Hækkuðu laun hjá Íslandspósti fyrir neyðarlán

Laun stjórnar Íslands­pósts hafa hækkað um 65% frá árinu 2014 og starfs­menn fengu launa­upp­bót í fyrra. Rúmu hálfu ári síðar þurfti rík­is­sjóður að veita neyð­ar­lán.

Hækkuðu laun hjá Íslandspósti fyrir neyðarlán

Stjórn Íslands­pósts ohf. ákvað í upp­hafi árs 2018 að greiða starfs­mönnum launa­upp­bót vegna góðrar afkomu fyr­ir­tæk­is­ins. Rúmu hálfu ári síðar fékk fyr­ir­tækið 500 milljón króna neyð­ar­lán frá rík­is­sjóði til að bjarga því frá gjald­þroti. Um svipað leyti lagði stjórnin til að laun sín yrðu hækkuð.

Frétta­blaðið fjallar um málið í dag upp úr fund­ar­gerðum stjórn­ar­innar. Á þeim má skilja að Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts, hafi lagt til að greiða starfs­fólki launa­upp­bót í jan­úar 2018. Fyr­ir­tækið hafi hagn­ast um 216 millj­ónir árið 2017. Var sam­þykkt að greiða föstum starfs­mönnum 20 þús­und krónur í upp­bót og hluta­starfs­fólki frá 10 þús­und krónum miðað við starfs­hlut­fall.

Á fundi stjórn­ar­innar 23. febr­úar var svo gerð til­laga um að laun stjórn­ar­manna mundu hækka úr 140 þús­und í 165 þús­und krónur á mán­uði. Formaður er á tvö­földum launum, sem hækk­uðu því úr 280 þús­und í 330 þús­und krónur. Nam hækk­unin 18 pró­sentum.

Sé litið aftur til árs­ins 2014 hafa laun stjórn­ar­manna hækkað á hverju ári, eða um 65 pró­sent á tíma­bil­inu, hafi til­lagan á stjórn­ar­fund­inum í febr­úar í fyrra verið sam­þykkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár