Sigrún Helga segir upp starfi prófessors vegna hegðunar yfirmanns og gagnrýnir viðbrögð háskólans

„Nú er svo komið að ég get ekki hugsað mér að hefja enn annað starfsár á sama vinnu­stað.“

Sigrún Helga segir upp starfi prófessors vegna hegðunar yfirmanns og gagnrýnir viðbrögð háskólans

Sigrún Helga Lund hefur sagt upp starfi sínu sem pró­fessor í líf­töl­fræði við Háskóla Íslands. Hún til­kynnir um málið á Facebook og seg­ist hafa tekið þessa ákvörðun vegna kyn­ferð­is­legs hátta­lags yfir­manns og við­bragðs­leysis skóla­stjórn­enda eftir að yfir­mað­ur­inn var fund­inn sekur um brot á siða­reglum.

Sigrún gagn­rýnir harð­lega hvernig kvörtun hennar var með­höndluð innan skól­ans, seg­ist hafa fengið nóg og ekki geta hugsað sér að hefja enn eitt starfs­árið á sama vinnu­stað. 

„Við vorum að von­ast til að fá ein­hver við­brögð frá Háskól­anum og að það væri hægt að vinna að ein­hvers konar sátt eða lausn en það hefur ekk­ert heyrst, sem okkur þykir afar skrýtið,“ segir Sigrún Jóhanns­dóttir, lög­fræð­ingur Sigrúnar Helgu, í sam­tali við Stundina.

Stundin hefur ákvörðun siða­nefndar í máli Sigrúnar Helgu og fyrr­ver­andi yfir­manns hennar undir höndum. Þar kemst nefndin að þeirri nið­ur­stöðu að mað­ur­inn hafi brotið gegn þremur greinum siða­reglna með því að reka Sigrúnu úr kjarna­hópi rann­sóknar á órétt­mætum grund­velli. Þá hafi yfir­mað­ur­inn látið fyr­ir­far­ast að halda skemmtun aðgreindri frá vinnu og þannig ekki gætt á full­nægj­andi hátt ábyrgðar yfir­manns. 

„Við höfum gefið þessu góðan tíma, það er að verða hálft ár síðan að úrskurður siða­nefndar var birtur án nokk­urra við­bragða. Það, og ýmis­legt sem hefur gerst und­an­farið sem bendir til þess að það sé bara búið að loka mál­inu af hálfu háskól­ans, gerði það að verkum að hún sá sér ekki fært að vera þarna áfram við störf.“

Sigrún Jóhanns­dóttir segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvert fram­haldið verði en hún stefni að því að setj­ast niður með skjól­stæð­ing sínum eftir hátíð­arnar og skoða þá stöðu Sigrúnar Helgu gagn­vart skól­anum.

Hér má lesa yfirlýsingu Sigrúnar Helgu Lund í heild:

Hafi fólk ein­lægan áhuga á að vita hvers vegna konur flýja HÍ er skýr­ingin ekki svo flókin.

Sumarið 2016 lýsti ég áhyggjum yfir erf­iðum sam­skiptum og kyn­ferð­is­legu hátta­lagi af völdum yfir­manns míns í starfs­manna­við­tali. Engin við­brögð fylgdu þeirri kvörtun, ástandið versn­aði ört og þegar það var loks orðið óbæri­legt svar­aði ég fyrir mig og löðr­ung­aði yfir­mann­inn. Þá fyrst brást Háskól­inn við en á allt annan máta en mig óraði fyrir.

Þrátt fyrir að ég sýndi marg­vís­leg sönn­un­ar­gögn um alvar­legt and­legt ofbeldi og ein­elti var engin til­raun gerð til að rann­saka málið. Ég var rekin af vinnu­staðnum og skipað að fara í veik­inda­leyfi. Þegar ég neit­aði að hlýða var mér hótað áminn­ingu sem HÍ neydd­ist þó til að láta niður falla enda málið allt á sandi byggt.

Á sama tíma reis #meToo umræðan sem hæst - þar sem HÍ barði sér hvað mest á brjóst.

Kjafta­sögur fljúga hratt á litla Íslandi og það er ekki auð­velt að vernda mann­orð sitt gegn svo valda­miklum aðilum. Að lokum náði ég þó styrk til að kæra málið til siða­nefndar háskól­ans sem kvað upp dóm í júlí síð­ast­liðnum. Þar var stað­fest að yfir­maður minn hafði brotið þrjár greinar siða­reglna, þar með talda jafn­ræð­is­reglu 1.3.2:

“Starfs­fólk og nem­endur Háskól­ans gæta þess að mis­muna ekki hver öðrum, til dæmis vegna kyns, kyn­þáttar, kyn­hneigðar, ald­urs, fötl­unar, þjóð­ernis, trú­ar­bragða eða skoð­ana. Þeir leggja ekki hver annan í ein­elti og eru á varð­bergi gagn­vart ein­kennum þess.”

Það var ekki fyrr en að lög­fræð­ing­ur­inn minn staf­aði nið­ur­stöð­una ofan í mig að ég átt­aði mig á að ég hafði unnið málið. Ég hefði aldrei trúað því hvað gas­lýs­ingin er sterk.

Nú var málið komið í hendur rekt­ors og í fyrsta sinn bærð­ist með mér von um rétt­læti. Ég fékk fregnir af því að siða­nefnd hefði fundað með rektor og beið spennt eftir að heyra nánar frá honum. Fjórir mán­uðir liðu og á morg­un­fundi um jafn­rétt­is­mál í hátíð­ar­sal HÍ sagði hann:

“Hér í Háskóla Íslands höfum við lagt áherslu á að hlusta á sögur kvenna, draga af þeim lær­dóm og bregð­ast fljótt og fum­laust við.”

En aldrei heyrð­ist neitt. Nú er nær hálft ár liðið síðan dómur féll, ekki stakt orð borist frá rektor og allt ástand óbreytt - ef ekki verra. Nú er svo komið að ég get ekki hugsað mér að hefja enn annað starfsár á sama vinnu­stað.

Ég segi því hér með upp starfi mínu sem pró­fessor í líf­töl­fræði við Miðstöð í lýð­heilsu­vís­indum við Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár