Inga Björk á Austurvelli í dag: Enginn þingmannanna beðið Freyju afsökunar

Inga Björk Bjarna­dóttir, hjá sam­tök­unum Tabú, flutti ræðu á Aust­ur­velli þar sem hún sagði þing­menn Mið­flokks og Flokks fólks­ins ekki hafa beðið Freyju Har­alds­dóttur afsök­unar á að hafa rætt um hana með niðr­andi hætti. Á annað þús­und manns mættu til að mót­mæla fram­ferði þing­mann­anna og krefj­ast afsagnar þeirra.

„Við verðum að muna það að það er fólk af holdi og blóði sem er á bak við þessi ummæli,“ sagði Inga Björk Bjarna­dóttir hjá sam­tök­unum Tabú, í ræðu á mót­mælum sem fram fóru á Aust­ur­velli í dag, og vís­aði þar til þeirra ein­stak­linga sem teknir voru hvað harð­ast fyrir í sam­ræðum þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins á Klaustri bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, en þar ræddu þing­menn­irnir meðað ann­ars með niðr­andi hætti um konur, fatl­aða og útlend­inga.

Freyja níddÞing­menn­irnir ræddu meðal ann­ars um fyrrum þing­konu Bjartrar Fram­tíðar, með niðr­andi hætti en engin þeirra hefur haft sam­band við hana og beðist afsök­unar, að því er Inga Björk segir.

„Þetta eru ein­stak­lingar og hópar sem hafa verið nið­ur­lægðir og smætt­aðir, báðu aldrei um það og gerðu ekk­ert tangt. Og í fjöl­miðlum óma nú fréttir um að þetta valda­mesta fólk í sam­fé­lag­inu hafi kallað þau heimsk, kuntu, tík. Líkami þinn og útlit er smánað, fötlun þín er gerð af aðhlát­ursefni,“ sagði Inga Björk sem lagði áherslu á það í ræðu sinni að eng­inn þing­mann­anna, sem tóku meðal ann­ars þátt í sam­ræðu þar sem talað var með niðr­andi hættu um Freyju Har­alds­dóttur, fyrrum þing­manni Bjartrar fram­tíðar, hefði haft sam­band og beðið hana afsök­unar.

„Og vit­iði hvað? Enginn af þessum dónum hefur séð sóma sinn í að biðja Freyju Har­alds­dóttur afsök­unar. Ekki eitt þeirra. Iðrunin er ekki meiri en svo!“

Mikill mannfjöldi

Á annað þús­und manns komu saman á Aust­ur­velli í dag til þess að mót­mæla fram­ferði og talsmáta sex þing­manna úr Mið­flokki og Flokki fólks­ins á Klaustur bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Á Facebook-síðu mót­mæl­anna kom fram að boðað hefði verið til þeirra „í til­efni af þeim yf­ir­gengi­legu for­dóm­um og mann­fyr­ir­litn­ingu sem hóp­ur þing­manna hafði frammi á fundi sín­um á Klaust­urs­barn­um í Templ­ara­sundi.“

Stundin ræddi við nokkra mót­mæl­endur. „Það er þessi mann­fyr­ir­litn­ing sem maður er bara mjög dapur yfir. Ég er bara sorg­mædd miðað við að þetta er hund­rað ára afmælið okkar í dag, og við hefðum átt að vera að gleðj­ast en ekki vera í þess­ari stöðu,“ sagði Guðný Björns­dóttir, ein þeirra sem mætt var til þess að mót­mæla fram­ferði þing­mann­anna sex.

Merki móralskrar hnignunar

Óhætt er að segja að mót­mælin hafi sett ákveðin svip á hátíð­ar­höld vegna hund­rað ára afmælis full­veldis Íslands, en þau byrj­uðu stuttu eftir að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­isáð­herra hafði ávarpað Margréti dana­drottn­ingu, Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, og sam­ráð­herra sína í rík­is­stjórn fyrir framan stjórn­ar­ráðið á sér­stakri setn­ingu hátíð­ar­halda í til­efni af hund­rað ára afmæli full­veldis lands­ins.

Þeir við­mæl­endur Stund­ar­innar sem sóttu mót­mælin töldu sér ekki fært að gera annað til að sýna sam­stöðu með þeim hópum sem voru níddir hvað mest í sam­ræðum þing­mann­anna. „Maður fær svona slæmt bragð í munn­inn eig­in­lega við það að hlusta á svona ill­mælgi,“ sagði Lárus Steinþór Guð­munds­son, háskóla­kenn­ari, sem mættur var á Aust­ur­völl til þess að sýna sam­stöðu. Lárus, sem mætti á mót­mæli á Aust­ur­velli í kjöl­far hruns­ins, sagð­ist telja að Alþingi hefði aldrei sokkið neðar en nú. „Við erum með núna, rúmum tíu árum seinna, með svona merki ákveð­innar móral­skrar hnign­unar sem er mjög slæmt að upp­lifa.“

Þingmenn sýni virðingu

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags­ins, sagði ummæli sex­menn­ing­anna afhjúpa ákveðna hat­urs­orð­ræðu, og það af hálfu vald­hafa í land­inu. Hún gerði orð Freyju Har­alds­dóttur að sínum og lagði áherslu á hætt­una sem stafar af því þegar fólk í valda­stöðum við­hefur slíka hat­urs­orð­ræðu. „Vegna þess að það setur for­dæmi og hefur vald til þess að normalísera orð­ræðu og ofbeld­is­menn­ingu,“ sagði hún enn­fremur. 

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, tók ummæli þing­mann­anna fyrir með kald­hæð­isn­legum hætti. „Það getur engin kell­ing veitt körlum skjól því kerl­ingar eru aum­ingjar sem kunna ekk­ert nema að væla, fávitar sem halda alltaf sömu ræð­una. Það er kannski hægt að ríða þeim en djöf­ull sem það fellur hratt á þær, hel­vítis kerl­inga­kless­urnar. Þeir geta ekki einu sinni drull­ast til að vera áfram hot, og hvaða gagn er þá hægt að hafa af þeim? Maður spyr sig.“

„Mér finnst skipta svo miklu máli að þeir sem sitja á Alþingi, stjórn­mála­menn og þeir sem valdið hafa, að þeir beri virð­ingu fyrir almenn­ingi og lýð­veld­inu,“ sagði Bergljót Þor­steins­dóttir, ein mót­mæl­enda. „Og mér fannst þeir afhjúpa heimsku sína, þarna í sam­ræðum sínum þarna á þessum bar, Klaustri. og mér finnst þeim ekki stætt á að sinna vinn­unni sinni í fram­hald­inu,“ sagði Bergljót og lagði áherslu á að 1. des­em­ber væri rétti dag­ur­inn til þess að biðja stjórn­mála­menn um að vinna af heil­indum til að fram­fylgja lýð­ræð­inu, og minnti um leið á bar­átt­una fyrir nýrri stjórn­ar­skrá:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár