Samtök atvinnulífsins mótmæla hertu skatteftirliti með aflandsfélögum Íslendinga

Segja að fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar séu gríð­ar­lega íþyngj­andi og muni hrekja fyr­ir­tæki úr landi. Alþjóð­legir end­ur­skoð­un­arrisar, þekktir fyrir að aðstoða auð­menn og stór­fyr­ir­tæki við að kom­ast undan skatt­greiðslum, gagn­rýna frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar harð­lega.

Samtök atvinnulífsins mótmæla hertu skatteftirliti með aflandsfélögum Íslendinga

Samtök atvinnu­lífs­ins leggj­ast ein­dregið gegn áformum rík­is­stjórn­ar­innar um að gefa yfir­völdum aukið svig­rúm til skatt­lagn­ingar á aflands­fé­lögum íslenskra skatt­að­ila. 

„Fari svo að frum­varpið verði sam­þykkt óbreytt er ljóst að það mun hafa alvar­legar afleið­ingar fyrir sam­keppn­is­hæfni íslenskra fyr­ir­tækja á alþjóðlegum mark­aði,“ segir í umsögn sam­tak­anna um stjórn­ar­frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, frum­varp sem rík­is­skatt­stjóri telur til bóta og í takt við alþjóð­legar aðgerð­ar­á­ætl­anir gegn skatta­snið­göngu.

Íslensk útibú KPMG, Deloitte og Ernst & Young vara ein­dregið við fyr­ir­hug­uðum laga­breyt­ingum rík­is­stjórn­ar­innar en sömu fyr­ir­tækja­sam­steypur hafa sætt harðri gagn­rýni á und­an­förnum árum vegna stór­tækrar ráð­gjaf­ar­þjón­ustu og sam­starfs við auð­menn og stór­fyr­ir­tæki á sviði skatt­skipu­lagn­ingar.

Vill skerpa á reglunum

Þann 5. des­em­ber síð­ast­lið­inn lagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra fram frum­varp sem felur meðal ann­ars í sér end­ur­skoðun á núgild­andi CFC-reglum (e. controlled for­eign corporation rules), reglum sem veita inn­lendum skatta­yf­ir­völdum heim­ild til að skatt­leggja tekjur félaga á lág­skatta­svæðum með tekjum þeirra skatt­borg­ara sem eiga eða stjórna félög­unum. 

Samkvæmt frum­varp­inu verður skil­grein­ing CFC-félaga víkkuð veru­lega og þannig girt fyrir að eig­endur aflands­fé­laga geti komið sér undan regl­unum með því að breyta félaga­formi skatta­skjóls­fé­lags­ins. Í frum­varp­inu er einnig kveðið á um að undir vissum kring­um­stæðum beri skatt­að­ilum að greiða tekju­skatt af tekjum erlends CFC-félags­ins án til­lits til úthlut­unar fjár­muna eða eigna. Þá er lögð aukin upp­lýs­inga­skylda á herðar Íslend­ingum sem eiga aflands­fé­lög; nú þurfa þeir að skila upp­lýs­ingum um CFC-félög til rík­is­skatt­stjóra á því formi sem emb­ættið ákveður óháð rekstr­ar­nið­ur­stöðu félag­anna. 

Þetta og fleira er að mati fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins nauð­syn­legt til að skerpa á og styrkja íslensku CFC-regl­urnar og bregð­ast við alþjóð­legri þróun. „Breyt­ing­arnar sem lagðar eru til með end­ur­bættu CFC-ákvæði hafa þann meg­in­til­gang, líkt og gild­andi ákvæði, að sporna við því að skatt­að­ilar rýri inn­lenda skatt­stofna með því að flytja tekjur eða tekju­aflandi eignir til skráðs lög­að­ila í lág­skatta­ríki, þ.m.t. á lág­skatta­svæði innan ríkis,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins, en með frum­varp­inu eru einnig lagðar til fleiri breyt­ingar, t.d. ákvæði sem er ætlað að sporna gegn skattaund­anskotum við útleigu vinnu­afls. 

„Fyrirtæki hrekjast úr landi“

Í umsögn Samtaka atvinnu­lífs­ins um frum­varpið kemur fram að regl­urnar muni hafa nei­kvæð áhrif á sam­keppn­is­stöðu Íslands og þeirra alþjóðlegu fyr­ir­tækja sem eru með höfuð­stöðvar á land­inu. „Afleið­ingin verður sú að fyr­ir­tæki hrekj­ast úr landi enda hægt að halda því fram að nær ómögulegt verði að reka alþjóðleg fyr­ir­tæki hér,“ segir í umsögn­inni. „Það ætti að vera for­gangs­verk­efni íslenskra stjórnvalda við laga­setn­ingu að gæta að sam­keppn­is­hæfni íslensks atvinnulífs.“

Kalla Samtök atvinnu­lífs­ins eftir því að CFC-reglum verði beitt „með þröngum hætti“ og „nái þar af leið­andi ein­ungis til tekna sem hefðu átt að vera skatt­lagðar í ríki þar sem móðurfélag er með heim­il­is­festi“.

Deloitte gagn­rýnir að í frum­varpi fjár­mála­ráð­herra sé not­ast við orðið „raunskatt­lagn­ingu“ sem sé óskýrt og opið til túlk­unar. Í sam­an­tekt fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á umsögnum kemur þó fram að það sé einmitt ætl­unin að veita skatta­yf­ir­völdum svig­rúm til túlk­unar.

Deloitte heldur því einnig fram, vegna ákvæða um aukna upp­lýs­inga­kvöð, að óvar­legt sé að gera ráð fyrir að skatt­að­ilar hafi „í öllum til­vikum aðgang að upp­lýs­ingum eða bók­halds­gögnum til að byggja árs­reikn­inga­gerð á“. Fjár­mála­ráðu­neytið gefur lítið fyrir þessa gagn­rýni: „Gera verður ráð fyrir að skatt­skyldir aðilar hafi aðgang að gögnum um félög sem þeir eiga eða hafa stjórnun­ar­leg yfirráð yfir. Mun nær­tækara er að þessir aðilar afli þess­ara gagna en skatt­yf­irvöld.“

KPMG setur fram harð­ari gagn­rýni en Deloitte og heldur því fram að frum­varps­drög fjár­mála­ráð­herra séu haldin slíkum ann­mörkum að þau séu „ekki tæk til þing­legrar með­ferðar“. Fyr­ir­tækið leggur áherslu á að „CFC reglur haf[i] nei­kvæð áhrif á sam­keppn­is­hæfi ríkja og alþjóðlegra fyr­ir­tækja“. Með fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum rík­is­stjórn­ar­innar sé jafn­vel verið að gera „nán­ast ómögu­legt að reka hér á landi alþjóð­leg félög“. 

Vafasamt hlutverk endurskoðunarrisanna

Upp­lýs­inga­lekar um aflands­fé­lög og skattaund­an­skot hafa varpað tals­verðu ljósi á veiga­mik­inn þátt end­ur­skoð­un­arrisanna fjög­urra, KPMG, Deloitte og Ernst & Young og PriceWaterhouseCoopers (sem stundum er vísað til sem The Big Four), í aflands­starf­semi á und­an­förnum árum, ekki síst Para­dís­ar­skjölin svoköll­uðu og Lúx­lek­inn. Þetta hefur komið af stað gagn­rýn­inni umræðu um hve gríð­ar­lega algengt það er að stjórn­völd hafi sam­ráð við eða kaupi jafn­vel þjón­ustu af stóru end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækj­unum við stefnu­mótun og smíði lög­gjafar á sviði skatta­réttar og skatt­eft­ir­lits. End­ur­skoð­un­arrisarnir fjórir eru einmitt á meðal þeirra ell­efu aðila sem fengu umsagn­ar­beiðni frá efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis við með­ferð frum­varps­ins um end­ur­skoðun CFC-regln­anna.

Í fyrra birtu fræði­menn við Aston Business School og hjá hug­veit­unni Tax Justice Network ítar­lega rann­sókn­ar­grein, „Tax haven networks and the role of the Big 4 accountancy firms“, þar sem færð eru rök fyrir því að alþjóða­fyr­ir­tæki sem nýta sér þjón­ustu end­ur­skoð­un­arrisanna fjög­urra séu lík­legri en önnur til að not­ast við skatta­skjól. Þá hafi fyr­ir­tæki til­hneig­ingu til að ganga lengra en áður í aðgerðum til að lág­marka skatt­greiðslur sínar eftir að þau ger­ast við­skipta­vinir end­ur­skoð­un­arrisanna. Fyr­ir­tækja­sam­steyp­urnar séu í raun lyk­il­þátt­tak­endur í skatta­skjóls­iðn­aði og hafi fjár­hags­lega hags­muni af því að slík starf­semi fái áfram að þríf­ast. 

Ekki of íþyngjandi segir ríkisskattstjóri

Af minn­is­blaði og umsögn rík­is­skatt­stjóra um frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar má ráða að emb­ættið sé sam­mála meg­in­at­riðum þess. Rík­is­skatt­stjóri telur breytta skil­grein­ingu á CFC-félagi til bóta og mik­il­vægt að lög­festa skýra upp­lýs­inga­skyldu eig­enda aflands­fé­laga. Ganga verði út frá því að hefð­bundin lág­skatta­svæði séu almennt nýtt til að koma tekjum undan skatt­lagn­ingu. 

„Ákvæði frum­varps­ins er í öllum meg­in­at­riðum í sam­ræmi við þá útfærslu sem fram kemur í til­skipun Evrópuráðsins (EU) 2016/1164 (ATAD),“ segir rík­is­skatt­stjóri en þarna vísar hann vænt­an­lega til skatta­snið­göngutil­skip­unar Evr­ópu­sam­bands­ins nr. 2016/1164, ekki til­skip­unar frá Evr­ópu­ráð­inu (e. Council of Europe).

„Til­skip­unin er sniðin að tillögum þeim sem fram koma í aðgerð­aráætlun OECD, þ.e. BEPS aðgerð­aráætl­un­inni, sem er hluti af þeim lágmarks­kröfum sem ríkjum er ætlað að fara eftir,“ segir í umsögn emb­ætt­is­ins. „Reynslan sýnir að í flestum til­vikum snýst stofnun CFC-félaga í grunn­inn um afar einföld umsvif, s.s. utan­um­hald um verð­bréfaeignir til­tek­inna aðila, þ.e. eig­enda félag­anna. Uppgjör CFC-félaga eru því almennt einföld og þannig ætti ekki að vera íþyngj­andi að stilla upp ársreikn­ingi eða upp­gjöri til að meta skatta­lega stöðu hverju sinni. Oftast er um að ræða utan­um­hald eigna í þágu ein­stak­linga en einnig inn­lendra félaga og verður ekki séð að umræddar reglur geti haft nei­kvæð áhrif á raun­veru­lega alþjóðastarf­semi íslenskra félaga erlendis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár