Jón Ásgeir verður ekki dæmdur fyrir neitt út af bankahruninu

Jón Ásgeir Jóhann­es­son var kærður til ákæru­valds­ins í nokkrum sam­bæri­legum málum þar sem hann beitti sér sem lyki­l­eig­andi til að fá starfs­menn Glitnis til að gera það sem hann vildi. Þrátt fyrir þetta sleppur hann með dóm eða dóma út af hrun­inu en fjöl­margir starfs­menn Glitnis hafa verið dæmdir í fang­elsi.

Jón Ásgeir verður ekki dæmdur fyrir neitt út af bankahruninu
Laus allra mála Jón Ásgeir er laus allra saka­mála sem tengj­ast banka­hrun­inu eftir að Hæsti­réttur Íslands veitti ekki áfrýj­un­ar­leyfi í Aurum-mál­inu. Mynd: Pressphotos

Sú nið­ur­staða Hæsta­réttar Íslands að veita ekki áfrýj­un­ar­leyfi til rétt­ar­ins í Aurum-mál­inu svo­kall­aða felur það í sér að Jón Ásgeir Jóhann­es­son verður ekki dæmdur fyrir nein lög­brot sem tengj­ast banka­hrun­inu og rekstri Glitnis banka. Aurum-málið var hið eina þar sem gefin var út ákæra á hendur honum í málum sem tengd­ust Glitni en hann var stjórn­ar­for­maður FL Group, stærsta hlut­hafa bank­ans, og var hann kall­aður „eig­andi“ Glitnis af starfs­mönnum hans. Jón Ásgeir var tal­inn hafa, sem eig­andi bank­ans, þrýst á starfs­menn bank­ans svo þeir gerðu hluti sem hann vildi og naut góðs af.

Í sam­tali við Stundina segir Ólafur Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari, áður sér­stakur sak­sókn­ari, að hann geti ekki og vilji ekki tjá sig um þessa nið­ur­stöðu í Aurum-mál­inu. Ólafur flutti Aurum-málið sjálfur í hér­aði og fyrir Lands­rétti sem sak­sókn­ari og hefur því varið drjúgum tíma í það í gegnum árin. Embætti rík­is­sak­sókn­ara sótti svo um áfrýj­un­ar­leyfið en fékk synjun.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár