Maður fannst látinn á Litla Hrauni

Enn eitt sjálfs­vígið í íslenskum fang­elsum.

Maður fannst látinn á Litla Hrauni

Komið var að íslenskum manni látnum í fanga­klefa á Litla Hrauni í morgun. Málið er nú til rann­sóknar hjá lög­reglu en ekk­ert bendir til þess að um sak­næman verknað hafi verið að ræða, heldur hafi hann framið sjálfs­víg, að því er kemur fram á mbl.is sem greindi fyrst frá mál­inu.

Þar er rætt við Pál Winkel fang­els­is­mála­stjóra sem segir: „Við erum sleg­in, okk­ar fyrsta verk­efni er að hlúa hvert að öðru, bæði starfs­fólki og vist­mönn­um.“

Haft hefur verið sam­band við aðstand­endur hins látna og sett af stað við­bragðs­á­ætlun sem felst fyrst og fremst í því að tryggja öryggi allra og hlúa vel að vist­mönnum og starfs­fólki.

Sjálfsvíg í fangelsum 

Tæpt er ár er liðið frá því að annar maður fyr­ir­fór sér í íslensku fang­elsi. Styrmir Haukdal Krist­ins­son svipti sig lífi á Kvía­bryggju þann 13. febr­úar 2018. Tæpu ári áður fannst Eiríkur Fannar Trausta­son með­vit­und­ar­laus í klefa sínum í fang­els­inu á Akureyri í mars 2017, en hann lést skömmu síðar. Eiríkur Fannar afplán­aði dóm fyrir hrotta­lega nauðgun í Hrísey en eftir and­lát hans vakti sam­býl­is­kona hans athygli á sjálfs­vígum ungra karl­manna. „Kannski hélstu að þú værir að gera mér greiða með því að svipta þig líf­inu. Það er óbæri­leg til­hugsun,“ skrif­aði Halla Björg, sem lauk pistli sínum á þeim orðum að sjálfs­víg eru ekki tabú. 

Andlát þeirra vakti miklar umræður um geð­heil­briðg­is­mál fanga sem eru í lama­sessi, þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar þess efnis um ára­bil.

Í umfjöllun DV um mál þeirra kom fram að frá árinu 1994 hafði Styrmir hlotið ell­efu dóma og fimm sinnum verið vistaður í fang­elsi, þar sem hann hafði dvalið í rúm fimm ár innan veggja kerf­is­ins án þess að fá þá aðstoð sem hann þurfti. Í við­tali frá árinu 2004 greindi hann frá því að hann hefði skorið móður sína á háls í geð­veikis­á­standi. Hún hlaut ekki var­an­legan skaða af en hann var úrskurð­aður ósak­hæfur vegna geð­klofa. Í því við­tali kom fram að hann ætti sér draum um eðli­legt líf án áfengis, þar sem hann væri ekki í vernd­uðu  umhverfi heldur búinn að koma sér upp fjöl­skyldu. Í júlí 2017 var hann enn á ný í fang­elsi þar sem hann lenti í alvar­legum átökum við sam­fanga sinn sem voru sögð hafa haft slæm áhrif á and­lega líðan hans og heilsu. 

Í kjöl­far þeirrar umræðu steig móðir Hilmars Más Gísla­sonar fram í við­tali við DV, en sonur hennar framdi sjálfs­víg í fang­elsi árið 2007 án þess að fá nokkurn tím­ann við­tal við sál­fræð­ing eða geð­lækni á meðan hann sat inni. Hafði Hilmar verið greindur með ofvirkni og athygl­is­brest og átt erfitt upp­dráttar í skóla, verið mis­þroska en kom að lok­uðum dyrum í kerf­inu þar sem lítið var um úrræði. Fyrsti dóm­ur­inn yfir Hilmari féll þegar hann var nítján ára gam­all og fékk 45 daga skil­orðs­bund­inn dóm fyrir nytja­stuld. Tveimur árum síðar hafði hann fengið fimmtán dóma fyrir ýmis­konar brot, aðal­lega umferð­ar­laga­brot og þjófnað. Í tvígang afplán­aði hann dóma í fang­elsi áður en honum var gert að fara inn á Litla Hraun árið 2007. Hann hafði þá fengið þriggja mán­aða fang­els­is­dóm vegna ofsa­akst­urs en lést eftir sex vikna fang­els­is­vist. „Ég segi alltaf að hann hafi gef­ist upp. Ég heyrði í honum stuttu áður og fann að það var eitt­hvað að, hann var svo nið­ur­dreg­inn. Venju­lega var hann kátur og hress. En þetta grun­aði engan,“ sagði móðir hans, Ragn­heiður Hilm­ars­dóttir. 

Fangar fá ekki langtímavistun á geðsviði Landspítala

Umboðs­maður Alþingis hefur áréttað að vistun geð­sjúkra manna í fang­elsi kunni að brjóta gegn ákvæðum stjórn­ar­skrár og Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, Evr­ópu­nefnd gegn pynd­ingum hefur beint áþekkum til­mælum til stjórn­valda hér á landi og Rík­is­end­ur­skoðun hefur ítrekað bent á nauð­syn þess að stjórn­völd móti heild­ar­stefnu um mál­efni geð­sjúkra fanga, þar sem þörfum þeirra hefur ekki verið mætt með við­eig­andi hætti. 

Nánast úti­lokað hefur verið að fá lang­tíma­inn­lögn fyrir geð­sjúka fanga á geðsviði Land­spít­ala, eins og fram í frum­kvæð­is­at­högun umboðs­manns Alþingis árið 2013, og eins í máli fanga­varðar sem Stundin ræddi við í vett­vangs­grein frá Hólms­heiði árið 2017. 

Þar sagði Magnús Páll sem hefur starfað sem fanga­vörður í ára­tugi að hug­takið geð­sjúkir fangar ætti ekki að vera til, þar sem refsi­vist þjóni ekki til­gangi sínum ef fangi er veikur á geði. Lýsti hann atviki þar sem fangi í geð­rofi réðst að fanga­verði. „Það var engin aðstoð í boði,“ segir Magnús Páll. „Ann­að­hvort urðum við að flytja hann með lög­reglu eða láta hann vera þar sem hann var. Engin úrræði voru upp á að hlaupa til að koma honum í réttar hendur. Í lang­flestum til­vikum var föngum hafnað á geð­deild á þeim for­sendum að fangar ættu heima í fang­elsi en ekki á geð­sjúkra­húsi, jafn­vel þó að þeir væru veikir.“

Lýstu úrræðaleysinu sem mætti þeim 

Í vett­vangs­grein Stund­ar­innar frá fang­els­inu á Hólms­heiði var rætt við fanga sem þar afplán­uðu sinn dóm og lýstu úrræða­leys­inu sem mætti þeim: „Á meðan ég hef setið inni hef ég ekki fengið eitt við­tal hjá sál­fræð­ingi eða geð­lækni,“ sagði ung kona sem hafði fengið sál­fræði­mat um áfallastreituröskun áður en hún hóf afplánun. „Hæst var hægt að skora 56 stig en ég var með 54, þannig að með réttu ætti ég að vera undir hand­leiðslu sál­fræð­ings eða geð­læknis. Ég hef verið með báðar hendur útréttar að kalla eftir aðstoð en ekki fengið,“ sagði Berglind Fríða Stein­dórs­dóttir.  

Í sömu grein var rætt við fanga­vörð sem hafði verið á vakt þegar fangi fannst lát­inn í klefa sínum í Kópavogi eftir sjálfs­víg. „Það er senni­lega það erf­ið­asta sem ég hef staðið frammi fyrir og mikið áfall fyrir alla sem voru í hús­inu, bæði fanga og fanga­verði. Þetta gleym­ist ekki.“ Við tók langt og strangt sorg­ar­ferli, sem hafði mikil áhrif á alla í hús­inu og starfs­fólkið allt. Margir hættu í kjöl­farið og fóru að vinna við annað.

Í umfjöllun Stund­ar­innar frá árinu 2017 kom fram að hjá Fang­els­is­mála­stofnun væru tvö stöðu­gildi fyrir sál­fræð­inga, og þar af sinnti annar þeirra öllum föngum í fang­elsum. Mikið álag var á við­kom­andi starfs­manni sem hafði á einu ári tekið 450 við­töl við fanga. Að sama skapi var einn félags­ráð­gjafi að sinna öllum föngum.

 Enginn geðlæknir í fangelsum 

Litla-Hraun er eina fang­elsi lands­ins þar sem sál­fræð­ingur hefur fasta við­veru, en í dag eru alls þrjú stöðu­gildi fyrir sál­fræð­inga hjá Fang­els­is­mála­stofnun og sinna þeir öllum fang­elsum á land­inu, sem og skil­orðs­eft­ir­liti. Engin föst við­vera er á Kvía­bryggju og á Akureyri, en sál­fræð­ingur fer viku­lega á Hólms­heiði og Sogn. Enginn geð­læknir hefur starfað í fang­elsum lands­ins frá árinu 2013 þegar geð­læknir á Litla Hrauni sagði starfi sínu lausu vegna þess hversu illa var staðið að geð­heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir fanga.

„Það er búið að gera ýmsar skýrslur, úttektir, grein­ar­gerðir og annað sem nauð­syn­legt var að gera. Fyrir liggur að óháðir eft­ir­lits­að­ilar, inn­lendir sem erlendir, hafa ítrekað gert alvar­legar athuga­semdir við heil­brigð­is­þjón­ustu og sér­stak­lega geð­heil­brigð­is­þjón­ustu fanga,“ sagði Páll Winkel í sam­tali við Frétta­blaðið í fyrra, þar sem fram kom að úrbótum í geð­heil­brigð­is­þjón­ustu í fang­elsum hefði ekk­ert miðað áfram þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar eft­ir­lits­að­ila og sjálfs­víg fanga. „Í mínum huga er næsta skref ein­falt. Það þarf að skil­greina heil­brigð­is­þjón­ust­una, það þarf að fjár­magna hana og veita hana,“ sagði Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár