Skuldabréf Skúla í WOW nær einskis virði – Arion banki á veð í fasteignum hans

Eign­ar­halds­fé­lag í eigu Skúla Mogensen afsal­aði sér ein­býl­is­húsi til hans í fyrra. WOW er hætt rekstri og mun rekstr­ar­stöðvun félags­ins hafa víð­tækar afleið­ingar, meðal ann­ars fyrir kröfu­hafa WOW og Skúla sjálfan.

Skuldabréf Skúla í WOW nær einskis virði – Arion banki á veð í fasteignum hans
Hver er staða Skúla? Ein af spurn­ing­unum sem fall WOW air ber með sér er hver staða Skúla Mogensen, for­stjóra og eig­anda WOW air, sé nú. Hús hans er veð­sett fyrir skulda­bréfum sem orðin eru nær verð­laus með falli WOW. Mynd: WOWAIR.IS

Arion banki, við­skipta­banki WOW air og Skúla Mogensen, á veð í flestum fast­eignum sem tengj­ast rekstri flug­fé­lags­ins og fast­eignum tengdra félaga. Fast­eign­irnar voru meðal ann­ars veð­settar á seinni hluta síð­asta árs fyrir fjár­magni sem notað var til að reyna að bjarga WOW air frá falli. 

WOW air hætti starf­semi í morgun og er ljóst að hlut­hafar flug­fé­lags­ins, þar með talið fyrr­ver­andi skulda­bréfa­eig­endur þess sem breyttu kröfum sínum í hlutafé, sem og kröfu­hafar fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­ars Arion banki, munu tapa fjár­munum vegna falls félags­ins.

Þá er ljóst að Skúli Mogensen, sem hefur verið eini eig­andi WOW-air síð­ast­liðin ár, mun tapa þeirri fjár­fest­ingu sem hann réð­ist í, meðal ann­ars þeim fjár­munum sem hann not­aði til að fjár­festa í skulda­bréfa­út­boði WOW-air.  Í við­tali við frétta­stofu RÚV í hádeg­inu sagði Skúli að hann hefði sett allt sitt í rekst­ur­inn: „Í setti aleig­una í þennan rekstur.“

Þrátt fyrir skuld­bind­ingar WOW-air við Arion banka sendi bank­inn frá sér til­kynn­ingu í morgun þar sem fram kom að þær væru ekki svo miklar að áhrifin á bank­ann yrðu „veru­leg“: „Í ljósi umfjöll­unar í fjöl­miðlum um mál­efni WOW Air og skuld­bind­ingar félags­ins við Arion banka vill bank­inn taka fram að stöðvun rekstrar WOW Air mun ekki hafa veru­leg bein áhrif á rekstr­ar­af­komu bank­ans að teknu til­liti til ann­arra þátta í rekstri bank­ans.“

Ekki mikið höggArion banki, sem á veð í fast­eignum Skúla Mogensen, segir að höggið út af falli WOW air sé ekki mikið. 

„Stöðvun rekstrar WOW Air mun ekki hafa veru­leg bein áhrif á rekstr­ar­af­komu bank­ans“

Ný 733 milljóna króna lán

Eins og Stundin greindi frá í byrjun des­em­ber var nýjum skulda­bréfum upp á sam­tals 733 millj­ónir króna, 5.7 millj­ónir evra, þing­lýst á fast­eignir í eigu félaga tengdum Skúla og WOW í sept­em­ber í fyrra en þetta var gert á sama tíma og skulda­bréfa­út­gáfa WOW-air fór fram. 

Arion banki þing­lýsti þá meðal ann­ars 2,9 millj­óna evra, 375 millj­óna króna, trygg­inga­bréfi á hótel á Suð­ur­nesjum sem félagið TF-KEF ehf. á, og eins á fast­eignir í Hvamms­vík í Hval­firði sem Skúli Mogensen á í gegnum félagið Kotasælu ehf.  Trygg­inga­bréfið á hót­el­inu á Suð­ur­nesjum er á þriðja veð­rétti á eftir tveimur trygg­inga­bréfum frá Arion upp á sam­tals 650 millj­ónir króna sem hvíla á fyrsta og öðrum veð­rétti á því.

Arion banki þing­lýsti einnig nýju trygg­inga­bréfi upp á 2,77 millj­ónir evra, 358 millj­ónir króna, á heim­ili Skúla á Sel­tjarn­ar­nesi sama dag. Engin veð­bönd hvíldu á hús­inu fyrir þetta.

Kotasæla afsalaði sér húsinu til Skúla í fyrra

Þegar Skúli veð­setti húsið í fyrra hafði hann ekki átt það mjög lengi því áður en hann eign­að­ist það per­sónu­lega í júlí 2018 var húsið skráð á eign­ar­halds­fé­lag hans, Kotasælu ehf. Þetta er sama eign­ar­halds­fé­lög og notað var til veð­setn­ingar fyrir nýjum lánum frá WOW air. 

Í afsal­inu er ekki tekið fram hvað Skúli greiddi Kotasælu ehf. fyrir húsið en þó kemur fram að kaup­verðið sé að fullu greitt: „Þar sem afsals­hafi hefur að fullu greitt umsamið kaup­verð eign­ar­innar fyrir hina seldu eign lýsi afsals­gjafi hann lög­fullan eig­anda að eign­inni,“ segir í afsal­inu. 

Í árs­reikn­ingi Kotasælu fyrir árið 2017 kemur hins vegar fram að Kotasæla ehf. hafi skuldað Skúla Mogensen tæp­lega 150 millj­ónir króna í árs­lok 2017. Auk þess voru tæp­lega 660 millj­óna króna skuldir við félög í eigu Skúla Mogensen. Þá átti félagið kröfur á hendur WOW air ehf. upp á rúm­lega 250 millj­ónir króna

Miðað við þetta er lík­legt að Kotasæla ehf. og Skúli hafi gert sam­komu­lag um skulda­jöfnun þannig að Skúli fengi húsið upp í kröfur sínar á hendur félag­inu. 

Bæði eft­ir­stand­andi fast­eignir Kotasælu ehf. og eins húsið á Sel­tjarn­ar­nesi voru svo notuð til veð­setn­ingar í fyrra­haust þegar WOW air og Skúla vant­aði fjár­muni eftir að WOW-air lenti í erf­ið­leikum.

Hvað verður um þessar eignir, sem og aðrar eignir sem Arion banki og aðrir kröfu­hafar WOW air eiga veð í, er eitt af því sem á eftir að koma í ljós við skulda­upp­gjör WOW air og Skúla Mogensen við kröfu­hafa sína næstu miss­erin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár