Segja Báru hafa brugðið sér í dulargervi og ítreka kröfuna um að hún verði sektuð

Þingmenn Mið­flokks­ins fara fram á að Per­sónu­vernd afli myndefnis sem sýni manna­ferðir fyrir utan Klaustur og láti sér í té. Þá telja þeir mik­il­vægt að Per­sónu­vernd sekti Báru Hall­dórs­dóttur.

Segja Báru hafa brugðið sér í dulargervi og ítreka kröfuna um að hún verði sektuð

Reimar Pét­urs­son, lög­maður þing­manna Mið­flokks­ins sem sátu á Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, hefur sent Per­sónu­vernd bréf þar sem ítrekuð er sú krafa að Bára Hall­dórs­dóttir verði sektuð. Þá er farið fram á að Per­sónu­vernd afli myndefnis sem sýni manna­ferðir fyrir utan Klaustur þetta kvöld og láti þing­mönn­unum í té. Fram kemur að þeir hafi þegar óskað eftir aðgangi að myndefn­inu án árang­urs.

„Umbjóð­endur mínir telja sig þurfa að fá aðgang að þessu myndefni, ekki bara vegna dóms­máls sem þeir íhuga að höfða, heldur einnig og ekki síður vegna með­ferðar máls þessa hjá Per­sónu­vernd,“ segir í bréfi Reimars sem Stundin hefur undir höndum. Umbjóð­endur hans eru þeir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Anna Kolbrún Árna­dóttir og Bergþór Ólason. Sá síð­ast­nefndi er for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis.

„Álagning stjórn­valds­sekta er liður í virkri rétt­ar­vernd fyrir ólög­mætum inn­gripum í frið­helgi einka­lífs. Má því ætla að Per­sónu­vernd sé skylt að leggja þær á nema álagn­ing þeirra teld­ist „ótví­rætt brot“ á rétti til tján­ing­ar­frelsis skv. stjórn­ar­skrá,“ segir í bréf­inu. 

Sem fyrr er því haldið fram að frá­sögn Báru sé afar ótrú­verðug og brýnt sé að rann­saka „hversu ein­beitt hún gekk til aðgerða sinna og, eftir atvikum, hvort um sam­verknað hafi verið að ræða“. Fram kemur að það hve lengi Bára sat á Klaustri gefi til­kynna að „ásetn­ingur til aðgerð­anna hafi ekki aðeins verið styrkur, heldur hafi verið tek­inn frá tími til þeirra á kostnað ann­arra hluta“. Þannig gefi tíma­lengd aðgerða til kynna að „ein­hver skipu­lagn­ing hafi verið að baki þeim“. 

Reimar Pét­urs­sonlög­maður Mið­flokks­manna.

Í bréfi Reimars er einnig lögð áhersla á að Bára hafi brugðið sér dul­ar­gervi. „Til að forð­ast athygli umbjóð­enda minna virð­ist gagn­að­ili hafa tekið sér gervi erlends ferða­manns. Hún hafi gert sér far um að haga sér sem slíkur. Þannig hefur gagn­að­ila sagst hafa haft „bæk­linga um inn­an­lands­ferðir og vin­sæla ferða­manna­staði“ með­ferðis þegar hún mætti á Klaustur. Hún „þótt­ist“ lesa þá til að við­halda leynd um aðgerðir sínar.“ Fram kemur að þetta gefi til kynna að „gagn­að­ili hafi verið búinn að ákveða gervi sitt áður en hún kom á stað­inn.“ 

Bára og verj­end­urnirRagnar Aðal­steins­son og Auður Tinna Aðal­bjarn­ar­dóttir af Rétti lög­manns­stofu ásamt Báru Hall­dórs­dóttur.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár