Hótel Rangá hagnaðist um 650 milljónir: „Óeðlilega miklar launahækkanir“

Friðrik Pálsson, langstærsti hlut­hafi Hótel Rangár, hefur verið gagn­rýn­inn á launa­þróun á Íslandi sem hann telur „óeðli­lega mikla“. Á sama tíma hefur fyr­ir­tæki hans skilað 650 millj­óna króna hagn­aði og greitt út 260 millj­óna króna arð til hlut­hafa.

Hótel Rangá hagnaðist um 650 milljónir: „Óeðlilega miklar launahækkanir“
Gagn­rýn­inn á launa­þróun og verk­föll Friðrik Pálsson, eig­andi hótel Rangár, hefur verið gagn­rýn­inn á launa­þróun á Íslandi og verk­föll. Samtímis hefur hann hagn­ast vel á hót­eli sínu sem greitt hefur út 260 millj­óna króna arð. Mynd: Artist

Upp­safn­aður hagn­aður í rekstra­fé­lagi Hótel Rangár, Hall­gerði ehf., er 650 millj­ónir króna frá árinu 2010. Þar af var meira en 90 millj­óna hagn­aður á fyr­ir­tæk­inu árið 2016 og eins 2017 en þetta eru tvö síð­ustu rekstr­arár sem árs­reikn­ingar liggja fyrir um. Á sama tíma­bili hefur verið greiddur út 260 millj­óna króna arður út úr félag­inu. Hótel Rangá er að lang­mestu leyti í eigu Friðriks Pálss­sonar en hann á nærri 85 pró­sent af hluta­fénu. 

Hótel Rangá er ein af þeim hót­el­keðjum sem fjallað er um í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar en hót­el­fyr­ir­tækið hefur gengið afar vel á síð­ustu árum. Þau verk­föll sem hafa staðið yfir síð­ustu vikur hafa ekki bitnað með beinum hætti á Hótel Rangá þar sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins eru ekki í þeim stétt­ar­fé­lögum sem farið hafa í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár