Yfir helmingur telur mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá

Stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur flest að breyt­ingar á stjórn­ar­skrá séu lít­il­vægar en Píratar eru áfram um að slíkar breyt­ingar verði gerðar á kjör­tíma­bil­inu.

Yfir helmingur telur mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá
Yfir helm­ingur fylgj­andi Ríflega helm­ingur aðspurðra telur mik­il­vægt að gerðar verði breyt­ingar á stjórn­ar­skránni á þessu kjör­tíma­bili. Mynd: Pressphotos

Yfir helm­ingur lands­manna telur mikli­vægt að Íslend­ingar eign­ist nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili sam­kvæmt nýrri könnun MMR. 52 pró­sent aðspurðra sögðu frekar eða mjög mik­il­vægt að ný stjórn­ar­skrá yrði sett á kjör­tíma­bil­inu. Sam­bæri­leg könnun var fram­kvæmd í sept­em­ber 2017 og hefur hlut­fall þeirra sem segja mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá minnkað um ríf­lega 4 pró­sentu­stig síðan þá.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 18. til 22. októ­ber og var spurt um mik­il­vægi þess að „Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili“. Rétt er að taka fram að sam­kvæmt gild­andi stjórn­ar­skrá er ekki hægt að stað­festa breyt­ingar á stjórn­ar­skránni eða sam­þykkja nýja stjórn­ar­skrá öðru­vísi en með sam­þykki tveggja þinga, þ.e. á tíma­bili sem nær yfir meira en eitt kjör­tíma­bil.

Alls 34 pró­sent aðspurðra sögðu mjög mik­il­vægt að ný stjórn­ar­skrá yrði sett og 18 sögðu það frekar mik­il­vægt. 19 pró­sent aðspurðra töldu það hvorki mik­il­vægt né lít­il­vægt að sett yrði ný stjórn­ar­skrá, 11 pró­sent töldu það frekar lít­il­vægt og 18 pró­sent mjög lít­il­vægt.

Konur eru almennt frekar á því að setn­ing nýrrar stjórn­ar­skrár sé mik­il­væg en 56 pró­sent þeirra er þeirrar skoð­una borið saman við 49 pró­sent karla. Stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og  Fram­sókn­ar­flokksin voru minnst áfram um að breyt­ingar yrðu gerðar, aðeins 13 pró­sent kjós­enda fyrr­nefnda flokks­ins og 15 pró­sent kjós­enda síð­ar­nefnda flokks­ins voru því fylgj­andi.

Lang­minnstur stuðn­ingur er við slíkar breyt­ingar í röðum kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks, 66 pró­sent telja slíkar breyt­ingar lít­il­vægar, og 59 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins eru á sama máli. Aftur á móti telja 89 pró­sent kjós­enda Pírata að slíkar breyt­ingar séu mik­il­vægar og 84 pró­sent kjós­enda Flokks fólks­ins.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár