Formaður Sjómannafélags Íslands gefur lítið fyrir gagnrýni félagsmanna

Helgi Krist­ins­son, sitj­andi for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, hlær að gagn­rýni félags­manna á aðal­fund félags­ins sem haldin var í gær og segir fund­inn að mestu hafa farið vel fram. Félags­menn segj­ast ekki fengið við­hlít­andi skýr­ingar á fjár­málum félags­ins auk þess sem þeir fyr­ir­huga að segja sig úr því.

Formaður Sjómannafélags Íslands gefur lítið fyrir gagnrýni félagsmanna
Banda­menn Jónasar Bergur Þor­kells­son, núver­andi gjald­keri Sjó­manna­fé­lags Íslands og verð­andi for­maður þess, og Helgi Krist­ins­son, sitj­andi for­maður, hafa verið á bandi Jónasar Garð­ars­sonar, fyrrum for­manns.

„Þetta fór frekar vel fram bara fannst mér,“ segir Helgi Krist­ins­son, sitj­andi for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, sem gefur lítið fyrir gagn­rýni félags­manna á það hvernig aðal­fundur félags­ins fór fram í gær, fimmtu­dag. Stjórn félags­ins hefur meðal ann­ars verið gagn­rýnd fyrir að senda aðal­fund­inn ekki út með fjar­fund­ar­bún­aði til þess að gera félags­mönnum af lands­byggð­inni kleift að taka þátt auk þess sem ákveðnum félags­mönnum finnst sem þeir hafi ekki ennþá hafa fengið við­hlít­andi skýr­ingar á fjár­málum félags­ins. Stundin greindi frá því í nóv­em­ber að félags­menn hefðu þá þegar óskað eftir und­ir­skrif­uðum árs­reikn­ingum sem og hreyf­ing­ar­listum en ekki fengið.

Einn félags­manna, Rúnar Gunn­ars­son, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV í gær, að það hefði soðið upp úr á fund­inum þegar kosn­ing í nefndir félags­ins hófst. Helgi gefur lítið fyrir þessar lýs­ingar og segir að tveir til þrír stuðn­ings­menn Heið­veigar Maríu Ein­ars­dóttur hafi verið með frammíköll og síðar rokið á dyr. Sigurður Jóhann Atlason er á meðal þeirra félags­manna sem hefur til­kynnt um úrsögn úr félag­inu í kjöl­far fund­ar­ins. Hann skrif­aði pistil sem fengið hefur dreif­ingu á Facebook þar sem hann til­kynnti um úrsögn sína úr félag­inu í ljósi þess að þol­in­mæði hans gagn­vart stjórn­inni væri komin að þrotum. Þá sagði hann að svo virt­ist sem sjóðir félags­ins væru tómir. 

Sitjandi for­maður hlær að þess­ari gagn­rýni og segir skrítið að þetta komi umræddum félags­manni á óvart enda hafi félagið greitt út 107 millj­ónir króna í verk­falls­bætur sem hafi haft sín áhrif á sjóði félags­ins. „Ég er mjög hissa ef að hann er mjög hissa, því vænt­an­lega hefur hann notið góðs af þessu gati þarna þegar verk­falls­bót­unum var útbýtt þarna í þessu verk­falli,“ segir Helgi sem tekur fram að þótt sjó­manna­verk­fallið hafi verið blóð­ugt fyrir félagið sé fjár­hags­staða þess enn ágæt. „Við eigum pen­inga ennþá til og það er sjálf­bært félagið, þannig að þetta er allt í fínum gír sko.“

Geta ekki valið sér stól

Sjó­manna­fé­lagið hefur verið mikið í umræð­unni síð­ustu vikur og mán­uði, sér­stak­lega eftir að Heiðveig María Ein­ars­dóttir, sjó­maður og við­skipta­lög­fræð­ingur, var gerð brott­ræk þaðan á þeirri for­sendu að hún hefði skaðað hags­muni félags­ins með gagn­rýni sinni. Bergur Þor­kells­son, núver­andi gjald­keri félags­ins, leiddi A list­ann, þann eina sem var í fram­boði, og verður því næsti for­maður félags­ins. „Það var ekki nema eitt gilt fram­boð og þar var Bergur for­maður og mjög góður maður í starfið,“ segir Helgi Krist­ins­son, sitj­andi for­maður, í sam­tali við Stundina. 

Hann við­ur­kennir að það hafi ekki ennþá gróið um sár síð­ustu vikna. „Þeir eru ekk­ert sáttir og vildu nátt­úru­lega bara breyta fund­ar­sköpum í gær. En þetta er ekk­ert öðru­vísi hjá okkur heldur en öðrum félögum, þú kemur ekk­ert bara inn af göt­unni og velur þér stól.“ Sem fyrr segir greindi frétta­stofa RÚV frá því að aðal­fund­inum hefði verið slitið á sjö­unda tím­anum í gær vegna mik­ils ósættis sem hefði komið upp á fund­inum. Þá var haft eftir Rúnari Gunn­ars­syni, einum félags­manna, að soðið hefði upp úr þegar kosn­ing í nefndir félags­ins hófst.

„Þú kemur ekk­ert bara inn af
göt­unni og velur þér stól“

Helgi Krist­ins­son gerir almennt lítið úr óánægju­röddum félags­manna í sam­tali við Stundina og segir að fund­ur­inn hafi að mestu leyti farið frið­sam­lega fram. „Þetta voru alla­vega ekki nein læti þarna,“ segir hann aðspurður um lýs­ingar félags­mann­anna. Hann lýsir atburð­ar­rásinni þannig að nokkrir félags­menn hafi til að byrja með verið með frammíköll í byrjun fund­ar­ins en það hafi lag­ast þegar líða fór á fund­inn og menn fóru upp í pontu til þess að koma skoð­unum sínum á fram­færi. 

Segja sig úr félaginu

„Strax í fyrra­málið mun ég senda ykkur úrsögn úr félag­inu þar sem ég mun áskilja mér rétt til að sækja félags­gjöld mín til baka ef það kemur upp úr krafs­inu að ólög­leg athæfi hafi átt sér stað innan félags­ins,“ skrif­aði félags­mað­ur­inn Sigurður Jóhann meðal ann­ars í pistli sem birtur var í gær og fengið hefur dreif­ingu á Facebook. „Ég mun biðja minn launa­full­trúa um að halda eftir félags­gjöld­unum mínum næsta mán­uð­inn á meðan við sjó­menn skoðum hvar hag okkar er best borgið því eftir árekstra sein­ustu vikna og mán­uða og skoðun árs­reikn­ing­anna í dag, þar sem sjóð­irnir virð­ast tómir, er aug­ljóst að eitt­hvað mikið er að í félag­inu sem ég hélt að væri mitt.“ 

Annar félags­maður, Ingi Þór H. tekur í sama streng í stöðu­upp­færslu á Facebook en hann segir að spurn­ingum félags­manna hafi ekki verið svarað að fullu á aðal­fund­inum. „Þegar kemur að bók­haldi þessa bless­aða félags þá virð­ist ekki standa steinn yfir steini neins­staðar,“ skrifar Ingi sem hyggst einnig segja sig úr félag­inu. „Ég ætla að gera eins og aðrir halda félags­sjöld­unum mínum frá sjó­manna­fé­lagi íslands næstu mán­að­ar­mót þangað til ég sé hvað ég ætla að gera. Því þessi A listi er ekki minn listi, ef mér er neitað um lýð­ræði árið 2018 þá neita ég ykkur um pen­ing­ana mína.“

Í færslu sinni segir Sigurður Jóhann meðal ann­ars að ekki hafi feng­ist við­hlít­andi skýr­ingar á árs­reikn­ingum og að fundi hefði verið slitið án þess að þær laga­breyt­ingar sem bornar hefðu verið upp hefðu verið afgreiddar. „Þeir gengu út, jú, ein­hverjir þarna, áður en átti að fara í þessar breyt­ingar sem hafði verið óskað eftir, þannig að þessu var bara vísað til þeirrar nefndar,“ segir for­mað­ur­inn Helgi sem bætir við að það hafi verið svo­lítið skrítið að þeir hafi farið áður en þetta hafi verið tekið fyrir.

Staðgengill fékk ekki að sitja fundinn

Sigurður Jóhann gagn­rýnir einnig að stjórn félags­ins hafi ekki orðið við beiðni hans um að not­ast við fjar­fund­ar­búnað til þess að félags­menn eins og hann, utan af lands­byggð­inni, ættu kost á að sitja fund­inn. „Ég óskaði ítekað eftir að aðal­fund­ur­inn yrði einnig sendur út í fjar­fundi fyrir okkur lands­byggð­ar­menn­ina því félagið á að heita lands­fé­lag. Því var ítrekað hafnað þrátt fyrir góðan fyr­ir­vara og boð mitt um að koma því í kring.“ For­mað­ur­inn kann­ast hins­vegar ekki við að slík beiðni hafi komið fram. „Ég hef nú ekki heyrt þetta áður.“

„Það eru bara félags­menn sem eru á fund­inum, hann getur ekki sett mömmu sína eða eitt­hvað, skil­urðu?“

Þá gagn­rýnir Sigurður Jóhann að stað­gengli hans hafi verið meinað að sitja fund­inn. „Vegna fjar­lægðar frá fund­ar­stað sendi ég stað­gengil á fund­inn í dag þar sem ég komst ekki sjálfur. Var sá stað­geng­ill með gilt umboð, und­ir­ritað og vottað, var það ekki tekið gilt af engum ástæðum.“ Helgi segir ekk­ert athuga­vert við þetta enda geti ein­ungis gildir félags­menn setið aðal­fundi félags­ins. „Mér skyld­ist það að það hefði ein­hver verið með stað­gengil en hann var ekki í félag­inu og það eru bara félags­menn sem eru á fund­inum, hann getur ekki sett mömmu sína eða eitt­hvað, skil­urðu?“

Stundin greindi nýlega frá því að Sjómanna­fé­lag Íslands hefði greitt tæpar 35 millj­ónir króna í laun og launa­tengd gjöld árið 2015, ef marka má óund­ir­rit­aðan árs­reikn­ing félags­ins fyrir 2015. Þrír starfs­menn félags­ins fengu því sam­an­lagt um þrjá­tíu millj­ónir króna í laun frá félag­inu þetta sama ár, ef frá eru talin launa­tengd gjöld. Stundin hefur einnig greint frá því að Jónas Garð­ars­son, þá sitj­andi for­maður félags­ins, hafi verið hæst laun­aði verka­lýðs­leið­togi lands­ins árið 2016, en hann var með um 1,9 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra sem nálg­ast má á vef­síð­unni tekjur.is. Þá hefur blaðið greint frá því að Hallur Hallsson hafi fengið þrettán millj­ónir króna fyrir að rita sögu félags­ins og 1,2 millj­ónir fyrir ritun upp­lýs­inga­bæk­lings. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár