Vill stöðva málþóf Miðflokksmanna

Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir þing­menn Mið­flokks­ins halda Alþingi í gísl­ingu með umræðum um þriðja orku­pakk­ann.

Vill stöðva málþóf Miðflokksmanna

Fámennur hópur þing­manna tekur þingið í gísl­ingu með mál­þófi, að mati þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þingmenn Mið­flokks­ins töl­uðu um þriðja orku­pakk­ann í 15 klukku­tíma á Alþingi í gær, alveg fram undir morgun þegar þing­fundi var slitið klukkan sex.

Bryndís Har­aldsóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skrif­aði grein í Frétta­blaðið í dag þar sem hún hvetur til þess að ráðum verði beitt til að stöðva umræður þing­manna Mið­flokks­ins sín á milli og leiða málið til lykta.

„Það er nefni­lega ekk­ert í þing­sköpum sem bannar þing­manni að flytja sömu ræð­una tvisvar, eða í tugi skipta, sé út í það farið,“ skrifar Bryndís. „Mál­frelsi þing­manna er mik­il­vægt og er það sér­stak­lega varið í flestum þjóð­þingum heims. En mál­þóf á ekk­ert skylt við mál­frelsi eða lýð­ræði, og þekk­ist nán­ast hvergi utan Íslands. Málþóf er sér­ís­lenskt fyr­ir­brigði.“

Bryndís segir mik­il­vægt að Alþingi sé skil­virkur vinnu­staður og að mál séu á end­anum kláruð með mála­mið­lj­unum eða atkvæða­greiðslum þar sem hreinn meiri­hluti ræður. „Daga og nætur eru þing­fund­irnir und­ir­lagðir af ræðum þing­manna úr einum þing­flokki þar sem hver þing­mað­ur­inn fer í ræðu­stól á fætur öðrum og sam­flokks­þing­menn­irnir tín­ast í andsvör við þann fyrri. Að ógleymdu hól­inu hvers til ann­ars, það er gott að fá klapp á bakið.“

Hún bendir á að skýrt sé kveðið á í þing­sköpum um að andsvör séu aðeins heim­iluð með leyfi for­seta Alþingis. Einnis sé að finna heim­ild í 71. gr. þing­skap­a­laga til þess að tak­marka umræður. „Ég tel rétt og eðli­legt að þing­heimur hugi að þessum heim­ildum til fram­tíðar,“ skrifar Bryndís. „Núver­andi fyr­ir­komu­lag, þar sem fámennur hópur stjórn­ar­and­stæð­inga getur tekið þingið í gísl­ingu, gengur ekki til fram­tíðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár