Eik fasteignafélag greiðir milljarð í arð

Stjórn Eikar fast­eigna­fé­lags gerir til­lögu um að greiða rúm­lega einn millj­arð króna í arð til hlut­hafa fyrir árið 2018. Meiri­hluti hlut­hafa eru líf­eyr­is­sjóðir.

Eik fasteignafélag greiðir milljarð í arð
Eik fast­eigna­fé­lag Garðar Hannes Frið­jóns­son er for­stjóri félags­ins sem var skráð á markað árið 2015. Mynd: Morgunblaðið/Golli

Stjórn Eikar fast­eigna­fé­lags leggur til fyrir aðal­fund félags­ins 10. apríl að sam­þykkt verði að greiða hlut­höfum sam­tals 1.020.000.000 krónur í arð vegna árs­ins 2018. Félagið hagn­að­ist um rúm­lega tvo og hálfan millj­arð króna eftir tekju­skatt á rekstr­ar­ár­inu.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar og árs­skýrslu félags­ins. Arð­greiðslur vegna rekstr­ar­árs­ins 2017 námu 915 millj­ónum króna, en það árið nam hagn­aður um 3,8 millj­örðum króna eftir tekju­skatt.

Eigna­safn Eikar er tæpir 310 þús­und fer­metrar og rúm­lega 100 fast­eignir. 450 leigu­takar eru í yfir 600 leigu­ein­ingum félags­ins. Stærstur hluti þess er skrif­stofu- og versl­un­ar­hús­næði. 91% af eigna­safn­inu er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Virði fast­eigna félags­ins nam 98 millj­örðum króna í árs­lok 2018.

Líf­eyr­is­sjóðir eru stærstu hlut­hafar í félag­inu með 54% hluta­fjár. Næst á eftir koma verð­bréfa­sjóðir með 15%, einka­hluta­fé­lög með 12%, bankar og safn­reikn­ingar með 11%, trygg­inga­fé­lög með 5% hluta­fjár og ein­stak­lingar eiga 3%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu