Segir flugelda geta skaðað lungu barna „fyrir lífstíð“

Björg­un­ar­sveit­irnar ætla að selja flug­elda áfram með óbreyttum hætti. Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræð­ingur segir meng­un­ina og „við­bjóð­inn“ sem fylgi flug­eldum hættu­lega mönnum og einkum börnum. Hann vill að björg­un­ar­sveitir láti súr­efn­is­grímur fylgja með í flug­elda­kaupum.

Vill banna flugeldasölu Sævar Helgi Bragason vill að flugeldasala verði bönnuð þar eð flugeldar valdi stórhættulegri mengun.

Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, segir það mikil von­brigði að björg­un­ar­sveit­irnar ætli í engu að bregð­ast við ákalli fjölda fólks um aðgerðir til að draga úr mengun af völdum flug­elda um kom­andi ára­mót. Markaðs- og sölu­stjóri Lands­bjargar lýsti því í fjöl­miðlum í morgun að sala á flug­eldum yrði óbreytt af hálfu björg­un­ar­sveit­anna.

Sævar Helgi hefur talað fyrir því um nokk­urt skeið að sala á flug­eldum til almenn­ings verði bönnuð, eða í það minnsta að settar verði mun strang­ari reglur þar um.

„Ég skil þá mæta­vel af því þetta er aðal fjár­öfl­un­ar­leið björg­un­ar­sveit­anna. Um leið þá eru það pínu von­brigði vegna þess að mér finnst að fólk eigi almennt að sýna ábyrgð, sér­stak­lega þegar að slík mengun varð eins og hérna síð­ustu ára­mót, að bregð­ast við og reyna að finna leiðir til að minnka hana að minnsta kosti.“ 

„Þannig að ef að börn eru úti á þessum tíma þá eru þau jafn­vel að skaða lungun sín fyrir lífs­tíð“

Sævar Helgi gefur lítið fyrir að aðrir meng­un­ar­valdar en flug­eldar séu stór áhrifa­þáttur í mengun á nýársnótt og gaml­árs­dag. Vissu­lega geti brennur haft ein­hver áhrif en þau séu marg­falt minni en sú mikla mengun sem fylgi flug­eld­unum.

„Vanda­málið er líka það að það eru ekki endi­lega bara efnin, þessir hættu­legu þung­málmar og ýmis­legt annað sem finnst í þessu, heldur er þetta ryk líka svo rosa­lega fínt að það smýgur inn í lungun á fólki og ekki bara fólki, börn eru í sér­stakri hættu vegna þess að þau anda hraðar. „Þannig að ef að börn eru úti á þessum tíma þá eru þau jafn­vel að skaða lungun sín fyrir lífs­tíð.“

Sævar Helgi leggur til að bæj­ar­fé­lög eða björg­un­ar­sveitir standi fyrir flug­elda­sýn­ingum á gamlárs­kvöld, á völdum stöðum, í stað þess að allur almenn­ingur kaupi flug­elda sem hverfi í sprengiryki. Hann hvetur almenn­ing til að styrkja björg­un­ar­sveit­irnar beint með þeirri upp­hæð sem það hefði hugs­an­lega notað til að kaupa flug­elda.

Aðspurður hvort hann lumi á hug­myndum til að draga úr hætt­unni sem af flug­eldum stafar svarar Sævar Helgi afdrátt­ar­laust og bendir á að björg­un­ar­sveit­irnar flytji inn og selji örygg­is­gler­augu.

„Miðað við meng­un­ina og allan þann við­bjóð sem fylgir þessu þá væri kannski ekk­ert vit­laust að þeir myndu gefa með ein­hvers konar ryk­grímur eða súr­efn­is­grímur, sér­stak­lega fyrir börn sem þurfa að anda þessu ógeði að sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár