Hafnar ásökunum Sigrúnar Helgu

Sigurður Yngvi Krist­ins­son, sem Sigrún Helga Lund kvart­aði yfir vegna kyn­ferð­is­legs hátta­lags í sinn garð og síðar úti­lok­unar, segir ásak­anir hennar rangar. Það sýni úrskurður siða­nefndar Háskóla Íslands.

Hafnar ásökunum Sigrúnar Helgu
Hafnar ásök­unum Sigurður Yngvi hafnar ásök­unum Sigrúnar Helgu í sinn garð alfarið. Mynd: HÍ

Sigurður Yngvi Krist­ins­son, pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands, hafnar ein­dregið þeim ávirð­ingum sem Sigrún Helga Lund, pró­fess­ors í líf­töl­fræði við sama skóla, hefur sett fram í hans garð. Stundin greindi í morgun frá því að Sigrún Helga hefði sagt upp starfi sínu sem pró­fessor vegna áreitni Sigurðar og vegna skorts á við­brögðum stjórn­enda háskól­ans eftir að Sigurður hafi verið fund­inn sekur um brot á siða­reglum Háskól­ans í sam­skiptum sínum við Sigrúnu Helgu.

Sigurður segir í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér vegna umfjöll­unar um málið að hann sjái sig til­neyddan til að bregð­ast við í ljósi ásak­ana sem Sigrún Helga hafi sett fram í hans garð, á sam­fé­lags­miðlum, og sem fjöl­miðlar hafi síðan sagt frá.

„Ég hafna því ein­dregið að hafa beitt hana and­legu ofbeldi eða áreitni af neinu tagi. Eftir far­sælt sam­starf komu upp erf­ið­leikar á milli okkar, og ég neydd­ist á end­anum til að víkja henni úr rann­sókna­hóp mínum. Í kjöl­farið gerði hún sig seka um til­efn­is­lausa lík­ams­árás á skrif­stofu minni í vitna við­ur­vist og hafði í hót­unum við mig. Sá atburður var mér og öðru sam­starfs­fólki okkar mikið áfall,“ segir Sigurður. Umræddur atburður sem Sigurður vísar til leiddi til þess að áminn­ing­ar­ferli fór af stað innan Háskól­ans en mál­inu var lokið án þess að til áminn­ingar kæmi.

Sigurður bendir á að siða­nefnd Háskóla Íslands hafi tekið sam­skipti hans og Sigrúnar Helgu til umfjöll­unar að kröfu hennar. Ákvörðun hafi verið birt 9. júlí síð­ast­lið­inn. Þar komi fram að siða­nefndin vísi frá öllum kæru­at­riðum Sigrúnar Helgu, öðrum en kvörtun hennar vegna brott­vikn­ingar Sigurðar á henni úr stýri­hópi rann­sókn­ar­verk­efn­is­ins Blóð­skimun til bjargar, sem hún sat í ásamt Sigurði og öðrum. Þar fellst siða­nefndin á að Sigurður hafi brotið gegn siða­reglum Háskóla Íslands að hluta en brotið telj­ist ekki alvar­legt. Bendir Sigurður á að Sigrún Helga hafi verið tekin inn í stýri­hóp­inn að nýju síðar. Öllum ásök­unum um áreitni hafi hins vegar verið hafnað. Sigurður segir að sér þyki því leitt að Sigrún Helga fari fram með rangar ásak­anir í hans garð.

Bætt við kl. 17:30:

Rektor Háskóla Íslands hefur sent frá sér svohljóð­andi yfir­lýs­ingu:

Jón Atli Bene­dikts­sonrektor Háskóla Íslands

Háskóli Íslands leggur ríka áherslu á að til staðar séu úrræði fyrir starfs­menn og nem­endur sem telja á sér brotið. Háskól­inn starf­rækir m.a. sér­staka siða­nefnd, fagráð um við­brögð við kyn­bund­inni og kyn­ferð­is­legri áreitni og kyn­bundnu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi, og við­bragð­steymi vegna ein­eltis og ann­ars ofbeldis.

Fram hefur komið í fjöl­miðlum að til­tek­inn starfs­maður hafi lagt fram kæru vegna fram­komu ann­ars starfs­manns til siða­nefndar Háskóla Íslands en nið­ur­staða nefnd­ar­innar lá fyrir í júlí 2018. Samkvæmt starfs­reglum siða­nefndar Háskóla Íslands eru skrif­legar nið­ur­stöður siða­nefndar afhentar máls­að­ilum og sendar rektor til vit­undar og varð­veislu. Í kjöl­far hverrar nið­ur­stöðu siða­nefndar metur rektor hvort til­efni sé til frek­ari aðgerða af hálfu Háskól­ans.

Rektor getur ekki tjáð sig efn­is­lega um mál­efni ein­stakra starfs­manna eða ákvarð­anir siða­nefndar, sem eru trún­að­ar­mál. Rétt er að taka fram að Háskóli Íslands hefur, á und­an­förnum miss­erum, lagt áherslu á að bæta enn frekar ferla og úrræði til að bregð­ast við kvört­unum og til­kynn­ingum um ofbeldi og áreitni af hvaða tagi sem er, enda verður slíkt aldrei liðið innan Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár