Stundatafla staðfestir að Jón Baldvin kenndi Matthildi og Maríu

Stunda­tafla úr Haga­skóla, sem Borg­ar­skjala­safn hefur afhent Stund­inni, stað­festir að Jón Baldvin Hanni­bals­son kenndi kon­unum sem saka hann um kyn­ferð­is­brot á tán­ings­aldri. Jón Baldvin hefur neitað að svara fyrir ásak­an­irnar á þeim grund­velli að engin gögn stað­festi kennslu hans, en sú full­yrð­ing hans stenst ekki.

Stundatafla staðfestir að Jón Baldvin kenndi Matthildi og Maríu

Stunda­tafla Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar frá því hann kenndi í Haga­skóla vet­ur­inn 1967 til 1968 stað­festir að hann kenndi bekknum sem Matt­hildur Krist­manns­dóttir og María Alex­and­ers­dóttir voru í. Báðar hafa sakað hann um kyn­ferð­is­lega áreitni við kennslu þegar þær voru 13 til 14 ára.

Jón Baldvin hefur hingað til neitað að svara fyrir lýs­ingar Matt­hildar og Maríu. „Það finn­ast engin gögn um það að ég hafi kennt í þess­ari bekkj­ar­deild,“ sagði Jón Baldvin í Silfrinu. „Á meðan það er hef ég ekki meira um það að segja.“

Matt­hildur lýsti í við­tali við Stundina 11. jan­úar að Jón Baldvin hefði reglu­lega látið hana sitja eftir að loknum tímum í íslensku. Hann hafi snert hana og gengið lengra í hvert skiptið.

„Hann hélt áfram að strjúka mér og fór að troða sér aftan á stól­inn hjá mér,“ sagði Matt­hildur. „Þetta var svona gam­all skóla­stóll með algjör­lega beinu baki og beinu sæti. Honum tókst að troða sér fyrir aftan mig á milli mín og stól­baks­ins. Ég sat alveg á nipp­inu á stólnum. Hann var mjög grannur á þessum árum og ég líka og þetta tókst honum að gera. Hann byrj­aði að káfa á mér allri og sleikti á mér háls­inn og eyrað og kinn­ina. Ég var algjör­lega frosin. Ég gat ekki staðið upp. Ég gat ekki sagt neitt. Ég bara sat. Ég man eftir hvað ég skamm­að­ist mín fyrir hvað væri að ger­ast.“

María Alex­and­ers­dóttir, sem var í sama bekk, lýsti því að hún hefði ótt­ast að verða næst. „Nema svo stuttu eftir þetta var hann alltaf að grúfa sig yfir mig í tímum, eins og hann væri að skoða hvað ég væri að gera og strjúka á mér axl­irnar í leið­inni,“ sagði María. „Hann lagði hend­urnar yfir axl­irnar og strauk mig og grúfði sig alveg upp við and­litið á mér. Og þetta fannst mér alveg hræði­lega óþægi­legt.“

Loks hafi komið að því að hann hafi sagt henni að sitja eftir. „Þá sagði ég nei, ég vildi ekki lenda í því sama og Matt­hildur. Eftir það lét hann mann í friði. Þetta var alveg nóg til að maður var alltaf drullu­hræddur. Ég var búin að lenda í ýmsu tvö sumur áður í sveit. Ég vissi nákvæm­lega hvað karl­inn ætl­aði sér.“

Mótmælti því að Stundin fengi gögn

María Alex­and­ers­dóttir

Borg­ar­skjala­safn Reykja­víkur afhenti Stund­inni stunda­töfl­una í dag eftir upp­lýs­inga­beiðni í vik­unni. Jón Baldvin mót­mælti því við safnið að Stundin fengi afhent þau gögn sem hann sjálfur hafði óskað eftir. „Ég fékk það svar, að engin slík gögn hefðu fund­ist,“ skrif­aði hann þegar honum hafði verið til­kynnt um and­mæla­rétt sinn vegna fyr­ir­spurnar Stund­ar­innar. „Ég hef ekk­ert við það að athuga, að blaða­maður fái það stað­fest. Ég sé hins vegar enga ástæðu til, að hann fái afhent gögn um kennslu mína, að öðru leyti.“

Stund­ar­t­öfl­urnar frá Skóla­skrif­stofu, sem Jón Baldvin fékk með tölvu­pósti á sama tíma og Stundin, stað­festa hins vegar kennslu hans í íslensku við bekk­inn 2.X vet­ur­inn 1967 til 1968. Kenndi hann bekknum sex sinnum í viku. Bekkj­ar­listi, sem Borg­ar­skjala­safn afhenti einnig, stað­festir að Matt­hildur og María voru báðar í bekknum, auk tveggja ann­arra kvenna sem Stundin hefur rætt við til stað­fest­ingar á frá­sögnum þeirra.

„Skjala­safn Reykja­víkur hefur leitað dyrum og dyngjum,“ skrif­aði Jón Baldvin í grein í Frétta­blað­inu á mánu­dag. „Þar er að finna fullt af gögnum um, hvar, hvenær og hverjum ég kenndi. Engin gögn fyr­ir­finn­ast um að ég hafi kennt umræddum bekk. Meðan svo er, hef ég ekki meira um það að segja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár