við blaðið Vikudag að nafnið Akur­eyr­ar­kaup­staður væri lítið notað. Helst væri það hjá ráðu­neytum og hjá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga.

„Ég tel að margir bæj­ar­búar átti sig ekki á því að bær­inn heiti í raun Akur­eyr­ar­kaup­staður en ekki Akur­eyr­ar­bær,“ sagði Halla. Á þeim tíma­punkti hafði ekki verið tekin ákvörðun um þá til­lögu að sveit­ar­fé­lagið skyldi heita Akur­eyr­ar­bær.

Bæjarráð vís­aði í gær mál­inu til umræðu og afgreiðslu bæj­ar­stjórnar. Jafn­framt faldi bæj­ar­ráð sviðs­stjóra að óska umsagnar örnefna­nefndar um breyt­inga­til­lög­una.

Nokkur umræða spratt upp um nöfn sveit­ar­fé­laga í mars 2018 eftir fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, á Alþingi. Spurði hann meðal …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár