Tíu mest lesnu pistlar Stundarinnar árið 2018

Misrétti, ras­ismi og réttur reiðra karla, lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og eft­ir­sjá eldri borg­ara. Um þetta og fleira var fjallað í tíu mest lesnu pistlum Stund­ar­innar árið 2018.

Tíu mest lesnu pistlar Stundarinnar árið 2018

1 Við erum öll þessi kona

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir skrif­aði mest lesna pistil árs­ins á Stund­inni, en hann var les­inn 113.194 sinnum. Pistill­inn fjall­aði um að kona sem varði dóttur sína með hótun var ákærð á meðan málið hafði velkst um í kerf­inu um ára­bil án þess að það væri fellt niður eða mann­inum birt ákæra. Engin ákæra hafði heldur enn verið lögð fram vegna hrotta­feng­innar árásar á konu í Vest­manna­eyjum. „Það er jú bannað að hóta að drepa fólk, jafn­vel þótt hót­unin sé ekk­ert sér­lega ógn­vekj­andi, heldur bara ótta­slegin kona að reyna að verja dóttur sína, fyrir manni sem hún grunar um að vera ofbeld­is­maður, af því að lög­gæslan og dóms­kerfið gerir það ekki. Hann nýtur vafans og frels­is­ins, hún er með kvíða­hnút í mag­anum vegna þess sem það kann að hafa í för með sér.“

2Ég bið alla að fyrirgefa mér

Margrét S. Sölva­dóttir harm­aði að hafa hvatt fólk til þess að kjósa Vinstri græn í aðsendri grein. „Við getum treyst Katrínu Jak­obs­dóttur,“ sagði ég,“ skrif­aði Margrét. „Hvernig átti mig að gruna að Vinstri græn gætu skipt svo gjör­sam­lega um stefnu á einni nóttu? Flokkur sem hefur talað gegn spill­ingu í íslenskum stjórn­málum alla tíð og segir svo bara „Já, takk“ þegar honum var boðið í stjórn­arpartýið. Fyr­ir­gefið mér góðu vinir það hvarfl­aði ekki að mér að slíkt gæti gerst. Ég fór meira að segja að reyna að finna ein­hverja afsökun fyrir þessu úts­lagi hjá for­mann­inum. Ætlaði hann að breyta hugsun Sjálf­stæð­is­manna svo gjör­sam­lega að aldr­aðir og fátækir fengu loks­ins upp­reisn og til­baka eitt­hvað af þeim auði sem tek­inn hefur verið frá þeim með óstjórn, skerð­ingum og beinum þjófn­aði?“


3 Árshátíð andlega gjaldþrota auðmanna 2018

Bragi Páll Sig­urð­ar­son skrif­aði vett­vangspistil frá lands­fundi Sjálf­stæð­is­manna árið 2015. Hann mætti aftur á lands­fund­inn 2018, þar sem hann hlýddi á setn­ing­ar­ræðu for­manns­ins, Bjarna Bene­dikts­sonar, og lýsti and­rúms­loft­inu í salnum í einum umdeildasta pistli árs­ins. „Mynd­bandið end­aði á dúndr­andi júrópoppi. Ljósin upp. Stand­andi lófa­klapp á meðan for­ing­inn gengur í mahónípont­una. Framan á henni er risa­vax­inn, gylltur fas­ista-örn­inn með spilltan væng­faðm­inn útbreiddan. Undir lófa­klapp­inu hvísl­aði hann út um gogg­inn „leyfið barn­a­níð­ing­unum að koma til mín“.“

4Réttur reiðra karla

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri Stund­ar­innar, skrif­aði leið­ara um sví­virð­ing­arnar sem dynja á konum sem sýna reiði vegna þess að kerfið bregst þolendum kyn­ferð­is­of­beldis. „Skila­boðin eru skýr. Ekki reið­ast, umfram allt ekki tjá þá reiði. Réttur karla til að brjóta gegn konum og við­halda kerfi sem bregst, er meiri en réttur kvenna til að reið­ast vegna þess. Það góða er samt að þótt þögg­un­ar­til­burð­irnir svíði þá munu þeir aldrei aftur hafa sömu áhrif og áður. Kallið konur ímynd­un­ar­veikar, athygl­is­sjúkar, fégráð­ugar. Segið þær móð­ur­sjúkar, dramat­ískar, húmors­lausar eða hör­unds­sárar. Afskrifið þær sem femínista- eða „öfga­femínista­tussur“, en vitið samt að þær munu ekki þagna.“

5 Átröskun í sjúku samfélagi

Alma Mjöll Ólafs­dóttir skrif­aði um eigin reynslu af veik­indum og sjúku hug­ar­fari sam­fé­lags­ins. Á sama tíma og hún leið út af vegna vannær­ingar hrós­aði fólk henni óspart fyrir útlitið, fyrir það að vera föl, mjó og fal­leg, fár­veik af átröskun. „Aðrir töl­uðu um að ég hefði grennst og fólk var dug­legt við að láta mig vita af því. Ekki ein­ungis þeir sem stóðu mér næst heldur líka kunn­ingjar úti á götu. Fólk var gjarnt á að segja mér hvað ég liti vel út! Ég hafði aldrei á ævinni verið jafn vannærð og veiklu­leg. Fólk sagði til ham­ingju. Ég hafði í þeirra augum náð ein­hverjum áfanga og eftir því sem fólk sagði þetta oftar náði sig­ur­víman að end­ast lengur og lengur í hvert skipti. Því veik­ari sem átrösk­un­ar­sjúk­lingur verður því fleiri hrós fær hann. Hann þarf ekki ein­ungis að vinna úr sínum eigin rang­hug­myndum, hann er fórn­ar­lamb rang­hug­mynda sam­fé­lags­ins. Þvílík leiga sem ein mann­eskja þarf að borga fyrir til­vist sína.“

6 Snædís tók líf sitt eftir að hafa mætt hunsun heilbrigðiskerfisins

Í aðsendri grein minnt­ust aðstand­endur Snædísar Gunn­laugs­dóttur sem hetju með ótrú­legt vilja­þrek. Hún barð­ist við veik­indi og kvalir í tvö ár án þess að fá úrlausn meina sinna, áður en hún svipti sig lífi. Í grein­inni hvöttu aðstand­endur hennar fólk til að gef­ast ekki upp heldur finna hjálp. „Síðasti lækn­ir­inn sem hún heim­sótti á þessu 24 mán­aða tíma­bili sagði henni að skrá sig inn á Vog hjá SÁÁ og það myndi duga. Hún Snædís mín hvorki reykti né drakk áfengi og not­aði ekki lyf til að kom­ast í ein­hverja vímu. Þetta voru síð­ustu til­raunir hennar til að fá lækn­ingu. Kerfið sjúk­linga­væddi hana skipu­lega. Og örugg­lega.“

7 Drengurinn í hellinum

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir skrif­aði pistil um það hvernig lög­fræð­ingar rík­is­ins börð­ust í átta ár af fullri hörku við for­eldra barns með hræði­legan sjúk­dóm. „Móðirin sagði eftir að dóm­ur­inn féll fyrir viku að það hefði verið erf­ið­ara að eiga við kerfið en að eiga lang­veikt og fatlað barn. Ofbeldi kerf­is­ins var svo yfir­gengi­legt að það yfir­skyggði martröð allra for­eldra. Hvað ætli það hafi kostað Trygg­inga­stofnun að hafa fólk í vinnu við að sitja við skrif­borð, naga blý­anta og velta sér af einni rasskinn yfir á aðra, meðan það upp­hugs­aði laga­brellur og klæki til að hrista af sér fólk sem er svo blindað af frekju að það telur sig geta gert kröfur um umönn­un­ar­bætur fyrir barn.“

8Ógeðslega þjóðfélagið“ næst á upptöku

Jón Trausti Reyn­is­son, rit­stjóri Stund­ar­innar, skrif­aði pistil í kjöl­far frétta af fundi þing­manna á Klaustri. Fundur Sig­mundar Davíðs og hóps­ins sem aldrei skyldi svik­inn, um kuntur, tíkur og tryggð, segir okkur sögu af sam­fé­lag­inu sem við höfum reynt að upp­færa. „Við vitum núna að það sem kallað var „ógeðs­legt þjóð­fé­lag“, (engin prinsipp, engar hug­sjónir, bara tæki­fær­is­mennska og valda­bar­átta), af einum helsta plott­ara síð­ustu aldar í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis, flaut með í gegnum allar upp­færsl­urnar okkar, hrunið, upp­gjörið, end­ur­reisn­ina, Panama­skjölin og Me too. Það er enn sagt að það sé ekki „hluti af menn­ing­unni“ að axla ábyrgð. Eða er það ekki hluti af karl­menn­ing­unni að axla ábyrgð?“

9 Åbent brev til Pia Kjærsgaard

Illugi Jök­uls­son skrif­aði opið bréf til Piu Kjærs­gaard svo hún myndi ekki halda að ræðu­höld hennar á Þing­velli í dag séu til marks um að almenn sjón­ar­mið hennar njóti vel­vilja á Íslandi. „Íslenskt þjóð­fé­lag er ekki full­komið, en einn er sá ófögn­uður sem við höfum verið svo heppin að vera að mestu laus við. Það er sá fjand­skapur í garð útlend­inga – þar á meðal og ekki síst varn­ar­lausra flótta­manna – sem þú og þinn flokkur hafið gert út á í Danmörku.“

10 Sannleikurinn um Viðar Guðjohnsen

Jón Trausti Reyn­is­son, rit­stjóri Stund­ar­innar, skrif­aði um fram­bjóð­anda til odd­vita í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. „Viðar Guðjohn­sen er ekki vit­leys­ingur. Viðar er ein rödd í kór ráð­andi stjórn­mála­afls á Íslandi, ekki eðl­is­ó­lík, heldur á öðru stigi en meg­in­línan. Allar hug­myndir hans eiga sér ein­hverja birt­ing­ar­mynd í stjórn­málum og veru­leik­anum. Stóra lygin er að frjáls­hyggjan í fram­kvæmd leiði af sér frelsi fyrir ein­stak­ling­inn, frekar en aukið vald þröngs hóps yfir öðrum, og skapi sam­fé­lags­legan styrk. Þú ert ekki frjáls ef þú færð ekki tæki­færi til að byggja upp getu og full­nýta hæfi­leika þína vegna þess að þeir efn­uð­ustu hafa tekið vald yfir þér og sam­fé­lag­inu þínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár