Við hljótum að þurfa að draga úr sprengiregninu

Atla Hrafney kvíðir ára­mót­unum, þegar meng­unin verður slík að henni líður sem lungu hennar tæt­ist upp við það eitt að anda að sér.

Við hljótum að þurfa að draga úr sprengiregninu
Valda mengun og óþæg­indum Flug­eldar valda veru­legri svifryks­mengun. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ég er ekki ennþá búin að kaupa ryk­grímu til þess að geta farið út og notið nýárs­ins. Ég krota það niður á blað, reyni að muna að mamma þarf eina líka, og vona inni­lega að jólastressið heltaki mig ekki.

Nýárið er ekki sér­stak­lega skemmti­legt þegar þú getur ekki andað dögum saman, þótt það sé kannski bara mitt per­sónu­lega álit. Ég fór á spít­ala 2017, vegna ofsa­kvíða­kasts sem ég fékk. Það voru verk­föll í gangi hjá sjúkra­bíl­stjórum þegar þetta var og því stóð kastið hjá mér í yfir klukku­tíma áður en ég gat fengið aðstoð. Það voru margar ástæður fyrir því að ég fékk þetta kvíða­kast, ég hafði nýlega misst vinn­una, en ég hafði aðal­lega áhyggjur af heils­unni minni. Ég man að fyrsta ofsa­kvíða­kastið hjá mér, þegar ég öskr­aði og kvein­aði og ríg­hélt í hendur unnusta míns, kom beint eftir nýárið, þegar ég gat varla andað fyrir svifryki sem lá yfir göt­unum eins og þoku­kennd aska og tætti and­ar­drátt­inn minn eins og ég væri að anda að mér grjóti.

Ég er sann­ar­lega kvíðin mann­eskja, ég á erfitt með ýmsa hluti sem eiga að vera sjálf­sagðir, en svifrykið sem verður til af völdum flug­eld­anna sem við skjótum upp um ára­mótin, 660 tonn á nokkrum klukku­tímum, er eitt­hvað sem flestir taka kannski ekki alveg nógu alvar­lega.

Ég sat snemma á þessu ári í miðju afmæl­is­boði og mágur minn öskr­aði á mig hvernig ég ætti bara að nota net­versl­anir og panta mat á meðan ég byði eftir að meng­un­inni létti. Þetta átti, að mér skilst, að vera grín. Fólk hló á þann hátt sem það gerir til að vera viss um að eng­inn dæmi mann, en á meðan brann inni í mér þessi ofsa­kvíði sem svo erfitt er að lýsa. Ég bjó til afsökun um eitt­hvað sem ég þyrfti að sinna og fór nokkrum mín­útum seinna.

Svifryksmengun er banvæn

Mamma mín vann á Grund, við miðja Hring­braut, þar sem bíl­arnir keyra í þéttum röðum fram­hjá. Eitt sem mamma sagði mér frá er hvernig dauðs­föllum fjölgar þegar nýárið gengur í garð og líka þegar vet­ur­inn lætur undan síga. „Manstu eftir þess­ari sem þurfti alltaf aðstoð með sjón­varpið?“ spurði hún mig eftir að hún kom heim úr seinni vinn­unni sinni. „Hún fékk vængi í morgun.“ Ég fékk alltaf hroll yfir því hvernig hún orð­aði þetta, með sorg­legt bros á vör.

„Þurfum við virki­lega að bíða eftir að sagt verði frá fyrsta dauðs­fall­inu í kvöld­fréttum að kvöldi nýárs­dags?“

Við tölum vana­lega um heilsu­far­s­vanda­mál vegna svifryks í tengslum við astma­sjúk­linga. Það er auð­vitað rétt að svifryk hefur áhrif á þá, en þar að auki hefur þessi mengun áhrif á allan almenn­ing, sér­stak­lega börn og eldri borg­ara. Þótt dauðs­föll af völdum loft­meng­unar séu kannski ekki hlut­falls­lega há í Evrópu miðað við heims­með­al­tal vil ég samt benda á þrennt:

Fyrst, að eftir því sem svifryks- og loft­mengun eykst hér á landi, því verri verður hún um heim allan. Í Reykja­vík fer mengun reglu­lega yfir 50 míkrógrömm á rúmmetra, sem er heilsu­vernd­ar­við­mið hér á landi. Það hafa mælst allt upp í 122 míkrógrömm á Grens­ás­vegi. Á fyrstu klukku­tímum 2017 klifraði þessi tala upp í 1.450 míkrógrömm á rúmmetra, eða 290 sinnum meira en heilsu­vernd­ar­mörk.  

Í öðru lagi, þá er þessi mengun ban­væn, sér­stak­lega í svona miklu magni. Loft­mengun veldur dauða um 4,1 milljón manns á ári, eða um 7,7 pró­senta árlegra dauðs­falla í heim­inum. Þessi pró­senta mun aukast næstu ár.

Í þriðja lagi, að eftir því sem svifryks­mengun eykst hér á landi, þá veldur sama magn af flug­eldum meiri skaða. 660 tonn af flug­eldum árið 2017 var fremur óþægi­legt. 660 tonn af flug­eldum árið 2030 mun drepa mig.

Ég get ekki sagt með vissu að ég þekki fólkið sem les þennan texta núna. Ég veit bara að þið eruð mennsk, fólk sem vill gera sitt besta og lifa og elska og leyfa öðrum að gera hið sama. Ég veit að eng­inn með fullu viti myndi sam­þykkja að önnur mann­eskja þurfi að deyja af völdum sam­fé­lags­ins sem þau lifa í. Því vil ég spyrja alla sem búa hér, með mér, með fólki sem er næmara en aðrir fyrir ryki og mengun sem eykst svona mikið við ára­mót: Þurfum við virki­lega að bíða eftir að sagt verði frá fyrsta dauðs­fall­inu í kvöld­fréttum að kvöldi nýárs­dags? Þurfum við að horfa upp á lík á götu í mið­borg­inni, að sjá nafn þeirra sem lát­ast á skjá, til þess eins að fá okkur til að takast á við þessa hefð? Það er skilj­an­legt að vilja fá að fagna nýju ári, en ef allt bendir til þess að mengun sem af því hlýst muni drepa ein­hvern, og hafi jafn­vel nú þegar gert það, þá hljótum við að bregð­ast við og draga úr sprengiregn­inu.

Ég trúi ekki öðru en að við bregð­umst við áður en við heyrum nafn þess fyrsta sem lætur lífið.

 

 

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár