Leggur til að ríkið selji Spöl og semji við fyrirtækið um frekari samgönguverkefni

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, stingur upp á því að ríkið selji líf­eyr­is­sjóðum og sveit­ar­fé­lögum Spöl og semji síðan við fyr­ir­tækið um stór sam­göngu­verk­efni til næstu ára.

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill að ríkið selji Spöl hf., eign­ar­halds­fé­lag Hval­fjarð­ar­gang­anna, til líf­eyr­is­sjóða og sveit­ar­fé­laga. Þessu stingur hann upp á í Facebook-færslu í dag.

„Nú væri ágætt að selja Spöl aftur t.d. til líf­eyr­is­sjóða og sveit­ar­fé­laga. Semja síðan við fyr­ir­tækið um stór sam­göngu­verk­efni til næstu ára og halda því opnu að geta sett inn ný verk­efni í fram­tíð­inni. Þannig yrði líf­eyr­is­sparn­aður lands­manna ávaxtaður í upp­bygg­ingu inn­viða. Reynslan er góð og engin ástæða til að ætla annað en að svo geti verið áfram,“ skrifar Jón.

Hval­fjarð­ar­göng voru afhent rík­inu til eignar í fyrra. Nýlega komst svo stjórn Spal­ar að sam­komu­lagi við Vega­gerð­ina um að hún tæki við fé­lag­inu og var gengið frá yf­ir­tök­unni á aðal­fundi Spal­ar í gær. „Einka­hluta­fé­lagið er nú í raun á for­ræði Vega­gerð­ar­innar og verður það til fulls þegar forms­at­riðum eig­enda­skipta lýkur innan tveggja til þriggja vikna,“ segir á vef félags­ins.

Vega­gerðin hefur verið hlut­hafi í Speli frá stofnun félags­ins 25. jan­úar 1991 en er nú orðin eini hlut­haf­inn eftir aðal­fund félags­ins á morgun. Útlit er fyrir að Speli fylgi að minnsta kosti 120 millj­ónir króna í hand­bæru fé til Vega­gerð­ar­innar eftir yfir­töku. Helm­ing­ur­inn er ógreiddar kröfur við­skipta­vina á félagið vegna inn­eigna á reikn­ingum auk veglykla og afslátt­ar­miða sem ekki hefur verið skilað.  Hinn hlut­inn, 60-70 millj­ónir króna, eru fjár­munir sem eftir verða hjá Speli þegar allur kostn­aður félags­ins hefur verið greiddur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár