Icelandair telur ólíklegt að fyrirvarar á kaupum á WOW air verði uppfylltir

Talið ólík­legt að takast megi að upp­fylla fyr­ir­vara fyrir hlut­hafa­fund Icelandair á föstu­dag­inn.

Icelandair telur ólíklegt að fyrirvarar á kaupum á WOW air verði uppfylltir
Við­skipti í vafa Icelandair telur ólík­legt að takast megi að upp­fylla fyr­ir­vara á kaup­unum á WOW air fyrir kom­andi hlut­hafa­fund á föstu­dag­inn.

Ólík­legt er talið að takast megi að upp­fylla alla fyr­ir­vara á kaupum Icelandair Group á WOW air fyrir hlut­hafa­fund fyrr­nefnda félags­ins á föstu­dag­inn kemur. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Icelandair Group. Við­skipti með hluta­bréf í Icelandair voru stöðvuð í Kauphöll Íslands í morgun.

Í til­kynn­ing­unni segir: „Líkt og til­kynnt hefur verið mun Icelandair Group halda hlut­hafa­fund þann 30. nóv­em­ber nk. Á dag­skrá fund­ar­ins er til­laga um að sam­þykkja kaup félags­ins á WOW air hf. Í kaup­samn­ingi eru ýmsir fyr­ir­varar sem þurfa að vera upp­fylltir. Miðað við stöðu máls­ins í dag telur Icelandair Group ólík­legt að allir fyr­ir­varar verði upp­fylltir fyrir þann tíma­punkt.

Áfram verður unnið í mál­inu og við­ræður standa yfir milli samn­ings­að­ila um fram­gang máls­ins.“

Ekki kemur fram hvaða fyr­ir­vara um er að ræða en meðal þeirra var sam­þykki hlut­hafa­fundar. Augljóst er að ekki er um þann fyr­ir­vara að ræða en mögu­lega er um að ræða fyr­ir­vara um nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar á WOW air, en sá fyr­ir­vari var einmitt nefndur sér­stak­lega í til­kynn­ingu um kaupin í byrjun mán­að­ar­ins. 

Fjár­mála­eft­ir­litið gaf í morgun frá sér til­kynn­ingu vegna stöðv­un­ar­innar á við­skipt­unum. Þar segir að að eft­ir­litið hafi ákveðið að stöðva tíma­bundið við­skipti með fjár­mál­gern­inga Icelandair Group í Kaup­höll­inni. Hafi ákvörð­unin verið tekin til að vernda jafn­ræði fjár­festa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár